Vikan


Vikan - 11.07.1985, Side 44

Vikan - 11.07.1985, Side 44
Fimm mínútur með Willy Breinholst Fjórðungur úr óseyddu rúgbrauði, takk! Ég er ekki einn af þeim sem fara undan í flæmingi ef þarf aö hjálpa til heima viö í neyöartilvik- um — eins og til dæmis í gærmorg- un þegar Maríanna taldi upp sautján staði þar sem henni var illt og grúfði sig niður í sængina' með minnst 47,11 stiga hita. Það lék enginn vafi á því, hún var kom- in með flensu. — Heyröu mig, sagði ég í sam- herjatón, — þú verður í rúminu í dag, þangað til þú ferð á fætur að útbúa hádegismatinn. Ég skal fara í bæinn og kaupa inn. Var það ekki einmitt í dag sem þú varst bú- in að lofa að vera með kjötfarsrétt með fylltum, bökuðum kartöflum, ostabollur og prinsessubúðing með blönduðum ávöxtum? Ummm . . . eftirlætisrétturinn minn. Maríanna þurrkaði svitann af enninu á sér og stamaði. Kauptu hálft kíló af söxuðu kálfakjöti, láttu hakka það einu sinni. . . og rúgbrauð í bakaríinu. Ég hef ekki krafta til að . . . Þar fór eftirlætisrétturinn minn. Ég varð aö fara út með þetta. Fyr- ir utan stoppaði ég: Rúgbrauð hafði hún sagt, seytt eða óseytt? Eg fór inn og spurði. — Og svo hálft kíló af sneiddu hakkakjöti, kálfað einu sinni? Það var eitthvað í augnaráðinu sem hún sendi mér sem fór hér um bil með morguninn hjá mér. — Heyrðu, sagði hún, þú skalt bara kaupa brauðið. Þið getið fengið ykkur steikt egg með. Það er of mikið fyrir þig að fást við hitt, miðað viö þína hæfileika. — Auðvitað ekki, sagði ég. Ég veit að innkaup eru ekki sterka hliðin mín en þaö er nú samt engin ástæöa til aö vera með meiningar. Hversu veik þarf kona að verða til að hún hætti að vera orðhvöt. Fimm mínútum síðar var ég kominn í bakaríið. — Hvað var það fyrir þig? — Ég leit á miðann minn. — Rúgbrauð, sagðiég. — Niöursneitt? spurði hún. Þarna stóö ég og gat ekki annað. Ég hefði getað sagt mér það sjálf- ur að maður fer ekki bara í bakarí og biður um rúgbrauð og fær rúg- brauð með sér heim. — Ja, ég veit eiginlega ekki. . . en má ég fá að hringja hjá þér, heim . . .? — Já, gjörðu svo vel. Ég hringdi heim. — Þetta er ég, sagði ég. — Segðu mér eitt, vild- irðu aö rúgbrauðið væri niður- sneitt eða ósneitt? — Auðvitað átti það ekki að vera niðursneitt, sagði Maríanna. Við kaupum aldrei niðursneitt rúg- brauð. Það er miklu þurrara. — Þetta rúgbrauð sem ég fæ heima er alltaf niöursneitt, taut- aði ég og lagði á. Svo sneri ég mér að afgreiðslustúlkunni. — Það á að vera ósneitt. 9 Já, en afsakaðu mig, maður minn, sagði Marianna pirruð i sim- ann. Þú veist vel að við borðum bara hálfseytt rúgbrauð. 44 Vikan 28. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.