Vikan


Vikan - 11.07.1985, Side 49

Vikan - 11.07.1985, Side 49
aftur af stað til Parísar. Henni féll það þungt að yfirgefa Char- les. Hann var tekinn upp á því að stríða henni góðlátlega á dugnaðinum í henni, og kom henni til að hlæja að sjálfri sér eða hreint engu. Charles kom henni til að flissa meira en hún hafði nokkru sinni gert síðan hún var í skóla. I annarra augum var hann þögull, fálátur og næstum leiðinlegur, en ekki í augum Maxín. Þeir virka mjög kynörv- andi á konur sem geta komið þeim til að hlæja og hún gat varla beðið eftir föstudags- kvöldunum. Hún fann alltaf að einhver æsingur lá í loftinu þegar hún klæddi sig þá morgna. Hún skipti jafnan í það minnsta þrisvar sinnum um skoðun og skildi við her- bergið sitt á rú og stú og föt út um allt. Móðir hennar varð mjög kát við þessa óvenjulegu hegðun. Ef stúlkur voru mjög óákveðnar í fatavali var alltaf einhver karlmaður í spilinu. Og um kvöldið, þegar þau sátu yfir kaffi og koníaki í Royale Champagne, þráði hún snertingu Charles. En hann snerti hana ekki. & östudag einn virtist samtalið ganga eitthvað stirt undir borðum, það virtist vera cins konar veggur á milli þeirra sem stafaði af feimni. Maxín var sér mjög vel meðvitandi um að Charles var henni nú annað og meira en einungis viðskipta- vinur og hún varð mjög vand- ræðaleg við allt sem hún gerði, hvort sem það var að klóra sér í höfðinu með blýanti (kækur sem fór mjög fyrir brjóstið á fjölskyldu hennar) eða borða og drekka allt í einu með gus- um og gúlpi. I lok næstu viku var Maxín svo illa haldin að hún gat varla staðið við hliðina á Charles. Þá um kvöldið hafði hún sýnt honum nokkur illa farin olíumálverk, hestamyndir sem hún hafði fundið hér og þar í húsinu og staflað uppi á gangi. Þær voru mjög svipaðar myndum sem Jack Reffold var farinn að selja til Bandaríkj- anna. Þau voru orðin of sein í matinn á hótelinu en hún hafði endilega viljað að hann liti á þær því hún var að velta því fyrir sér hvort það væri þess virði að senda nokkrar til Jacks til þess að láta hann meta þær. ,,Af hverju kemur þú ekki aftur hingað eftir kvöldmat?” spurði Charles. ,,Við getum þá ákveðið hverjar við ættum að senda til London.” ,,Ég verð orðin of þreytt og þá kemst ég allt of seint aftur til Parísar og bíllinn rásar sjálf- sagt til á veginum alla leiðina heim.” fyrir þig,” sagði hann. ,,Af hverju flyturðu ekki bara til mín?” ,,Vegna þess að foreldrar mínir fengju slag! ” ,,Ekki ef við værum gift,” sagði Charles og tók ekki augun af henni heldur bar vinstri úlnliðinn á henni upp að vörum sér og kyssti bláar æðarnar sem lágu fram í lófann mjög varlega. Maxín, sem lét sér aldrei bregða og vissi alltaf nákvæm- lega hvað hún vildi, var orð- laus. Hún átti bágt með andar- drátt. Hún þorði ekki að hreyfa ,,Ég skal aka þér heim,” bauðst Charles til. ,,Það er of langt, þú kæmir ekki aftur til Epernay fyrr en í dögun.” Með sjálfri sér hugs- aði hún sem svo að hann kæmi ef til vill aldrei aftur því það eina sem henni féll illa við Charles var hve hann ók ógæti- lega. ^ au héldu áfram að borða. Þegar þjónninn hafði hellt kaffi í bollana þeirra beygði Charles sig yfir borðið og strauk hægt en ákveðið þykka, nýlitaða, ljósa hárið. Maxín fann höggbylgjurnar í höfðinu, í brjóstunum og í náranum. Hún náði varlæ andanum og hún blés ótt og títt eins og hún væri í þunnu lofti hátt til fjalla. Charles sleppti hárlokknum og hún gaf frá sér svolitla stunu. Charles tók eftir því. „Þessi ferðalög þín svona seint eru allt of erfið sig. Henni fannst hún svo máttlaus að hún var ekki viss um hvort hún gæti gengið út úr veitingahúsinu. Hún gat ekki litið af honum. I þetta skipti var hann aldrei þessu vant ekki brosandi. Hann virt- ist fremur einkennilega svip- brigðalaus. Eftir að þau fóru úr veitinga- húsinu ók Charles aftur heim á herragarðinn á óguðlegum hraða án þess að segja orð. Hann hrifsaði höndina á Maxín og án þess að segja orð dró hann hana á eftir sér þegar hann hljóp upp tröppurnar að aðalinnganginum og veitti ilm- inum frá hlýrri moldinni og heitu grasinu í næturhúminu enga athygli. Það eina sem hann fann var æsandi, eftir- væntingarfull, einbeitt ástríða sem fór eins og rafstraumur gegnum samanklemmdar hendur þeirra. Þegar þau voru komin inn í húsið dró Charles Maxín að sér og kyssti hana fast á munninn, hélt henni með ann- arri hendinni en strauk yfir hana alla með hinni. Hann fylgdi hryggsúlunni varlega niður, þreifaði mjúklega á þjóhnöppunum. Hann þrýsti hanni upp að sér þannig að hún fann fyrir vax- andi æsingi hans. Hann dró hægt upp pilsið hennar og hún fann fyrir hendinni á honum á beru holdinu fyrir neðan nærbuxurnar. Síðan smeygði hann hendinni undir mjúka blúnduna. Maxín skalf. Hún þráði hann meira en hún hafði nokkru sinni þráð nokk- urn mann áður, hún kiknaði í hnjáliðunum og taldi að hún gæti ekki staðið upprétt mikið lengur. Hún fann hvernig hann þrýstist upp að maganum á henni þegar fingurnir á honum gældu við titrandi þjó- hnappana á henni og drógu hana fastar að sér. JL éð áreynslu sleit Charles sig af henni, andvarp- aði eftirvæntingarfullur, lyfti Maxín upp (aldrei yrði hún beinlínis fislétt) og bar hana upp bogadreginn stigann upp í rykugt en stórfenglegt, blátt og brókaðiklætt svefnherbergið. Tunglið varpaði silfurlitum geislastöfum yfir herbergið þegar hann lagði hana varlega á gömlu silkiábreiðuna, reif síð- an utan af sér fötin og lagðist ofan á hana. Maxín tók andköf af undr- un. Hún hafði ekki vænst þess af hinum blíðlynda, varfærna og fyndna Charles að hann væri svona mynduglegur, ástríðufullur og leikinn. Næstu fjórar klukkustund- irnar fann Maxín hvernig lík- ami hennar hreyfðist og tók á mód á þann hátt sem hún hafði aldrei vitað að hann gæti. Á eftir vildi hún ekki fara frá honum. Hún hélt utan um hann allsnakin. Hárið á henni var flókið og rakt og hékk niður á stór, þrýstin brjóstin. ,,Ég vil ekki fara,” hvíslaði hún með tárin í augunum og streittist á 28. tbl. Vikan 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.