Vikan


Vikan - 04.12.1985, Page 11

Vikan - 04.12.1985, Page 11
 ^SLTsei FORTIÐ Hvað er þetta? Íslendingar hreykja sér oft af því að hafa góð tengsl við fortíðina, skilja fornsögurnar og halda sig vita flest um það sem fylgdi fornum þjóðhátt- um. En er það víst? Þekkja menn áhöld þau sem hætt er að nota? Hér er munur af Þjóðminjasafninu, vandinn er að segja hvað þetta er og til hvers það var notað. Svarið er hér annars staðar á síðunni. Lausn fengin á gömlum þrætum: Jólasveinninn býr á Norðurpól í New York, USA Sokkabandsárin Lengi hefur staðið um það deila hvar jólasveinninn aetti heima. Haft er fyrir satt að póststjórnum i flestum löndum Norður-Evrópu berist fyrir hver jól firnin öll af bréfum og kortum sem stiluð eru á jólasveininn. I sumum eru óskalistar og þakkir fyrir örlæti á liðnum árum en í öðrum eru bara kveðjur. Aldrei hefur verið úr því skorið hvar væri hið rétta heimilisfang jólasveinsins og starfs- menn póstsins hafa einatt átt í erfiöleik- um með aö sinna bréfunum. I sumum löndum hafa veriö sett á fót fyrirtæki sem senda krökkum svarbréf gegn gjaldi. En trúlega er það fyrirtæki, sem lengsta reynslu hefur í þessu, i Banda- rikjunum, nánar tiltekiö í New York-riki. Eins og allir vita er allt mest og stærst i Ameríku. Og það er lika raunin með þetta fyrirtæki sem starfaö hefur frá 1949. Þar er hægt að sjá jólasveininn aö störfum og til þess að skapa fyrirtækinu eðlilegan starfsvettvang á ársgrund- velli, eins og þetta heitir á fræðimáli, er starfsemi jólasveinsins ekki bundin við þann stutta tima ársins. Það er enda á allra vitorði að jólasveinninn þarf geysi- langan tima til þess að útbúa allar gjaf- irnar sem hann sendir krökkum. A North Pole (Norðurpólnum) í New York er því hægt aö sjá sveinka á verkstæði sinu allan ársins hring. Það er að vísu dálitil landfræöileg blekking fólgin í nafninu, staöurinn er um 500 kílómetra noröan við New York-borg, rétt við Lake Placid þar sem vetrarólympíuleikarnir voru haldnir um árið. Og til þess aö þetta verði ekki of einhæft er þarna heill skemmtigaröur með talandi jólatré og svo er hægt að fá far i hreindýravagnin- um hans sveinka. * SANTAS WORKSHOP, **#%»*• *** ....# * * AIl of your ^ Chrístmas dreams come true! •jnjs>|eq juAi ipui gejjsuA^ -jnteiqo juAj uj^lsjnjsjjeg Ásthildur Cesil Þórðardóttir hefur ný- lega sent frá sér plötuna Sokkabands- árin. Á plötunni eru tólf lög og textar eftir Ásthildi sem jafnframt syngur öll lögin. Ásthildur Cesil hefur sungiö og spilað meö ýmsum hljómsveitum, má þar nefna Hljómsveit Ásgeirs Sigurösson- ar, Aðild og Asthildur, Líparít, Gancia. Árið 1981 stofnaöi hún ásamt nokkrum ísfirskum stúlkum hljómsveitina Sokka- bandið og starfaði hún í tvö ár. Sokka- bandiö tók meöal annars þátt í fyrstu SATT-keppninni í Tónabæ og komst hljómsveitin þá í undanúrslit. Ásthildur samdi mikinn hluta af þeim lögum og textum sem Sokkabandiðflutti. Aðalstarf Asthildar er að vera garöyrkjustjóri Isafjarðar á sumrin en hún starfar við rækjuvinnslu á vetrum. Hún er áhugasöm um fleira en tónlist, má þar nefna leiklist, hestamennsku og garðyrkju. Tónlistin á plötunni Sokkabandsárin er létt og glaöleg og textarnir um ýmis efni. Textinn Islensk náttúra endar svona: Ég er upp i sveit að elta gamla geit. Ilmur er úr grasinu og sólin alltof heit. „Heyrflu, gófli. Svona fiskar aiga nú ekki afl hætta sór upp úr laxa- stiganum." 48. tbl.Vikanll

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.