Vikan


Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 19

Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 19
„Já, ég er satt að segja mjög feiminn. Það mætti ætla annað þegar ég er að fíflast uppi á sviði en þá er ég ekki ég sjálfur, þá er ég þessir karakterar sem ég hef skapað.” — En hvernig er þð þú sjálfur? ímyndin, er hún ólík sjálfum þór? „Bæði og. Eg er auðvitað að ein- hverju leyti svona en aö öðru leyti alls ekki. En ímyndin er sterk og ef ég er ekki eitthvað að grínast finnst fólki stundum að ég sé mjög Uppfullur af helgislepju. alvarlegur og þungur. „Ertu í fýlu?” er ég þá gjarnan spurður. En satt að segja held ég að ég sé ósköp venjulegur maður og eins og aðrir get ég verið afskaplega alvarlega þenkjandi. Það getur komið út sem þumbaraskapur en það er þá feimninni að kenna. Kannski hélt ég að feimnin myndi lagast ef ég færi út í þennan skemmtibransa.” — Er feimnin þá kannski það sem þú ert óánægöastur með í fari þinu? „Já,” svaraði Laddi algerlega feimnislaust. „Ég hef þurft að berjast við helvítis feimnina frá því ég var krakki. Og auðvitað hefur mér orðið töluvert ágengt, að minnsta kosti hefur mér tekist að leyna henni með því að fara bara í einhvern karakter þegar svo ber undir. Ég hélt að þetta myndi hverfa þegar ég yrði eldri en hún fer ekki. Ég veit ekki hvað ég á að gera, kannski ætti ég að prófa dáleiðslu.” Og Laddi glotti. — En á hinn bóginn: hvað ertu ánægðastur með i fari þínu? „Ja, það veit ég svei mér ekki. Ætli ég sé ekki bara ánægðastur með hvaö ég er frískur, bæði and- lega oglíkamlega.” — Áhugamál? „Það er þá helst golf. Ég er sjúkur í golf! Ef ég finn mér ein- hvern tíma er ég undir eins kom- inn út á golf völl og stundum stel ég meira að segja tíma frá sjálfum mér til að komast í nokkrar holur. Nú, svo hlusta ég mikið á tónlist.” — Hvernig tónlist? „Einna mest á svokallað létt- djassrokk. Fusion. En annars hlusta ég á allt milli himins og jarðar og hér áður fyrr var ég allt- af með plötu á fóninum. Þá kom það iðulega fyrir að ég vaknaði með heyrnartólin á höfðinu, hafði sofnaö út frá einhverri plötu. Sennilega hlusta ég öllu minna á músík, ég hef einfaldlega ekki tímatilþess.” — Ertu að frá morgni og fram á nótt? „Það má næstum segja það og þegar mest er að gera, eins og núna, dugir sólarhringurinn varla tU.” — Ertu þá ekki moldrikur? „Ég ætti náttúrlega að vera það,” sagði Laddi og hló, „miðað við vinnutímann. En í rauninni er ég það alls ekki. Ég hef það bara ágætt en moldríkur er ég ekki þó sumir virðist halda það. Svo eru aftur á móti aðrir sem eru á þver- öfugri skoðun og trúa því engan veginn að ég geti lifað af þessu. „Hva, ertu ekki í neinni vinnu?” segir þetta fólk og hristir höfuð- ið.” — Þú ert fjölskyldumaöur, er það ekki? „Jú. Viö eigum þrjá stráka.” — Sérðu þá ekki heldur litið af fjölskyldunni þegar mest er að gera? „Jú, ég verð að viðurkenna það. Þetta er oft mikið svekkelsi. Yngsti strákurinn okkar er til dæmis bara rúmlega tveggja ára og það er svona eins og jólin þegar hann hittir mig. Ég held að hann líti á mig sem fjarskyldan ætt- ingja sem kemur með nammi. . .” — En eldri strákarnir — finnst þeim pabbi vera skemmtilegur skemmtikraftur? „Ja, nú veit ég ekki! Þú verður eiginlega að spyrja þá. En þeir hafa að minnsta kosti ekkert á móti því að ég stundi þetta starf og þeir gagnrýna mig líka. Ef þeir sjá mig troða upp segja þeir mér ef þeim hefur fundist atriðið gott og eru sömuleiöis óhræddir viö að láta mig heyra það ef þeir hafa ekki skemmt sér nógu vel.” — En þú sjálfur? Ef þú værir ein- hver annar, heldurðu þá að þér fyndist gaman að Ladda? „Þessu get ég ennþá síður svar- að! En ég hef auðvitað séð sjálfan mig margoft á filmu og jú — ég get stundum hlegið. En sumt er heldur ekki nógu gott.” — Á tímabili var það mikið i tísku i vissum hópum að gera heldur lítið úr þór og öðrum skemmtikröftum og tónlistarmönnum, skallapoppur- unum. Fór það í taugarnar á þér? „Það gerði það stundum, ég neita því ekki. Ég er þeirrar skoð- unar að enginn hafi efni á því að tala illa um náunga sinn. Eg geri það að minnsta kosti ekki. Mér getur fundist eitthvað leiðinlegt en það er út í hött að kalla það vit- laust bara vegna þess. Maður tal- ar ekki svoleiðis um annað fólk. Auk þess enda allir sem skalla- popparar ef þeir halda áfram í músík á annað borð. En sem betur fer hefur ekki borið á þessum röddum núna um langt skeið.” — Og þú ætlar að halda áfram ótrauður? „Já, en ég hef líka áhuga á að breyta örlítið til. Eins og ég gat um vildi ég gjarnan leika meira í venjulegum skilningi, og svo ein- beita mér að svona „showum” eins og því á Sögu. Ég er farinn að þreytast á öllum þeim þeytingi sem fylgir árshátíðabransanum og því öllu saman, enda er ég að mestu leyti hættur slíku. Því fylgir ótrúlegt slit á mönnum og það er ekkert vit í þvi aö vera að slíta sjálfum sér út til lengdar. Svo hef ég bara verið of fyrirferðarmikill að undanförnu.” — Hvað áttu við? „Ég hef bara fundið fyrir því að það hefur verið alltof mikið af mér! Skemmtikraftar eru fáir á Islandi og ég er jafnvel farinn að velta því fyrir mér hvort ég taki pláss frá öðrum sem þora ekki að stíga fyrstu skrefin af því ég er alls staðar! Það er tími til kominn að nýtt blóð komi inn í þessa stétt.” — Hvaða íslanskum skemmti- krafti ert þú sjálfur hrifnastur af? „Ætli það sé ekki Sigurður Sig- urjónsson, og raunar þeir félagar hans líka. Mér finnst hvað mest varið í Sigga sem grínista eða gamanleikara eða hvað á að kalla þetta.” — Nú hlýturðu að hafa sóð skemmtikrafta í mörgum löndum. Hvernig er „standardinn" hór heima? „Hann er mjög góður að mörgu leyti. Við erum þetri en margir aðrir og meira að segja finnst mér flestir bandarískir skemmtikraft- ar yfirleitt síðri þeim íslensku. Að minnsta kosti næ ég ekki þeirra fyndni en það myndi kannski breytast ef ég byggi í landinu í nokkur ár. Bretarnir eru aftur á móti mun fyndnari. Eins og við leggja þeir mikið upp úr því að leika sér að orðum og þeir eru raunar töluvert framar en við að þvíleyti.” — Úr þvi þú minntist á þetta: Fyr- ir nokkrum árum fréttist aö þú hygðir á langt nám í Ameríku. Það hefur orðið minna úr þvi en til stóð? „Já, það varð bara stutt nám í staðinn! Ég fór út fyrst og fremst til aö kynna mér aðstæður og ætl- aði svo út aftur en þá varð ýmis- legt til að tef ja fyrir mér. Viö eign- uðumst til dæmis lítið barn og fleira varð til að draga þetta á langinn. Það er bara svo mikið að gera hér! En ég er ekki alveg bú- inn aö gefa þetta upp á bátinn enn- þá. . .” — Ein lokaspurning. Heldurðu að þú veröir enn að grinast á elliheimil- inu? „Ætli ég verði þá ekki búinn með grínið,” sagði Laddi svolítið smeykur á svipinn. „Ég er mjög hræddur um aö ég verði afskap- lega fúll gamall karl, pirraður og geðstirður...” 48. tbl. Vikan 19
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.