Vikan - 04.12.1985, Síða 20
Allir eiga misjafna
daga, góða og slæma.
Allir eru misvel upp-
lagðir. En ef þér finnst
þú vera sérstaklega
hverflynd persóna eða
býrð með hverflyndri
manneskju geta þessir
punktar hjálpað þér.
Viö fáum öll þunglyndisköst.
Þau eru hluti af lífinu. Við búum
öll við geðsveiflur. Ekkert líf er
kyrrstætt.
Margir hafa áhyggjur af þung-
lyndisköstum sínum. Sumir hafa
jafnvel verið svo ólánsamir að
vera ávítaöir af sínum nánustu
vegna sveiflna í tilfinningalífinu.
Er þetta þá einhvers konar
skapgerðargalli?
Nei, við erum öll meira og
minna háð geðsveiflum. Það er
ekki hægt að ætlast til að vera allt-
af í toppformi. Það munu alltaf
koma þær stundir sem þér líður
betur, vinnur betur og hugsar
skýrar en annars. Þetta er stað-
reynd.
Að mótmæla þunglyndi og kref j-
ast alltaf fullrar afkastagetu af
sjálfum okkur getur ekki leitt af
sér annað en vonbrigði og leiðindi.
Þunglyndi stafar af mismunandi
ástæðum. Aðstæður geta komið
því af stað. Það getur verið í sam-
bandi við viðbrögð okkar gagn-
vart annarri manneskju eða það
brýst bara fram óboðið frá undir-
meðvitundinni.
Ef þú hefur lengi verið undir
miklu álagi og orðið mjög þreyttur
máttu ekki búast við að vera í góðu
líkamlegu formi fyrr en þú hefur
hvílst. Þú verður hvorki kátur og
jákvæður né auðveldur í um-
gengni fyrr en þú hefur slakað á
og hvílst.
Þegar einhver á heimilinu fær
þunglyndiskast er það góðverk að
reyna að gera sem minnst úr því
og bíða þolinmóður þangað til
kastið líður hjá.
Það getur komið fyrir að ein-
hvers konar afturkippur komi
okkur í uppnám eða við heýrum
af tilviljun einhverja athugasemd
sem við túlkum, kannski rang-
lega, sem lítilsvirðingu.
Veðrið hefur áhrif á marga.
Hinn frægi predikari frá Boston,
dr. Phillips Brooks, samdi aldrei
ræðu þegar veður var þungbúið.
Hann vissi að það sem hann semdi
þá myndi verða eins leiðinlegt og
tilbreytingarlaust og sjálfur
dagurinn.
Aðrir þjást af skapstyggð sem
virðist ekki stafa af neinu sér-
stöku. Þeir verða mjög miður sín
ef fundið er að við þá.
Þegar maður er í uppnámi er
best að viöurkenna það fyrir sjálf-
um sér fyrst, síðan að reyna að
komast til botns í því af hverju
ástandið stafar í stað þess aö
reyna að afsaka það.
Margar geðsveiflur okkar
snerta yfirborð tilfinninga okkar
og eðli þeirra er auðvelt að upp-
götva. Orsakir annarra, sem
svella upp úr undirmeðvitundinni,
getur verið erfiðara að skýr-
greina.
Reyndu að finna orsökina. Það
tekst oft ef þú leitar hennar jafn-
skjótt og þú verður þess var að
eitthvað er að.
Neitaðu að láta geðsveiflur
þínar stjórna lífi þínu. Taktu
heldur við taumunum sjálfur.
Hafðu hugfast, þegar þunglyndi
sækir á, að þú munir ranka við
þér, hvort sem þér finnst þú geta
það eða ekki. Veittu því athygli að
þú ert ekki alveg með sjálfum þér
og viðurkenndu að eitthvað þarf
að gera í málinu.
Leggðu áherslu á hið jákvæða
Næst þegar þú stendur þig að
því að hugsa neikvæðar hugsanir í
sambandi við erfiðleikana í lífi
þínu, svo sem um hversu erfitt
fólk geti verið í umgengni, líkam-
lega vanlíðan þína og að þú sért nú
tekinn að eldast, reyndu þá að
snúa dæminu við. Neyddu sjálfan
þig til að leggja áherslu á það já-
kvæða í staðinn.
Læknir nokkur, dr. Peale, sagði
frá því að hann hefði eitt sinn
borðað kvöldverð með hjónum á
veitingahúsi. Eiginmaðurinn var
með aðfinnslur allt kvöldið. Hann
fann að matnum, þjónustunni og
dragsúgnum sem hann sat í. Þeg-
ar hann fór frá borðinu smástund
sagði eiginkonan: „Þér verðið að
afsaka manninn minn, dr. Peale.
Hann ber þungar byrðar á herðum
sér. Hann er mikill framleiðandi.”
„Jæja,” svaraði dr. Peale. „Hvað
er það sem hann framleiðir?”
„Eigin óhamingju,” svaraði hún.
Sumir virðast þurfa nýtt sjónar-
horn. Reyndu af fremsta megni að
leiða hjá þér kaldranalegar,
örvæntingarfullar og daprar
hugsanir. Einbeittu þér heldur að
uppörvandi hugsunum.
Reyndu að sjá hlutina með
augum annarrar persónu. Þú
verður að vera sannfærður um
nauðsyn þess að komast út úr
þunglyndinu. Það eykst bara
annars. Því meira sem þú sökkvir
þér niður í það því verra verður
það.
Reyndu að koma fram eins og
þú sért sæmilega ánægður með líf-
ið, þó að svo sé ekki. Tilfinningar
okkar fylgja aðgerðum okkar.
Hinn frægi ameríski sálfræðingur,
William James, sagði: „Tjáning
geðshræringar dýpkar hana, aftur
á móti minnkar neitun tjáningar
geðshræringuna.”
Ef við hugsum mikið um dökku
hliðarnar og leyfum okkur að
hreyta ónotum í þá sem í kringum
okkur eru er alveg víst að þung-
lyndið eykst. En ef við stöndum
bein í baki, ef við reynum aö brosa
og vera viðmótsþýð — jafnvel þótt
við séum ekki í skapi til þess — ef
við gerum okkar besta til að tala
glaðlega og kurteislega, þá mun
skapið léttast og okkur mun von
bráðar líða betur.
Þegar þér líður illa skaltu ekki
treysta á tilfinningarnar. Notaðu
heldur skynsemina. Veldu hina
rökréttu leið út úr hugarástandi
þínu og eins fljótt og hægt er.
Láttu eins og þér líði betur eða
eins og þú vilt að þér líði.
Sumt hverflynt fólk segist vera
slæmt á taugum. Maður getur
sagt: „Taugarnar eru bara alveg
búnar.” Þarna er það hugsunin
sem þarfnast leiðréttingar.
Ef hugsanir þínar eru allar á
ringulreið verður erfitt fyrir þær
að senda út skipuleg taugaboð.
Boðin, sem send eru, ruglast þess
vegna. Og afleiðingin verður sú að
þú verður spenntur, stressaður og
allur í uppnámi.
Taugaveiklun af þessu tagi
stafar af hugsunum okkar. Þegar
við hugsum rólega, skipulega og
markvisst losnum við við spennu
og taugaveiklun.
Eitt í einu
Ef þér finnst þú hafa of mikið að
gera skaltu einbeita þér að því að
koma reglu á hlutina og gerðu
einn hlut í einu.
Kona nokkur segir frá því að
hún hafi verið aö brjálast af
heimilishaldi sínu. Með tvö lítil
börn og eðlislæga óbeit á húsverk-
um kom hún aldrei neinu lagi á
hlutina og var alltaf í tauga-
spennu.
Morgun einn, eftir að eigin-
maður hennar var farinn til vinnu
sinnar, settist hún inn í eldhús og
hágrét. Henni fannst hún ekki geta
meira. En þá fékk hún innblástur.
Af hverju ekki aö láta sem svo að
það eina sem hún þyrfti að gera
væri að taka til í eldhúsinu? Það
ætti ekki að vera svo erfitt.
20 Vikan 48. tbl.