Vikan - 04.12.1985, Síða 21
Hún lokaði dyrunum og byrjaði
að vinna, og útilokaöi um leið
hugsanir um aðra hluta hússins. Á
skömmum tíma var hún búin, eld-
húsið var hreint og gljáandi. Þetta
hafði ekki verið svo erfitt.
Full af eldmóði vegna velgengni
sinnar byrjaði hún á næsta her-
bergi á sama hátt, einfaldlega
með því að taka eitt verk í einu
eins og það væri það eina sem
gera þyrfti. Hún gat lokið þessu
líka. Taugaveiklun hennar hvarf.
Hún réð ferðinni í stað þess að láta
húsið ráða yfir sér.
Ef þú hefur mikiö að gera skaltu
flýta þér hægt. Taktu hvert verk
eins og það sé það eina sem þú
þarft að gera. Venjulega er lítill
vandi að ákveða hvað næst þurfi
að gera.
Fylltu hug þinn af jákvæðum
hugsunum svo að þær síist niður í
undirmeðvitundina. Þar munu
þær stuðla að góðri heilsu og vel-
líðan hjá þér. Ekki er hægt að of-
meta þá venju sem jákvæöur lest-
ur og hugleiðsla strax á morgnana
er. Slík venja getur komið í veg
fyrir taugaspennu. Endurtekning
á kvöldin getur verið mjög til
góðs.
Reyndu að byggja upp jákvætt,
persónulegt lífsviðhorf. Það er í
raun og veru alveg eins auðvelt og
að vera neikvæður einstaklingur.
Jákvæð hugsjón og innri viðhorf
hjálpa til að byggja upp lífsþrótt
og færa gleði inn í líf okkar.
í kvikmyndinni Seventh Heaven
vinna tvær sögupersónurnar,
Chicho og Rat, í holræsum
Parísarborgar. Einn daginn dett-
ur Rat og er að berast í burtu
þegar vinur hans kemur honum til
hjálpar. Á meðan þeir sitja á
bakkanum og þurrka föt sín segir
Chicho Rat frá lífsviðhorfi sínu.
„Veistu það, Rat,” segir hann,
„það er rétt að ég vinn í hol-
ræsinu en ég bý meðal stjarnanna.
Fyrir þá sem vilja er stigi sem
liggur frá undirdjúpunum upp í
hæstu hæðir; frá holræsinu og upp
til stjarnanna. En á meöan þú klíf-
ur stigann verðurðu að horfa upp
til stjarnanna. Ég lít aldrei niður
heldur alltafupp.”
Þetta er kannski heilaspuni en
þetta er gott lífsviðhorf. Ef þér líst
ekki á blikuna, reyndu þá að líta
upp á við.
Með jákvæðum grundvallarlífs-
viðhorfum, með því að fylla
stöðugt hugann af jákvæðum
hugsunum og staðhæfingum og
með því að einbeita sér að því aö
ráða yfir eigin lífi og móta það
eins og þú vilt hafa það, getur ekki
brugðist að þú náir stjórn á geð-
sveiflum þínum. Jafnvel þegar
þunglyndi sækir á eöa þú verður
fyrir einhverju áfalli ættirðu að
komast aftur í gang mjög fljótlega
í áttina aö takmarki þínu: að lifa
þróttmiklu lífi og hamingjusömu.
Lausn vandamála
Þú mátt ekki halda að þú sért ein-
stakur, að enginn annar eigi við
svipuð vandamál að stríða og þú
eða sé í jafnerfiðri aðstöðu og þú.
Reyndu að viðurkenna að ef þú lít-
ur í kringum þig sjáirðu aðra með
sömu eða svipuð vandamál. Þetta
eitt hjálpar okkur til að sjá allt í
réttum hlutföllum.
þú mátt ekki reyna að gleyma
vandamáli. Ef það er stórt tekst
þér það heldur aldrei. Það mun
halda áfram að vera til staðar og
valda þér óþægindum. Það mun
líka sýnast vaxa því lengra sem
líður.
Reyndu að viöurkenna að
árangursríkasta leiðin við að
leysa vandamál er að kannast við
það og brjóta það til mergjar.
Líttu á staðreyndir og vertu
heiðarlegur við sjálfan þig.
Þú mátt ekki gera neitt af skyndi-
hvöt. Við gerum það vegna þess að
við erum hrædd eða vegna þess að
við erum búin að fá nóg og getum
ekki beðið með að enda þetta ein-
hvern veginn. En þú getur séð
eftir skyndiákvörðun í mörg ár.
Reyndu að viðurkenna þörf þína
fyrir að hugsa málið frá byrjun til
enda áður en þú tekur ákvörðun.
Taktu þér nægilegan tíma. Þú
veröur að vega og meta. Leitaðu
faglegra ráða ef með þarf.
Þú mátt ekki láta ímyndunaraflið
hlaupa með þig í gönur. ímynd-
unaraflið getur hjálpað en því
verður að halda í skefjum.
Reyndu að viðurkenna nauðsyn
þess að vera algerlega raunsær og
jarðbundinn. Finndu út hvað hægt
er að gera. Þegar þú hefur tekið
ákvöröun skaltu framfylgja henni
strax.
Þú mátt ekki láta fordóma hafa
áhrif á þig. Fordómar blinda og
koma í veg fyrir að við sjáum
heildarmyndina.
Reyndu að viðurkenna að vanda-
málin eru auðveldari viðureignar
þegar okkur fellur vel við fólk.
Reyndu að minnsta kosti að viöur-
kenna sjónarmið annarra.
Þú mátt ekki kenna öðrum eða
utanaðkomandi aðstæðum um allt
sem fer úrskeiðis í lífi þínu.
Reyndu að viðurkenná að sjálfs-
skoðun er nauðsynleg til að upp-
götva orsök vandamáls og hvernig
það verður best leyst.
ondrot*W., , senn
eldhússtorím. P yandari,
grænmetisW
haktave\> .mingabok
oriÍS'ena>t"'^9Ír'
meVtP^Wr 4.900-
Verð íra Wr.
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A Sími 16995
48. tbl. Vikan 21