Vikan


Vikan - 04.12.1985, Page 22

Vikan - 04.12.1985, Page 22
„Þá fann hann sig svifa upp í horn herbergisins en sá þó hvar likaminn sat eftir." M artin Berkofsky er 42 ára gamall Ameríkani sem hefur búið hér á landi síðustu sjö árin. Hann er: tónlistarmaður, af Guðs náð, mótorhjóla- gæi, maður sem gefur, hvort heldur er fé sitt, vinnu sína eða af góðleik sínum. Hann er ,,radíóamatör'', píanókennari og síðast en ekki síst þá skreppur hann út úr líkamanum annað slagið og sér sjálfan sig sitja eftir við hvaðeina sem hann aðhefst í það og það skiptið. >■ /, / Á æskuheimili Martins var sígild tónlist í hávegum höfð og píanó var til á bænum. Strákurinn hljóp annað slagið í hljóðfærið og hóf að raða saman tónum á þann hátt að ýmsum þótti gott vera. Hann var þá sendur til píanó- kennara og þaðan áfram í tón- listarháskóla. Á Fulbright-styrk hélt hann í tónlistarakademíuna í Vín en þoldi nú aðeins við í tvo mánuði. Hann vildi sem sé ekki lúta því „að vera þjálfaður í að leika píanóbókmenntirnar nákvæmlega eins og allir hinir nemendurnir”. Setningar eins og „ertu að spila tónlist eftir Beet- hoven eða sjálfan þig?” fannst honum að væru fram settar til að hræða nemendur frá því að segja nokkurn tíma nokkuð frá eigin brjósti í spilamennskunni. Svo hann fékk sér mótorhjól, ferðaðist um Alpana og lét fjöllin svara þeim spurningum sem kennararnir höfðu aðeins haft stööluö svör við, lét hrífast af hvort sem var hrikaleik eða fín- Sá og heyrði sjálfan sig leika Martin Berkofsky segirfrá Texti: Jón Karl Einarsson Myndir: RagnarTh. leik náttúrunnar og fann þar inn- blástur til sköpunarþrár í tón- listinni. Sá hvar líkaminn sat eftir Til Islands kom hann fyrst sem einleikari, og þá til Akureyrar, og síðan aftur þangað sem leiðbein- andi á píanónámskeiði. Á Akur- eyri gerðist það í fyrsta sinn á tón- leikum að hann fann sjálfan sig hverfa smátt og smátt úr líkamanum og sá sig sitja í mjög óvenjulegri stellingu við hljóm- borðið. Einnig þótti honum sem hann slægi á nýjan hátt og fengi út hljóm sem hann ekki hafði fyrr þekkt. Fyrsta reynsla Martins á þessu sviði hafði verið nokkrum árum áður vestur í Bandaríkjunum er hann var að lesa bók um skylt efni. Þá fann hann sig svífa upp í horn herbergisins en sá þó hvar líkaminn sat eftir. Þetta varði aðeins skamma hríð og eftir að ástand hans var orðið eðlilegt var hans fvrsta hugsun að segja engum heilbrigðum manni frá. Hann segist ekki hafa orðið hræddur þá og aldrei síðan við þetta fyrirbæri, fremur óttast þá tilhugsun að enginn maður vildi trúa honum. Svar Martins við því hvað í raun og veru væri þarna að gerast og hvort ekki væri um einfalda ímyndun að ræða er þetta: „Margir listamenn, skáld, tón- skáld og myndlistarmenn telja innblástur ekki bara hugarástand eða geðsveiflu heldur óskil- greindan kraft sem geti þess vegna komið annars staðar frá en úr þeirri „vídd” sem við lifum í. Vísindamenn viðurkenna einnig að mannsandinn, „hið loftkennda tilvera okkar”, sé enn órannsakað efni. Þar um séu mun fleiri spurn- ingar en svör.” Þetta leiðir athygli okkar aftur að því sem gerðist á Akureyri því Martin var ekki sá eini sem skynjaði ástand sitt á tónleikunum. Skólastjóri tónlistarskólans, Jón Hlöðver Áskelsson, kom til hans í hléinu og spurði hvað hefði gerst í hæga kaflanum. Honum og fleirum í salnum hefði fundist sem ein- 22 ViKan 48. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.