Vikan


Vikan - 04.12.1985, Qupperneq 27

Vikan - 04.12.1985, Qupperneq 27
fjölþættar gáfur til aö bera en skortir úthald til að fylgja þeim eftir, hættir til að dreifa kröftun- um um of með því að fara úr einu í annað og verður oftar en ekki minna úr verki en í fljótu bragði gæti virst. Það er gefið fyrir skemmtanir og ferðalög, nokkuð áhrifagjarnt, glaölynt, röggsamt og góðgjarnt en dálítið framhleyp- ið og ráðrikt. Lífsstarf ölíklegt er að börn dagsins staldri lengi við á hverjum vinnu- stað. Þau leggja fyrir sig mörg störf og margvísleg, sinna þeim af alhug meðan áhuginn varir og hafa vit á aö forða sér áður en allt fer að hjakka í sama farinu. Tak- ist þeim að temja sér þolinmæði geta þau náð langt á ýmsum svið- um, einkum í ferðaþjónustu og viðskiptum. Ástalíf Þetta fólk skemmtir sér mikið og kynnist mörgum. Það hefur ósvikinn áhuga á hinu kyninu og lendir trúlega oft í skammvinnum samböndum. Það hefur alla möguleika á farsælu hjónabandi en bregði eitthvað út af því hikar það ekki við að láta makann róa. Heilsufar Verði þetta fólk lasið, sem ekki er oft, fær það oftast háan hita, ekki þó langvarandi. Það hefur til- hneigingu til að fá æðahnúta og ætti aö fylgjast með fótunum. 30. NÓVEMBER Skapgerð Afmælisbarn dagsins lætur hverjum degi nægja sína þján- ingu, gengur vasklega fram, að hverju svo sem það snýr sér, ör- uggt og frjálslegt í fasi. Það er fé- lagslynt, hrókur alls fagnaðar og veltir lítt fyrir sér hvað öðrum kann að finnast um orð þess og athafnir. Þetta fólk á sér ótal áhugamál og sinnir þeim af kappi meðan áhuginn endist en oft dett- ur botninn úr öllu saman og hugur- inn er upptekinn við eitthvað allt annað áður en sér fyrir endann á síðasta verki. Lífsstarf Þetta fólk er líklegt til að gegna vel launuðu starfi, ekki þó í versl- un. Ennfremur bá búast viö að það stundi kennslustörf einhvern tíma á ævinni, tæplega þó sem aðal- starf. Það kýs trúlega fremur stuttar námsbrautir en er lagið að koma ár sinni svo fyrir borð að því standi ýmsar dyr opnar. Ástalíf Barn dagsins er sannkallaður hamingjuhrólfur og fáum lánast betur samskiptin viö hitt kynið. Það er vinsælt og víða aufúsugest- ur, velur sér maka að vandlega yfirveguðu ráöi og leggur áherslu á að eiga fallegt og notalegt heim- ili, annað mál hvort það tollir mik- ið heima hjá sér. Heilsufar Mjög getur brugðið til beggja vona meö heilsuna, líkaminn er ekki sérlega sterkur en með góöri meðferö má draga verulega úr hættu á áföllum. Búast má við ýmsum innvortis sjúkdómum, einkum eru nýrun viðkvæm. Skapgerð Þeir sem fæddir eru þennan dag eru ákaflega traustir og þægilegir í umgengni og viðskiptum öllum. Þetta er fæddir foringjar og tekst að stjórna nánast öllu í kringum sig og það án þess aö aðrir taki eft- ir því. Háttvísin þregst þessu fólki varla, það er smitandi lífsglatt og á auðvelt með aö hrífa aðra með sér. Lífsstarf Best hæfir börnum dagsins aö starfa þar sem umfangsmikill og fjölþættur rekstur fer fram. Þau leggja sig fram við vinnu, klifra hratt og örugglega upp metorða- stigann og ná auðveldlega áhrif- um meðal málsmetandi manna. Ekki spillir að fjárhagurinn verð- ur að öllum líkindum góður því að afmælisbörnin kunna því betur að hafa töluvert fé milli handanna. Ástalíf Tryggð og staðfesta í ástum ein- kennir fólk dagsins. Gott hjóna- band og ánægjulegt heimilislíf bíð- ur þess þótt ekki sé líklegt að fjöl- skyldanverðistór. Heilsufar Þetta fólk skyldi varast að of- bjóða taugakerfinu og ætti aö ætla sér af í vinnu gruni það að taug- arnar séu að gefa sig. Mjaðmar- liðimir gætu lika angrað það þegar líða tekur á ævina. 2. DESEMBER Skapgerð Þeir sem fæddir eru þennan dag setja markið hátt og hika ekki viö að tefla á tvær hættur í von um ávinning. Þetta er kurteist fólk og siðavant, lætur ekki snúa sér hafi það bitið eitthvað í sig en synd væri aö segja það umburðarlynt gagnvart göllum og áviröingum annarra. Það er hugkvæmt og út- sjónarsamt en hefur tilhneigingu til að taka óþarfa fjárhagslega áhættu. Lífsstarf Þessu fólki er ýmislegt til lista lagt og fæst við sitthvað ólíkt um dagana. Það háir því gjarnan að það er ekki staðfast hvað vinnu snertir og sættir sig illa við reglu- bundinn vinnutíma. Best unir það sér í störfum sem fylgir tilbreyt- ing og ferðalög og það kappkostar að tengja saman starf og áhuga- mál. Ástalíf Börn þessa dags njóta hylli hins kynsins og kunna því vel. Þau gætu gifst oftar en einu sinni en láta þó ekki mótbyr á sig fá, sé hann innan viðráðanlegra marka. Heilsufar Heilsan verður í stórum drátt- um góð og fólk dagsins hristir af sér flestar pestir. 3. DESEMBER Skapgerð Undirferlislaust og velviljað er það fólk sem fætt er þennan dag. Það er töluvert geðríkt en ljúf- mannlegt í framkomu og á auðvelt með aö setja sig í spor annarra. Það er félagslynt og hefur áhuga á heilsurækt og íþróttum. Takist því að aga sjálft sig nægilega vel til að fylgja ákvörðunum sínum eftir mun því farnast vel og lifa í sátt við sjálft sig og umhverfið. Lífsstarf Verslunarstörf liggja vel við þessu fólki. Þaö á gott með að um- gangast aðra og sómir sér því ágætlega þar sem margt er um manninn og annast þarf fyrir- greiðslu af einhverju tagi. Börn dagsins hafa venjulega góðar reið- ur á fjármálum sínum og er oft falin ábyrgð á f jármunum. Ástalif I ástamálunum á þetta fólk ýmsa möguleika og nokkuð er misjafnt hver framvindan verður. Þótt ekki sé hægt að kalla það fjöl- lynt er líklegt að fleiri en einn af gagnstæðu kyni komi við sögu. Barnmörg eru afmælisbörnin ekki nema þau bindi trúss sitt við ein- hvern sérlega frjósaman. Heilsufar Sterkleg líkamsbygging kemur að góöu gagni við að tryggja börn- um dagsins góða heilsu en áfengi og vímuefni ættu þau að varast. 4. DESEMBER Skapgerð Barn þessa dags er áræðið, iðið og með ríkulegan metnað. Það gleypir ekki hrátt þaö sem að því er rétt heldur rannsakar öll mál og tekur sjaldan afstöðu fyrr en eftir rækilega umhugsun. Það kann vel að meta góðan félags- skap en er þó í eðli sínu einfari, un- ir því vel og er sjálfu sér nægt. Leti er eitur í þess beinum. Lífsstarf Þetta fólk getur aldrei orðið ánægt í einhæfu starfi, til þess er starfið of mikill hluti af lífi þess. Það hefur gott viðskiptavit og sýni það fulla gát viö meðferð fjár- muna vegnar því vel á því sviði. Sennilega sækir fólk dagsins drjúgan hluta lífsfyllingarinnar í störf utan heimilis. Ástalíf Afmælisbörnin eru býsna djarf- tæk í ástum og byrja mörg hver snemma að leita fyrir sér. Þau láta sér varla nægja eina sambúð eða hjónaband og skotra augunum gjarna í fleiri áttir en sómakæru fólki þykir hæfilegt. Eins og gefur að skilja gengur á ýmsu í hjóna- bandi og árekstrar eru tíðir, ham- ingjan gengur samt engan veginn á svig við þetta fólk þótt hvers- dagsfólki sé um megn að skilja þaö. Heilsufar Vímuefni hvers konar skyldi þetta fólk forðast og ekki leggja of mikið á taugakerfið. Að því til- skildu er ekki við öðru að búast en heilsan verði góö. 48. tbl. Vikan 27
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.