Vikan - 04.12.1985, Blaðsíða 36
Smári Stefánsson, gestur kökublaðsins:
Kökurnar eru hans sérgrein
Smári Stefánsson er með
Smárabakarí á Kleppsveginum.
Hann bakaði kökuna sem Laddi
er að narta í á forsíðu Vikunnar.
Hann töfrar einnig fram val-
hnetutertuna sem hann heldur
á á myndinni hér á síðunni.
Áður en Smári stofnaði bak-
ariið starfaði hann í nokkur ár
fyrir danskt fyrirtæki. Fór sem
sýningarbakari um allt land og
sýndi möguleika úr efnum sem
fyrirtækið flutti til íslands.
— Hvenær fórstu að læra og
hvar?
,,Það eru orðin tuttugu ár
síðan. Þegar ég var búinn að
læra hér heima fór ég til Dan-
merkur og var þar í eitt ár á
SAS hótelinu í Kaupmanna-
höfn, var þar í kökugerðinni."
— Áttu einhverja sórgrein?
,,Já, kökurnar. Ég lagaði
kökur í sextán ár fyrir Hressing-
arskálann."
— Er íslenskur smekkur likur
þeim danska?
,,Nei, hann er öðruvísi. Það
verður að móta stefnuna sér
fyrir íslendinga. Danir eru meira
í smjörkremi og slíku."
— Af hverju er fólk hrifnast?
„Vínarbrauðin eru landsfræg
og terturnar njóta mikilla vin-
sælda. Vínarbrauðin eru eigin-
lega alveg mitt patent frá því að
ég byrjaði niðri á Skála. Þau
urðu strax fræg."
— Vinnutími bakaranna er mjög
erfiður, er það ekki?
„Jú, hann getur orðið lang-
ur. Við förum upp klukkan þrjú
á morgnana og við erum að
kannski til sex á kvöldin."
Og þá lítum við á uppskrift
Smára:
Valhnetuterta
Svampbotn:
4egg
175 g sykur
60 g kartöflumjöl
60 g hveiti
1 tsk. lyftiduft.
Þeytið saman egg og sykur
þar til það er Ijóst og létt. Bætið
hveiti, kartöflumjöli og lyfti-
dufti saman við og hrærið var-
lega þar til allt hefur blandast
en ekki lengur. Bakið í stóru
formi (eða tveimur) við 225° í
6—8 mínútur.
Skerið svampbotninn í
þrennt.
Fylling:
1 /21 rjómi
50 g flórsykur
150 g hakkaðar valhnetur
4 blöð matarlím
um 100 g apríkósumarmelaði
300 g kransakökumarsipan
Krem:
Þeytið saman rjóma og flór-
sykur, bræðið matarlímið. Látið
það kólna lítið eitt og hellið því í
mjórri bunu saman við rjóm-
ann. Bætið valhnetunum út í.
Setjið þunnt lag af apríkósu-
marmelaði á neðsta svamp-
botninn og hneturjóma þaryfir.
Setjið aðeins rjóma á næsta
botn og afganginum af hnetu-
rjómanum er smurt ofan á efsta
botninn. Fletjið út kransaköku-
marsipan og leggið yfir kökuna.
Kakan er að lokum skreytt að
vild, til dæmis með því að lita
marsipan og búa til blóm og
lauf.
36 Vlkan 48, tbl.