Vikan - 04.12.1985, Page 58
Vídeó-Vikan
Vinsælir leikarar:
DIANE KEATON
Þegar Woody Allen kom fram meö mynd
sína, Annie Hall, þar sem hann lék, eins og
yfirleitt í sínum myndum, aðalhlutverkiö, þá
lá við að hann hyrfi alveg. Allra athygli beind-
ist að leikkonunni sem lék titilhlutverkiö. Hún
hét Diane Keaton og hafði ekki náð verulegri
frægö fyrr. Það var ekki nóg með að leikur
hennar væri stórkostlegur, sumir gengu svo
langt að segja að hún hefði meö hlutverki sínu
skapað nýja tegund sjálfstæðrar konu. Fyrir
hlutverk sitt sem Annie Hall fékk Diane
Keaton margs konar verölaun, meðal þeirra
hin eftirsóttu óskarsverðlaun.
Diane Keaton er komin af miðstéttarfólki í
Bandaríkjunum. Hún fæddist 1946 í Los
Angeles og var skírð Diane Hall. Var hún elst
fjögurra systkina. Til að byrja með snerist
allt um söng hjá henni. Hún var í skólakórum
og kirkjukórum á ungra aldri. Þegar leið að
tvítugsaldri fór hugur hennar að stefna á leik-
listina og fyrstu skref hennar á leiksviði voru í
skólaleikritum. Keaton entist aðeins einn
vetur í háskóla, þá hætti hún, ákveðin í að ger-
ast leikkona. Var það með samþykki foreldra
hennar. Hún flutti til New York og tók að
nema leiklist. Hennar fyrsta tækifæri kom
þegar hún tók við af annarri leikkonu í Hair á
Broadway. Það vakti athygli að hún fékk hlut-
verkið þrátt fyrir að hún neitaði að afklæða
sig eins og handritið gerði ráð fyrir.
Næst fékk hún aðalkvenhlutverið í Piay it
again, Sam, einnig á Broadway. Þetta leikrit
átti eftir að verða mjög vinsælt og þar hitti
hún Woody Allen í fyrsta skipti. Úr því varö
samband sem stóð í nokkur ár og lék hún í
nokkrum mynda hans. Þrátt fyrir að þeirra
sambandi sé lokið fyrir nokkrum árum eru
þau enn mjög góðir vinir og stendur Diane
Keaton í mikilli þakkarskuld við Allen sem
hún segir aö hafi átt stóran þátt í að skapa
hana sem leikkonu. Hámark þeirrar samvinnu
er að sjálfsögðu Annie Haii sem er ekki síður
um Diane Keaton en Woody Allen. Eins og
flestir vita eru langflestar myndir Woody
Allen á síðari árum mjög persónulegar.
Meðan á samvinnu Keaton og Allen stóð
lék hún í nokkrum öðrum myndum. Má helst
Lifað hátt
★ ★
THE ADVENTURES.
Leikstjóri: Lewis Gilbert.
Aðalhlutverk: Bekim Fehmu, Ernst Borgnine og Candice Bergen.
Sýningartími: 163 mínútur.
Bækur Harold Robbins bjóða
yfirleitt upp á allt það sem afþrey-
ingarmyndir þurfa. Þaö er kannski
helsti gallinn við The Adventures að
þar er reynt að taka allt sem er í mjög
langri bók og koma því saman í eina
kvikmynd, dæmi sem hlýtur aö mis-
takast. Smáskammtur af stríði, smá-
skammtur af svalli, smáskammtur
af ást, svo mætti lengi telja. Heföi
The Adventures veriö gerö í dag
hefði hún sjálfsagt endað sem
mínisería.
Myndin fjallar um Dax (Bekim
Fehmu) sem barn að aldri flyst til
Evrópu eftir blóöuga uppreisn í
heimalandi sínu, einhvers staöar í
Suður-Ameríku. Hann lifir í fyrstu
ISLCNSKUÍ) TCKTt
áhyggjulausu lífi þess sem ekki þarf
aö hugsa um peninga. Brátt kemur
að því að hann og félagar hans þurfa
að fara aö vinna fyrir sér. Þeir ger-
ast í fyrstu fylgdarsveinar ríkra
kvenna og er öll þjónusta í boði.
1 starfi sínu kynnist Dax ríkustu
konu í heimi sem er ung og fögur. Or
því verður hjónaband sem endar
fljótlega með skilnaöi. Heimkynni
hans eru honum alltaf ofarlega í huga.
Þar er æskuunnusta hans og er faðir
hennar óvinsæll harðstjóri. Eftir viö-
buröaríkan feril sem einn helsti
glaumgosi heims snýr Dax aftur til
heimkynna sinna og tekur þátt í upp-
reisn gegn harðstjóranum. Aöeins til
þess að koma að einum harðstjóra í
stað annars.
Þaö veröur ekki af því skafið að
The Adventures er býsna góð afþrey-
ing og ætti fáum að leiöast þá nærri
þrjá tíma sem myndin tekur.
The Adventures átti að gera stór-
stjörnu úr júgóslavneska leikaran-
um Bekim Fehmu. Það mistókst af
skiljanlegum ástæðum. Manngrey-
inu er sjálfsagt margt annað til lista
lagt en aö leika í kvikmyndum. Það
er margt þekktra leikara í myndinni
og er persónusköpun þeirra frekar
ábótavant, enda hafa þeir ekki mikið
til aö spila úr.
Njósnir í heimsstyrjöldinni
★ ★ ★
THEKEYTO REBECCA
Leikstjóri: David Hemmings.
Aðalhlutverk: Cliff Robertson, David Soul og Lina Raymond.
Sýningartími: 180 minútur (2 spólur).
Skáldsaga Ken Follett, The Key to
Rebecca, er þaö spennandi og vel
gerð að erfitt væri fyrir meöaljóna
aö klúðra kvikmyndagerö bókarinn-
ar. Enda hefur tekist með ágætum aö
koma efninu til skila.
Sögusviðið er Sahara og Egypta-
land í heimsstyrjöldinni síöari. Þýsk-
um njósnara, Alex Wolf (David
Soul), tekst að komast inn fyrir víg-
girðingar Breta umhverfis Kairó og
byrjar strax að gera mikinn usla
meö því að notfæra sér veiklyndan,
breskan yfirmann sem fellur auö-
veldlega fyrir fallegustu magadans-
mey borgarinnar, en hún er á mála
hjá Wolf. Breski foringinn hefur aö-
gang að öllum helstu hernaöaráætl-
unum Breta og komast þær beinustu
leiö til Rommels gegnum skeyta-
sendingar Wolfs.
Harry Vandam (Cliff Robertson)
er yfirmaður leyniþjónustu Breta á
staðnum og hann kemst fljótt að því
hver er að verki. Þaö reynist ekki
auðvelt að komast á spor njósnarans
snjalla sem auk þess að vera njósn-
ari er hinn hættulegasti morðingi
þegar einhver ógnar honum. Loks
tekst Vandam með hjálp ungrar
stúlku, Elenu (Lina Raymond), að
komast á slóð Wolfs. Þegar á að
grípa hann breytir hann um áætlun
og tekst að komast á brott með Elenu
ogungansonVandamsemgísla. . .
The Key to Rebecca er hin besta
afþreying. Söguþráöur er spennandi,
ívafinn rómantík á alla vegu, og
hefur greinilega veriö lagt nokkuð í
myndina. Leikstjóri er David
Hemmings, sem kannski er þekktari
sem leikari enda leikur hann hinn
ólánsama breska liðsforingja sem
lendir í klónum á Wolf. Aðalhlutverk-
in eru í höndum Cliff Robertson,
er leikur Vandam og er leikur hans
kannski aðeins undir hans standard,
og David Soul, er leikur Alex Wolf og
kemur nokkuð á óvart með góöum
leik. Ohætt er að mæla með The Key
to Rebecca sem góðri afþreyingu.
58 Vikan 48. tbl.