Vikan - 04.12.1985, Síða 72
Pósturinn
Um leikara
sem eru
ekki alltaf í
blöðunum
Elsku Póstur!
Okkur langar til að þakka
þér fyrir Vídeó-Vikuna og
stjörnuspárnar. Þannig er
mál með vexti að okkur
langar til að vita einhver
deili á nokkrum leikurum
sem sjaldan eru í slúður-
fréttum dagblaðanna og í
Bravo og þessum þýsku
blöðum.
Spurningarnar eru:
1. Hvaða dag og hvaða ár
eru þeir fœddir?
2. Eru þeir giftir, eiga þeir
börn (sirka hvað gömul)?
3. Hvar búa þeir (land,
borg)?
4. Eru til aðdáendaklúbbar
þeirra og ef svo er, hvar eru
þeir?
Einnig má fylgja einhver
fróðleikur um þá efþið vitið
eitthvað um þá en leikararn-
ir eru þessir:
Michael Caine (The
Honorary Consul), Brook
Adams (Pagan (Heiðna) í
Lace), Phoebe Cates (Lilí í
Lace, Fast Times), Jeff
Bridges (Starman, Against
All Ódds).
Einnig langar mig að vita
hvort til er aðdáendaklúbb-
ur John Lennon, Sylvester
Stallone og Paul McCart-
ney. Svo langar mig að
spyrja hvort það kostar eitt-
hvað að vera í aðdáenda-
klúbbi, hvort maður skrifar
einu sinni eða oftar og um
hvað maður biður eða hvað
maður segir í bréfinu og
hvort maður fái myndir og
einhvern fróðleikþaðan.
Steina, Sigrún
og Matthildur.
P.S. Svo er að lokum tillaga
um að eitthvað af plakötun-
um, sem eru birt, séu af leik-
urum og að frœgir leikarar
(frekar ungir) sem við yngra
fólkið þekkjum verði í smá-
kynningu, svona kannski
eitthvað í svipuðum stíl og
þegar meðlimir Duran
Duran voru kynntir (mynd
og smápistill).
Þið biðjið ekki Póstinn um lítið
en Pósturinn skal reyna að svara
ykkur eftir fremsta megni. Hann
veit þó ekki svör viö öllum atrið-
unum.
Til þess að byrja á því sem
Pósturinn veit minnst um þá er til
að taka Brook Adams. Þrátt fyrir
töluverða eftirgrennslan tókst
Póstinum ekki aö finna neitt um
hana. Hún mun ekki hafa verið
þekkt leikkona áður en hún fékk
hlutverki í LACE. En Pósturinn
lofar því að finnist eitthvað um
hana skal hann koma því til leiðar
aö þær upplýsingar verði birtar í
Póstinum eða á síðum blaðsins.
Phoebe Cates (Lilí) er mun fræg-
ari leikkona. Hún er 22 ára og
byrjaði aö starfa sem módel þeg-
ar hún var 14 ára en fyrsta leik-
hlutverkið fékk hún 16 ára gömul,
í Paradise. Áður en hún lék í
LACElékhún í þremur myndum,
Fast Times at Ridgemont High,
Private School og Baby Sitters.
Síðan hefur hún meðal annars
leikið í Hrekkjalómunum
(Gremlins) sem sýndir hafa verið
í Reykjavík undanfariö. Phoebe er
bandarísk og býr í New York. Hún
er ógift og barnlaus, en um aödá-
endaklúbb veit Pósturinn ekki.
Michael Caine er langþekktast-
ur þessara leikara. Hann er gift-
ur, á nokkur börn og býr í Los
Angeles í Bandaríkjunum (Holly-
wood), en hann er f æddur í London
14. mars 1933. Hann hefur leikið í
rúmlega fimmtíu kvikmyndum
um ævina. Fyrsta myndin hans
var A Hill in Korea (1956) og einna
frægastur er hann fyrir Alfie
(1966), Sleuth (1972) og Educating
Rita (1983). Um aðdáendaklúbb
■ veit Pósturinn ekki.
Jeff Bridges er fæddur 4. desem-
ber 1949. Faðir hans er allfrægur
leikari, Lloyd Bridges, og bróðir
hans er sömuleiðis þekktur leikari,
Beau Bridges. Hann hefur leikið í
um tuttugu kvikmyndum, þeirri
fyrstu 1970. Hann býr í Hollywood
en Pósturinn veit ekki hvort hann
er giftur eða á börn, hvað þá um
aðdáendaklúbb.
Það er rétt að taka það fram að
Pósturinn er alltaf í vandræðum
með aðdáendaklúbba leikara
þannig að ef lesendur luma á ein-
hverju slíku eru þeir vinsamlegast
beðnir að senda Póstinum línu.
Paul McCartney má skrifa til:
EMI Records Ltd., Hayes,
Middlesex, Englandi, eða
Columbia Records, 51 W. 52nd
Street, New York, N.Y. 10019.
Pósturinn hefur ekki fundið
neinn John Lennon-klúbb og með
Sylvester Stallone gildir það sem
hér að ofan var sagt um leikara-
klúbbana.
Venjulega starfa aðdáenda-
klúbbar þannig að fólk skrifar og
biður um að fá að vera með og það
kostar einhverja upphæð, venju-
lega ekki mikið. í staðinn fær það
myndir, fréttabréf eða blöð og oft
ýmislegt annað, svo sem merki,
ekta eiginhandaráritanir og fleira
og fleira skemmtilegt, en það er
mjög mismunandi eftir klúbbum.
Pósturinn kemur tillögum
ykkar um plakötin áleiðis en bend-
ir ykkur á leikarakynningarnar
sem eru alltaf í Vídeó-Vikunni.
Asnalegt
aö biðja ein-
hvem að byrja
með sér
Háttvirti dgrkaði Póstur!
Mig langar að spyrja þig
að nokkru sem ég vona aöþú
svarir. Þegar strákur biður
mann að byrja með sér,
hvernig getur maður þá
svarað ? Mér finnst svo asna-
legt að segja bara já, það
vantar eitthvað svo á þetta.
Ef maður segir já, já, þá er
eins og verið sé að bjóða
manni í bíó eða afmœli.
Maður getur auðvitað haft
þetta mjög auðvelt og sagt:
Eg œtla að hugsa mig um, og
sagt svo seinna: Eg vil byrja
með þér. En ef maður segist
œtla að hugsa sig um þá
heldur strákurinn að maður
sé ekkert œðislega hrifinn af
honum. Svo langar mann
alltaf til að segja já strax ef
maður er hrifinn af strákn-
um. Jœja, nú hef ég þetta
ekki lengra og bið þig að
birta ekki nafnið mitt, að-
eins dulnefnið.
Bœ, bœ.
Roger Taylor.
Pósturinn er satt að segja í smá-
vandræðum með að ráðleggja þér
eitthvað í þessum efnum. Honum
hefur reyndar sjálfum alltaf fund-
ist dálítið skrítið hvernig þetta
gengur fyrir sig, það er að segja
einn biður annan að byrja með sér
svona rétt eins og hann væri aö
bjóöa upp í dans. Hjá eldri krökk-
um og fullorðnu fólki þróast málin
venjulega þannig að fólk hittist,
dansar til dæmis saman og sam-
bandið smáþróast út frá því. Þið
yngri krakkarnir hafið annan
háttinn á, spyrjið að þessu hreint
út. Það getur vitanlega verið
ágætt stundum, en Pósturinn
verður að vera sammála í því aö
þetta getur verið ansi vandræða-
legt. Ef þú ert til dæmis mjög hrif-
in af einhverjum sem biður þig að
byrja með sér, þá er tiltölulega
einfalt mál að segja já við því. En
ef þú ert svona rétt að spá í strák-
inn væri betra að málin fengju að
þróast. Pósturinn veit eiginlega
ekki annaö ráð handa þér en að þú
reynir bara að fylgja samvisk-
unni, fara eftir því sem þér finnst
sjálfri. Ef þú hefur til dæmis nokk-
urn áhuga á einhverjum strák, en
veist ekki hvort þig langar að
byrja með honum á föstu, getur þú
þá ekki bara talað um það við
hann að þér finnist asnalegt að
fara svona að þessu og hvort þiö
getið ekki bara séð til, látið málin
þróast ef þið hafið bæði áhuga. En
hvað finnst öðrum krökkum um
þetta? Strákar og stelpur, sendið
Póstinum línu og segið endilega
skoðun ykkar á þessu fyrirkomu-
lagi, eða hvernig mætti breyta
því.
y////mv.
OP
72 Vikan 48. tbl.