Vikan - 22.01.1987, Blaðsíða 23
Qub Paraáse
Robin Williams hefur hingað til
ekki slegið almennilega í gegn í
kvikmyndum. Hann gerir nú enn
eina tilraun. Club Paradise er
rómantísk gamanmynd er gerist í
suðurhöfum. Meðleikari hans,
sem sést hér á myndinni með
honum, er engin önnur en
Twiggy.
TheFouríh Protocol
Kvikmyndir eftir bókum spennu-
höfúndarins Fredericks Forsyth
hafa yfirleitt verið kærkomnar
unnendum spennumynda. The
Fourth Protocol er sú síðasta í
röðinni. Aðalhlutverkið leikur
Pierce Brosnan sem var vist mjög
nálægt því að hreppa James Bond
hlutverkið í fyrra. Aðrir leikarar
eru Michael Caine og Joanna
Cassidy.
Myndbönd
w J8yW 'v'
THE GOODBYE GIRL ★★★
Leikstjóri: Herbert Ross.
Aöalleikarar: Richard Dreyfuss, Marsha Mason og Quinn Cummings.
Sýningartími: 110 mín. - Utgefandi: Tefli hf.
The Goodbye Girl er bráðskemmtileg gamanmynd er fjallar um sambúð
tveggja listamanna sem utanaðkomandi aðstæður neyða til að búa saman.
Marsha Mason leikur dansara. Leikarinn, sem hún bjó með, hefur yfirgef-
ið hana og ekki nóg með það, hann hefur leigt öðrum leikara, er Richard
Dreyfuss leikur, íbúðina þeirra. Eins og gefur að skilja er leikarinn ekkert
velkominn gestur, sérstaklega vegna þess að hann er leikari. En smátt og
smátt lagast sambúðin og á dóttir dansarans ekki lítinn þátt í því. Handrit-
ið, sem gert er eftir leikriti Neil Simon, er eins og skapað fyrir tvo góða
leikara og svo sannarlega standa þau Mason og Dreyfuss sig í stykkinu.
Nefna má að Dreyfuss fékk óskarsverðlaun fyrir hlutverk sitt í þessari
mynd 1978.
SCRUPLES ★★
Leikstjóri: Alan J. Levy.
Aðaileikarar: Lindsey Wagner, Barry Bostwick og Marie-France Pisier.
Sýningartími: 270 min. (3 spólur). - Utgefandi: Tefli hf.
Scruples er þriðja míniserían sem gerð er eftir skáldsögu eftir metsöluhöf-
undinn Judith Krantz. Hinar fyrri voru Mistrals Daughter og Princess
Daisy og hafa þær notið mikilla vinsælda á myndbandaleigum. Scruples
ætti ekki að valda aðdáendum Krantz vonbrigðum, þótt persónusköpun
sé nokkuð ábótavant. Myndin fjallar um unga stúlku sem brýst úr fátækt
til mikilla valda í viðskiptaheiminum. Ekki spillir ríkur eiginmaður fyrir
henni en hann deyr þó fljótlega. Margir koma við sögu í lífi hennar, gott
fólk sem slæmt eins og vera ber, en allt fær þó farsælan endi að lokum. Það
er Lindsey Wagner er leikur aðalhlutverkið og er hún eiginlega eini leikar-
inn sem sýnireinhverja hæfileika til leiks. Það ætti samt ekki að hindra
áhorfendur í að hafa gaman af, sérstaklega hafi þeir hrifist af fyrri afrekum
Judith Krantz.
TOPAZ ★★
Leikstjóri: Alfred Hitchcock.
Aðalleikarar: Frederick Stafford, John Forsythe og Dany Robin.
Sýningartími: 124 mín. - Útgefandi: Laugarásbíó.
Það eru ekki margar senur í Topaz er minna okkur á að leikstjóri mynd-
arinnar er enginn annar en Alfred Hitchcock. Myndin er frekar daufur
njósnaþriller sem byggður er á sönnum atburðum skrifuðum af Leon U ris.
Bókin vakti mikla athygli á sínum tíma en þar er fjallað um mikinn leka
í frönsku leyniþjónustunni og svo uppljóstranir í hinni margfrægu Kúbu-
deilu. Þetta hefði átt að vera kjörið verkefni fyrir meistara spennumyndanna
en honum geta eins og öðrum verið mislagðar hendur og Topaz verður því
að teljast til minni háttar verka hans. Ekki þar fyrir að myndin sé neitt
leiðinleg. Hún er að vísu í rólegra lagi til að byrja með en tekur vel við sér
þegar farið er að reyna að komast að því hverjir eru njósnarar innan frönsku
leyniþjónustunnar. Þar koma í ljós hæfileikar Hitchcocks til að magna
spennu. Síst tekst honum upp í þeim atriðum sem látin eru gerast á Kúbu.
POLICE ACADEMY 3 ★
Leikstjóri: Jerry Paris.
Aðalleikarar: Steve Guttenberg, Bubba Smith og David Graf.
Sýningartími: 80 min. - Útgefandi: Tefli hf.
Fyrsta myndin um lögregluskólann var mjög fyndin gamanmynd en strax
í annarri myndinni kom í ljós að nýjar hugmyndir í sambandi við hina
nýútskrifuðu lögreglumenn voru vandfundnar. Þess vegna er brugðið á það
ráð í þriðju myndinni að hverfa aftur á skólabekkinn. En nýjar hugmyndir
eru einnig vandfundnar þar. Munurinn er aðeins sá að fyrrverandi nemend-
ur eru orðnir kennarar og við það dettur allur botn úr myndinni. Engin leið
er að gera mun á kennurum og nemendum og er maður í vafa um hvor
hópurinn er heimskari. Nýju nemendurnir eru í heild leiðinlegur hópur lít-
illa gamanleikara. Að vísu er reynt að krydda myndina með einvigi milli
tveggja lögregluskóla en það fer fyrir ofan garð og neðan hjá áhorfandan-
um. Police Academy 3 hlýtur því að vera endahnúturinn á þessari
myndasyrpu sem hófst svo vel en endar í algjöru hugmyndaleysi.
ALFRED HITCIICOCKS
! TOPAZ!
4. TBL VIKAN 23