Vikan - 22.01.1987, Blaðsíða 45
Luiz heldur ótrauður áfram að mála þrátt fyrir veikindin.
í húsið sem Luiz, foreldrar hans
og bræður búa í. Ástæðurnar
fyrir því að íjölskylda hans sett-
ist að í Porto Alegre var sú að
hún vildi sjá til þess að hann
fengi þá meðferð sem hann
þurfti við dreyrasýkinni.
Luiz er dökkeygður. Mál hans
er rólegt og öruggt en hann á
erfítt með gang sem er afleiðing
dreyrasýkinnar.
„Við elskum hvort annað,“
segir hann. „Konan mín er ekki
hrædd en ég hef nokkrar áhyggj-
ur. Ég er hræddur um að smita
hana en ég treysti því samt sem
áður að allt fari á besta veg.“
Þau Luiz og Lourdes nota
getnaðarvarnir enn sem komið
er. Lourdes er full bjartsýni og
fjölskylda hennar styður hana.
Lourdes: „Fjölskylda mín tel-
ur að ég hafi brugðist alveg rétt
við. EfLuizlifirmunum við
komast fram hjá hverri hindrun.
Ég á lífið fram undan. Og fyrir
ást okkar er hættan þess virði
að horfast í augu við hana.“
Það eina sem er afar umdeil-
anlegt í þessu sambandi er sú
staðreynd að hjónin vilja eignast
börn. Margir læknar hafa varað
við því að börnin kunni að bera
veiruna þegar þau fæðast. Þó
er ekki víst að svo verði.
Könnun, sem breskir læknar
framkvæmdu, þótti sýna að
smitunartíðni hjá mökum
dreyrasjúklinga með eyðnismit
virtist tiltölulega lág. Niður-
stöður þessarar könnunar
virðast benda til að í flestum
kynvísum samböndum geti fólk
fengið eyðnismit af hinum ein-
staklingnum en hún bendir líka
til þess að eyðni smitist ekki eins
auðveldlega og aðrir kynsjúk-
dómar.
Nokkuð miklar líkur eru á því
að barn smitist í móðurkviði ef
móðirin ber veiruna.
Lourdes hefurekki áhyggjur
af sjálfri sér, til þess er hún of
ástfangin af Luiz. Allar hennar
áhyggjur beinast að því að Luiz
sé sem hamingjusamastur og
hún hugsar stöðugt um hann.
Þau berjast hlið við hlið.
Saga þeirra bendir til þess að
það sé enn til rómantík á okkar
tímum. Luiz og Lourdes sýna
okkur að það er enn tími til að
endurheimta hina mikilvægu
ást. En skjótt verður að bregða
við.
4. TBL VIKAN 45