Vikan


Vikan - 22.01.1987, Side 37

Vikan - 22.01.1987, Side 37
una og hitta kunningjana. Flestir held ég hafi verið mjög ánægðir með hinn aukna frítíma þegar þeir komust upp á lagið og svo kom í ljós að vinnuafköst voru ekkert minni þessar Iögbundnu átta stundir en með löngum eftir- vinnutörnum.“ Valgeir situr ákaflega afslappaður í nank- insbuxunum sínum og hleypir kettinum Hring reglulega inn og út eftir þörfum hins síðarnefnda. Hann talar rólega og yfirvegað ekki við neitt nema það sem ég hef áhuga á og þannig tekst mér að halda letinni í skefj- um. Mér er voðalega illa við að særa fólk og stundum er ég kannski fulltillitssamur, mætti alveg vera frekari og ákveðnari út á við. Ég á auðvelt með að umgangast fólk, er orðinn þjálfuð hópvera. Annars er ég svona tiltölu- lega normal einstaklingur með jákvæð viðhorf til flestra hluta sem skila manni áfram götuna til góðs. Hjá öðru fólki met ég mikils sæmi- lega gott skap, að það sé hressilegt og hafi en oft er ári stutt í kímnina og þá bregður líka vinalegu glottinu fyrir. Eftir smágrettu fellst hann á að reyna að lýsa sjálfum sér og hvaða kröfur hann gerir til lífsins og með- bræðranna. „Ég er svona tiltölulega geðgóður, eigin- gjarn og frekur, reyni að fara vel með það síðasttalda. Ég er latur en ég held ég fari líka nokkuð vel með það; duglegur ef ég hef áhuga á því sem ég er að gera. Ég hef þess vegna reynt að haga málum þannig að fást helst húmor. Þó leiðist mér fólk sem er alltaf á yfirborðinu og þorir ekki að vera einlægt. Ég vil geta talað við vini mína um alvarlega hluti líka. Eitthvað það versta í fari nokkurs manns er hroki. Fólk sem snýr upp á sig og sýnir öðru fólki hroka afhjúpar aðeins eigin veik- leika. Tillitsleysi er líka óþolandi, þegar fólk treður öðrum um tær til að ná sínu fram, hvað sem það kostar. Svo eru svartagallsraus- ararnir... Kröfur mínar til veraldlegra lífsgæða eru líklega í meðaljónakantinum. Ég vil geta haft aðstöðu til að láta mér líða vel heima hjá mér í fallegu pg vistlegu umhverfi með þeim sem ég elska. í sambandi við starf mitt vil ég geta átt nauðsynlegustu hluti eins og hljóðfæri, segulband og tölvu til að geta látið gamminn geisa. Þetta er spurningin um góð tæki og tól til að ná sem bestum árangri, hvort sem tæk- ið heitir ostaskeri eða tölva. Ostaskerinn nýtir ostinn betur en hnífur og sneiðin fer betur á brauðinu, hann er því fljótur að borga sig. En þrátt fyrir þessar kröfur er ég ekkert áíjáð- ur í að berast á. Mig langar til dæmis ekkert sérstaklega að keyra um á sportbíl svo eftir mér sé tekið í umferðinni.“ Það er sjálfsagt til lítils að spyrja mann sem á næstum engar frístundir um áhugamál og tómstundastarf, eða hvað? „Það er nú það, ég verð víst að viðurkenna að mig vantar tímann því í sjálfu sér hef ég áhuga á næstum öllu. Ég kem víða við en dvel ekkert voðalega lengi við hvern hlut, það heldur mér vakandi og gangandi. Ég lít á það sem forréttindi í þjóðfélagi sérhæfingarinnar að þurfa ekki að negla mig niður á eitt þröngt afmarkað svið. Það eru líka forréttindi að hafa atvinnu af stóru áhugamáli sínu. Þegar ég kem heim eftir mikla vinnutörn þá á ég stundum erfitt með að setjast niður, verða voða afslappaður og taka mér góða bók í hönd. Þegar ég er mjög útspýttur fínnst mér gott að slappa af við að horfa á sjónvarp, sem er auðvitað þægilega passíf eyðsla á frístund- um. Að horfa á ensku knattspyrnuna finnst mér til dæmis stórkostlega skemmtileg og af- slappandi tómstundaiðja. Konunni minni og fleirum finnst ég stundum hafa óhugnanlegan hæfileika til að kreista ánægju úr hverju sem er. Mér finnast íþróttir vera mjög spennandi fyrirbæri. Þær eru hádramatískar, sýna til dæmis orrustu tuttugu og tveggja harðfullorð- inna karlmanna frammi fyrir þúsundum áhorfenda. Það er sko leikhús í sinni tærustu mynd, spunnið á staðnum. Mér finnst mikil- vægt að einstaklingurinn keppi að einhverju marki og jafnmerkilegt að hlaupa hundrað metrana á tíu komma fimm eins og að mála nýja málverkið. Ég var mikið sportidjót áður fyrr en það minnkaði mikið þegar gítarinn tók við fyrir alvöru í MH á hippaárunum, sem voru lítið íþróttahvetjandi. Ahuginn hefur þó ekkert minnkað né sannfæringin um hversu hagstætt fyrirbæri íþróttir eru. Tökum sem dæmi þá æskilegu útrás sem fólk fær við að djöflast svolítið á skipulagðan hátt í stað þess að ryðja úr sér við náungann. Ég spila innan- hússfótbolta einu sinni í viku með nokkrum vel heppnuðum einstaklingum í þjóðlífmu og þar er hamast á fullu, menn verða reiðir og arga hver á annan, en þetta er alveg fyrirtaks hreinsun, andleg og líkamleg." Einu sinni sungu Stuðmenn af innlifun og með draumblik í augum um að slá í gegn - er heimsfrægð í sjónmáli? „Ég hef mikið hugsað um það en verð að viðurkenna að ég veit það ekki...“ segir Val- geir Guðjónsson. En nú fór neðri vörin í stóra geiflu allt upp undir nef, svo ég hef hann grun- aðan um ósannsögli... þó hann viti næstum alltaf hvað hann syngur... 4. TBL VIKAN 37

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.