Vikan


Vikan - 22.01.1987, Page 44

Vikan - 22.01.1987, Page 44
Eyðm og ást Luiz og Lourdes taka gífurleg áhættu. „Þið eruð hingað komin til að tala frammi fyrir heintinum og sýna að þið voruð sköpuð tilaðelska. Og það að elska er að hugsa um, gefa eftir við og jafnvel láta lífið fyrir þá sem við elskum.“ Þessi orð mælti prestur þegar Luiz Cardoso og Lourdes de Moura giftust. Það virðist ekki ástæða til að leggja sérstaka áherslu á þessi orð. En þegar sagan um Luiz og Lourdes er þekkt horfir málið öðruvísi við. Luiz Cardoso er tuttugu og sex ára listamaður, Lourdes de Moura er sautján ára og vann sem heimilisþerna í Porto Alegre í Brasilíu. Luiz erdreyrasjúkl- ingur og hefur smitast af eyðni. Þau vissu þetta en það kom ekki í veg fyrir giftinguna. Luiz hafði fyrir giftinguna sýnt mikið hugrekki. Hann hafði tilkynnt það opinberlega að hann hefði smitast af eyðni. Það gerði hann til að reyna að koma í veg fyrir að fleiri dreyrasjúklingar smit- uðust. Luiz er þekktur málari og hefur selt mörg málverk á þó- nokkrum sýningum. Hann er jafnframt varaformaður dreyra- sýkifélags Rio Grande do Sul. Luiz fullyrðir að hann viti hvenær hann fékk eyðnismitið. Hann segir það hafa gerst þegar hann fékk ákveðna hvítu sem tekin er úr blóðvökva og unnin á rannsóknarstofum til að nota í meðferð við dreyrasýki. Luiz segir: „Klukkustund eftir að ég fékk hvítugjöfina fann ég fyrir verk í brjóstkassanum. Ég svitnaði og fékk hita. Eftir þetta fór mér versnandi. Ég var á spít- ala í tuttugu daga, þar til ég var sendur í and-HTLV3 próf.“ Það er próf sem sýnir hvort einstakl- ingur er með HTLV3-veiruna í líkamanum. Þegar Luiz opinberaði sjúk- dóm sinn varð hann var við mikla afneitun samfélagsins á sér. Sem dæmi um það má nefna að margt fólk, sem hafði keypt myndir hans og borgað fyrir þær, kom aldrei að vitja þeirra. Lourdes hafði hitt Luiz á sýn- ingu hjá dreyrasýkifélaginu. Hún var rekin úr því húsi sem hún vann i þegar vinnuveitendur hennar komust að sjúkleika Luiz. „Samfélagið lokaði dyrum sínum á okkur," sagði Luiz'. Lourdes gat hvergi farið því það var 400 kílómetra leið til fjölskyldu hennar. Hún flutti því X 44 VI KAN 4. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.