Vikan - 10.09.1987, Page 10
Fyrsti bíllinn kom til íslcmds 20. júní
1904. Hann var fluttur inn af Dethlev
Thomsen kaupmanni og var lítill ,,mann-
flutningsvagn", með sex eða sjö hestafla
vél. Saga þessa vagns á íslandsgrund var
stutt og þymum stráð. Hœm var sendur
úr landi 1905 og mun burtfór hans ekki
hafa vakið neina eftirsjá. Nœstu ár fluttu
nokkrir menn hingað bíla sem reyndust
misjafnlega en um 1913 komst skriður á
bifreiðamál íslendinga og þaðan í frá óx
bílaeign jafnt og þétt.
Á fyrstu árunum tíðkaóist ekki að bílar
vœm merktir enda örfáir og flestir af
gerðinni Ford. Síðla árs 1913flutti Jónat-
an Þorsteinsson fyrsta Overlandbílinn til
landsins og þar með hófst mikill rígur
milli eigenda Ford-bíla annars vegar og
eigenda Overland-bíla hins vegar. Þessar
deilur urðu til þess að innflytjandi Ford-
bifreiðanna tók að merkja þœr einkennis-
stöfmum BR.
1915 vom sett bifreiðalög og sam-
kvœmt ákvœðum þeirra skyldi setja
tölumerki aftan á bifreiðir, ásmit um-
dœmisbókstöfum viókomandi midœmis.
Til að byrja með létu bílstjórar sjálfir
gera spjöldin en þó kom að því að lög-
reglustjóri hafði tiltœk skrásetningar-
spjöld. Spjöld þessi vom úr sléttu jámi
og merkin máluð á þau. 1 fyrstu vom
þetta svartir stafir á hvítum grumi en
síðar var því snúið gagnstœtt. Umdæmis-
stafimir vom tveir og vom Reykjavíkur-
bílar til að mynda merktir RE. Þessi
skipan mála hélst fram á miðjan flórða
áratuginn en þá var seinni stafurim felld-
ur burt og bílar þaðan í frá eingöngu
merktir einum umdœmisstaf Nokkm fyrr
hafði sú regla verið lögleidd að merkja
bíla bœði að framan- og aftanverðu.
1918 vom bifreiðanúmer og eigendur
þeirra skráó í fyrsta sim. Hér á eftir fer
saga þriggja númera sem öll vom ífyrstu
bifreiðaskránni.
Það var vandaverk að rekja slóð spjald-
ama enda gamlar skýrslur og skrár ekki
á reiðum höndum og mimi mmna því
miður ekki óbrigðult. Bjami Einarsson
frá Túni, sem er mmna fróðastur um
sögu bíla á íslenskri grund, veitti mér þó
dygga aðstoð, fyllti í eyður og leiðrétti
misskilning. Ber að þakka honum alla
hjálpina.
Merkis-spjöld
Berthold Benjamín Sæberg var fyrsti eig-
andi bíls sem skráður var undir númerinu
RE-7. Berthold var Hafnfirðingur að ætt og
uppruna en fékk ökuskírteini sitt í Reykjavík
árið 1916. Um sömu mundir varð hann bíleig-
andi; keypti Ford-T módel árgerð 1915 og
hóf skömmu síðar mannflutninga milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Upp frá því
var akstur og útgerð bíla hans ævistarf. Hann
hafði jafnan bifreiðastöð í Hafnarfirði og
einnig við Lækjartorg í Reykjavík.
1920 skipti númerið RE-7 um eiganda en
þá fékk það Magnús N. Magnússon ökukenn-
ari í Reykjavík. Hann keyrði bíl af Overland-
gerð, módel 90. 1921 seldi Magnús Jóhanni
Jónssyni bílinn en ekki hélst hann lengi í eigu
Jóhanns því þann 30. janúar árið eftir var
bifreiðin boðin upp á nauðungarsölu. Og
þennan dag skipti bíllinn hvorki meira né
minna en þrisvar um eiganda. Að kvöldi stóð
Olafur M. ísaksson uppi með bifreiðina en
seldi hana skömmu síðar Herulf Clausen for-
stjóra.
1928 keypti Þórður Eiríksson, Vegamóta-
stíg 5, bílinn en næstu tvö ár skipti bifreiðin
þrisvar um eiganda. Síðla árs 1930 var til-
kynnt að bíll merktur RE-7 væri niðurlagður
og komst spjaldið þar með í eigu ríkissjóð
íslands.
1931 var Buick í eigu Bifreiðaeftirlitsins
1918 stofnuðu fjórir ungir athafnamenn,
með Magnús Þorsteinsson í fararbroddi, sæl-
gætis- og efnagerðina Freyju. Þetta voru
stórhugar enda óx fyrirtækið og dafnaði. 1934
festi Freyja kaup á sínum fyrsta vörubíl sem
flutti varning til og frá verksmiðjunni á Lind-
argötunni. Vörubíllinn var þýskur, Opel
árgerð 1932, en hann var áður í eigu Thors
Jensens stórkaupmanns. Þessi bifreið var
merkt einkennisstöfunum RE-10.
1918, sama ár og Freyja var stofnuð, var
númerið RE-10 skráð í fyrsta sinn. Þá bar
það Overland-fólksbíll í eigu Gunnars Gunn-
arssonar trésmiðs. Gunnar hafði dvalið í
Ameríku um nokkurt skeið og þar lærði hann
að stýra bifreið. 1914 keypti hann Over-
landinn og var annar íslendingurinn sem festi
kaup á bifreið af þeirri gerð. Gunnar gegnir
mikilvægu hlutverki í sögu Overland-bifreiða
á íslandi því að hann mun hafa séð um að
kenna öðrum Overland-eigendum að keyra
farkostina. En þrátt fyrir kennsluna fékk
Gunnar ekki sitt fyrsta ökuskírteini fyrr en
1921 þvi samkvæmt reglugerð um ökuskír-
teini, sem gekk fyrst í gildi 1915, bar alvönum
bílstjórum ekki skylda til þess að sýna vott-
orð.
Gunnar seldi Eggert Kristjánssyni söðla-
smiði bílinn 1921 en 1925 var hann tekinn
úr umferð og númerið RE-10 flutt á yfir-
byggðan Chevrolet vörubíl í eigu Kristjáns
Elíassonar trésmiðs. Hann seldi Sæmundi
10 VIKAN 37. TBL