Vikan - 10.09.1987, Side 24
MEÐ HARÐSNUNU
KVIKMYNDALIÐI
FRÁ HOLLYWOOD
Hárgreiðslumeistarinn er hálfnaöur með verkið.
Góðan daginn, Katrín, þetta er Lisa Weinstein.
Við förum eftir fimmtán mínútur, sjáumst niðri
kortér yfir tjögur. Hjá mér var hánótt, ég hafði
sofið í þrjá klukkutíma. í raun hafði ég ekki
nema tíu mínútur til að koma mér niður því
að ég vissi að þau færu eftir nákvæmlega fimmtán
mínútur.
Við erum að fara að skoða staðina þar sem við ætlum
að kvikmynda. Þú verður að fylgjast með eins og við
töluðum um í gær, sagði Lisa þegar ég hitti hana niðri
í anddyri.
Daginn áður hafði ég verið ráðin í vinnu hjá Dick
Clark Productions. Eigandinn er Dick Clark, frægur
sjónvarpsmaður í Bandaríkjunum sem allir þekkja
þar. Lisa hefur starfað fyrir fyrirtækið lengi en hún
skipuleggur verkefnin og passar að allir skili sínu. Sá
sem gekk frá ráðningu minni var A1 Schwarzt en hann
hefur titilinn Vice President of Television Productions.
Vinkona mín, Lacey Ford, kynnti mig fyrir honum.
„Þú talar mörg tungumál og ert ráðin,“ sagði hann.
„Þú færð ekkert kaup, bara ánægjuna af að vinna með
okkur. Finnst þér það ekki góður samningur?“ - Jú.
„Fundurinn byrjar klukkan tíu.“ Svo hengdi hann í
mig merki fyrirtækisins. Ég var sem sagt komin í vinnu
hjá kvikmyndaliði frá Hollywood. Mér fannst þetta
óskaplega spennandi og var hæstánægð rneð kaupið.
Fundurinn hófst á því að þykku handriti var dreift.
Þarna voru tuttugu til þrjátíu manns. Allir kynntu sig.
Texti: Katrín Pálsdóttir Myndir: Gen
24 VIKAN 37. TBL