Vikan - 10.09.1987, Síða 26
Mikiö svið var sett upp í Sea World þar sem lokakvöldið var haldið
og úrslit kynnt. Hér er Andrea á sviðinu á lokakvöldinu en hún var
valin ein af sex bestu tyrirsætunum i þessari keppni.
Ég náði ekki nema broti af nöfnunum, Lisa, Bil, Al,
Mary hárgreiðslumeistari, Christofer snyrtisérfræðing-
ur, Gen Ijósmyndari, Hektor kvikmyndatökuinaður
og svo framvegis. A1 Schwartz skýrði út verkefni hvers
og eins. Verkefnið var að taka sjónvarpsþátt í sam-
vinnu við Ford Models í New York, Supermodel ’87.
Aðalhlutverkin voru í höndum tuttugu og fimm stúlkna
sem komu frá jafnmörgum löndum til að taka þátt í
fyrirsætukeppni Ford Models. Ég fékk það verkefni
að sjá um átta þeirra, skýra út fyrir þeim gang mála
og undirbúa þær fyrir vinnuna með kvikmyndafólkinu,
hárgreiðslumeisturum, snyrtifræðingum og fatahönn-
uðum. ,,Þú sérð um stúlkurnar sem tala Norðurlanda-
málin og þýsku en líka Yau Oi Wah frá Hong Kong
og Ruzicu Juretic frá Júgóslaviu,“ sagði Al. ,,Talarðu
annars ekki mandarín-kínversku og júgóslavnesku?“
bætti hann við. „Ef ekki þá verður þú að finna út úr
því.“
„Við förum svona snemma af stað til að sleppa við
mesta hitann,“ sagði Lisa Weinstein á leiðinni i
Cypress Gardens sem er fallegur skemmtigarður í
Llórída. Daginn áður hafði hitinn farið upp í 35 stig.
Ég þóttist því heppin að sleppa við hitann. Érá Stouff-
er, hótelinu þar sem við bjuggum, var nærri klukkutíma
keyrsla í skemmtigarðinn. Þegar þangað var komið
hófst langur göngutúr um garðinn. Græjurnar voru
meira að segja settar upp og prófaðar á ýmsum stöð-
um. „Katrín, viltu standa þarna í sandinum við vatnið.“
Það var A1 sem skipaði fyrir verkum. Sólin var komin
hátt á loft og skein beint ofan á höfuðið á mér og ég
var hryllilega svöng, hafði ekki borðað neinn morgun-
mat. „Larðu út í vatnið,“ skipaði Al. Þarna stóð ég
ýmist i sandinum eða í vatni upp að hnjám í klukku-
tíma á meðan kvikmyndaliðið frá Hollywood velti fyrir
sér alls konar sjónarhornum í gegnum myndavélar og
tók ákvarðanir um hvernig tökum skyldi háttað næsta
dag.
A leiðinni var upplagt að koma við í Sea World, það
fannst kvikmyndafólkinu að minnsta kosti. Það tekur
marga klukkutíma að ganga um þetta stóra og fallega
sædýrasafn. Aftur voru græjurnar teknar fram og sett-
ar upp á ýmsum stöðum, hjá hvölunum sem skvettu
yfir okkur hundruðum lítra af vatni og hjá höfrungun-
um og mörgæsunum. „Katrín, gáðu hvort höfrungarnir
stökkva upp ef þú stendur alveg þarna á brúninni."
A1 var kominn í stuð aftur. „Reyndu að taka utan um
höfrunginn þegar hann stekkur upp.“ A1 var ánægður
með tilraunirnar og ætlaði að láta norsku stúlkuna
smella kossi á höfrunginn daginn eftir til viðbótar við
þær æfingar sem ég gerði. Ég var dauðhrædd um að
dctta ofan í pollinn og verða þar eftir. En hvað leggur
maður ekki á sig til að standa sig í vinnu hjá kvik-
myndaliði frá Hollywood? Aður en ég vissi af vorum
við búin að vera á ferðinni í tólf tíma. Kvikmyndafólk-
ið hafði aðeins gefið sér tíma til að fá sér grænmetissalat
í hádeginu.
Eftir fundinn um kvöldið hafði ég á orði við Lisu
Weinstein hvort vinnudagurinn væri alltaf svona lang-
\
26 VIKAN 37. TBL