Vikan - 10.09.1987, Side 38
Mér finnst myndskáld alltof stórt orð,
eins og Hákot. Það er snobblykt af því.
Það er ekki hægt að nefna einn mann
þessu heiti í kvikmyndagerð. Er ég það
í Foxtrot, eða Jón leikstjóri, eða Karl
tökumaður? Maður er að segja sögu með
myndum. Kvikmyndin er oft sögð vera
röð mynda eins og leikritið samtal per-
sóna. Báðar þessar fullyrðingar eru þó
rangar í eðli sínu því öll dramatík er fyrst
og fremst saga af einstaklingum í átökum
við lífið, í átökum við sjálfa sig, aðra
einstaklinga eða umhverfi sitt.
Þú getur gert mynd tæknilega pottþétta
en ef sagan heldur ekki gengur kvik-
myndin ekki upp. Mitt hlutverk er að
gera söguna þannig að kvikmyndin haldi.
Handritið er þannig hryggsúla kvik-
myndarinnar. Þegar þú mætir manni
sérðu ekki hryggsúluna, þú tekur eftir
fasi hans, andliti og ytra útliti. Ef hann
væri hins vegar án hryggsúlunnar yrði
það örugglega það fyrsta sem þú tækir
eftir.
LANDSLAGIÐ
EKKERT PUNT
Stalker eftir Tarkowsky frnnst mér með
albestu myndum sem gerðar hafa verið.
Hún er sú mynd sem maður myndi taka
með sér á eyðieyju. Hún er dæmi um ljóð-
ræna mynd sem heldur. Það er dýrt sport
að yrkja innhverf Ijóð í kvikmyndar-
formi. Þú getur gert hvað sem er á pappír
en kvikmynd er annað mál. Sama gildir
um sagnagerð. Þú getur líka skrifað
„antiróman“ en það les hann enginn
nema bókmenntafræðinemar eftir nokk-
ur ár. Ég hugsa mér að skrifa margt
annað en kvikmyndahandrit. Það er að-
eins eitt form af mörgum. Ég hef verið
spurður hvort ég sé hættur að skrifa, eins
og kvikmyndahandrit sé eitthvað allt
annað. Svo er auðvitað ekki, maður er
eðlilega barn síns tíma og kvikmynda-
formið stendur manni því nærri. Maður
var alltaf á bíó sem unglingur og sjón-
varpið hefur maður daglega fyrir
augunum. Maður á sínar uppáhaldsper-
sónur og uppáhaldsatriði úr kvikmynd-
um eins og úr bókum til dæmis. Astæðan
fyrir því að ég fór út í þetta er þó ekki
bara bíóáhugans vegna. Ég hef alla tíð
hugsað myndrænt þegar ég skrifa og hef
sífellt verið að basla við að koma hug-
myndum í letur. Því fannst mér rétt að
taka skrefið til fulls og fara að skrifa
fyrir kvikmyndaformið.
Hvað viltu segja um Foxtrot, fyrsta opin-
bera kvikmyndahandrit þitt?
Hugmyndin að Foxtrot kviknaði hjá
mér fyrir nokkrum árum. Síðan sýndu
þeir Frostfilm-félagar hugmyndinni
áhuga í fyrrasumar og ég fór út og byrj-
aði að skrifa. Fokaútgáfa handritsins var
níunda prentunin, á þeim tíma breyttist
það mikið, persónur lifnuðu og dóu og
aðrar breyttu um nöfn og einkenni. Leik-
stjórinn á síðan ætíð síðasta orðið, svo
myndin getur enn breyst töluvert frá
mínu handriti. Kvikmyndagerð er í eðli
sínu hópvinna og ég hlýt fyrst og fremst
að leitast við að skila handritinu þannig
að ég sé sem ánægðastur með það. Mynd-
in verður hugsanlega verri, hugsanlega
betri. Alltént öðruvísi.
Það má í fljótheitum setja orðið örlaga-
þriller á Foxtrot, svona sem stimpil. Þetta
er spennusaga með áherslu á persónu-
dramatík fremur en náttúruhamfarir og
sprengingar. Þó er sterk og mikil at-
burðarás í kvikmyndinni. Hugsunin var
frá upphafi að gera mynd sem væri gjald-
geng utan íslands. Handritið var skrifað
á ensku og íslensku og kvikmyndin tekin
upp bæði með ensku og íslensku tali.
Er hægt að tala um útflutning á íslenskri
menningu í Foxtrot?
Ekki í túristabæklingaskilningi. Við
erum hvorki að fjalla um víkingatímann
né fiskverkun. Það gerist ekki eitt atriði
við Gullfoss, annað í Ásbyrgi, það þriðja
á Látrabjargi, hið fjórða við Geysi og svo
framvegis. Myndin gerist á íslandi og
lýtur alfarið íslenskum lögmálum, í þeim
skilningi er hún auðvitað rammíslensk.
En efnið er alþjóðlegt eins og mannleg
örlög eru yfirleitt. Mér hefur lengi verið
hugstætt örlagaelementið, í hverju fólk
getur lent, hversu örlagaþrungnir at-
burðir geta verið. Líf fólks getur breyst
á andartaki. Manneskjan lifir hversdags-
legu lífi en er svo skyndilega stödd í miðju
drama þar sem allar spurningar eru stór-
ar og allar gerðir upp á líf á dauða. Það
má segja að þetta sé útgangspunktur
myndarinnar. Lykilpcrsónurnareru þrjár
og fjórða aðalpersónan er umhverfið,
landið. Sagan gerist öll á ferðalagi. ís-
lensk náttúra var hluti hugmyndarinnar
frá upphafi. ísland er tjársjóður fyrir
kvikmyndagerð. íslenskt landslag er
ótrúlega vel til þess fallið að spila með
dramatík í kvikmynd en alls ekki sem
skraut. Tökum sem dæmi Suðurlandið;
fyrst er flatlendi og víðar ekrur, svo tek-
ur við blómleg sveit í skjóli tígulegra
fjalla og þar á eftir eyðimerkursandar
með Atlantshafið opið allt til suður-
skautsins á aðra hönd og dauðakaldan
ísvegg á hina, þetta er ekkert punt.
Þessa þætti vinnur maður með í hand-
ritinu. Til dæmis bíll sem ekur i gegnum
myndrammann, það er ekki sama hvort
hann fyllir út í rammann með smásand
umhverfis og jökul í fjarska eða hvort
bíllinn sést í mikilli fjarlægð þar sem
hann læðist yfir myndflötinn við rönd
ægistórs jökuls, eins og skelkaður maur.
Þetta er aðeins lítið dæmi um hvernig
hægt er að nota landslag til að skapa
dramatísk áhrif í kvikmynd.
FOXTROT
Hefurðu haft fingurna eitthvað í vinnsl-
unni sjálfri, fylgistu til dæmis með upptök-
um?
Ég hef skroppið á tökustaði, það hefur
verið fróðlegt og lærdómsríkt. Mér dettur
ekki í hug að skipta mér af tökum nema
eins og hver annar gestkomandi sem spyr
sér til fróðleiks. Með handritinu er mínu
starfi lokið. Framkvæmdin er leikstjórans
og tökuliðsins. Það er skrýtið að heyra
orðin sín hljóma í umhverfi sem er öðru-
vísi en maður hafði ímyndað sér við
skrifborðið úti i Kaliforníu og orðin
hljóma líka öðruvísi en maður heyrði þau
fyrir sér sjálfur. Þannig breytist textinn
í meðförum leikara og leikstjóra.
Hvaðan er þetta nafn, Foxtrot? Hvað
þýðir Foxtrot?
Foxtrott er dans í fjórskiptum takti.
Hann var einu sinni vinsæll. Núna dans-
ar enginn foxtrott lengur. Hann er geir-
fugl. Foxtrott er líka orð sem notað cr í
fjarskiptum.
Trúirðu á myndina?
Ég trúi því að þetta sé áhrifamikil
mynd og komi til með að standa sig vel.
Það er mikið í húfi í myndinni, bæði
orðstír og fjármunir, annars snertir fjár-
hagsdæmið mig ekki nema óbcint.
Er þaö kannski nauðsynlegt fyrir hand-
ritshöfundinn að vera ekki fjárhagslega
bendlaður við væntanlega kvikmynd?
Mér finnst ágætt að hafa þetta þannig.
38 VIKAN 37. TBL