Vikan - 10.09.1987, Síða 45
Umsjón: Hólmfríður Benediktsdóttir
Já, já, þið hafið auðvitað oft heyrt um svoleiðis skötu-
hjú, en þessi voru allt öðruvísi. Þessi konungur og drottning
voru nefnilega hreyfmgarlausar postulínsbrúður á daginn
en á næturnar, þegar allir í húsinu voru sofandi, lifnuðu
brúðumar við og voru þá svo sannarlega í ríki sínu.
Lítil stelpa, sem hét Gulla, átti þessar finu brúður. Áður
átti mamma hennar brúðurnar, þar áður amma hennar
og þannig koll af kolli langt aftur í ættir.
Kóngur og drottning voru mjög fin og alltaf var farið
með þau eins og dýrgripi. Gulla lék sér ekki að þeim held-
ur hafði þau upp á punt á hillu við rúmið sitt. Gulla, sem
var mjög þæg stelpa, fór alltaf að sofa klukkan níu á kvöld-
in. Þremur tímum síðar, eða á mínútunni tólf, rumskaði
drottningin og deplaði augunum. Síðan teygði hún úr sér
og vakti kónginn.
Þegar kóngurinn var almennilega vaknaður færðist al-
deilis líf í tuskurnar. Þau stukku niður af hillunni og lentu
hverja nótt í nýjum ævintýrum. Stundum fóru þau út um
gluggann og renndu sér niður tréð í garðinum, en alltaf
skiluðu þau sér aftur á sinn stað á hillunni rétt fyrir sólar-
upprás.
Þannig hafði það gengið nótt eftir nótt, ár eftir ár. Og
nú ætlum við að segja ykkur frá einu af ævintýrunum sem
þau lentu í. Gulla var steinsofnuð og þegar klukkan sló
tólf vöknuðu kóngur og drottning. Þau voru ekkert að
flýta sér og gáfu sér góðan tíma til að rétta úr sér og
teygja sig og tóku nokkrar leikfimiæfingar. Drottningin
sléttaði úr pilsi sínu og lagaði kórónuna á höfði kóngsins.
Síðan renndu þau sér af hillunni, stukku fimlega á milli
stólfóta, smeygðu sér framhjá skólatöskunni hennar Gullu
og fieiru sem lá á víð og dreif um gólfið. í hinum enda
herbergisins var gluggi sem þau komust út um og síðan
renndu þau sér niður tréð sem stóð við húsið.
Er þau voru komin út á gangstétt litu þau í kringum sig
og um stund veltu þau fyrir sér hvert þau ættu nú að fara.
Að lokum tóku þau stefnuna niður í bæ til að líta á mann-
fólkið.
Ferðin í bæinn gekk bærilega. Kóngur og drottning lauin-
uðu sér inn í strætisvagn án þess að nokkur tæki eftir
þeim. Þau höfðu margoft ferðast með strætisvögnum og
alltaf sloppið við að eftir þeim væri tekið. Fullorðna fólk-
ið var alltaf svo upptekið af sjálfu sér að það tók ekki
eftir svona litlum dúkkuin en einu sinni voru þau hætt
komin þegar lítið stúlka, sem sat í kerrunni sinni, tók eft-
ir þeim og vildi ólm ná í þau. Sem betur fer gat sú stutta
ekki gert sig skiljanlega, bablaði bara einhverja vitleysu
eins og smábörnum er lagið og kóngur og drottning tróðu
sér ennþá lengra undir sætið hjá mömmu stúlkunnar. En
þetta var nú einsdæmi því litil börn eru ekki oft á ferðinni
eftir miðnætti.
í þetta skiptið voru fáir í strætisvagninum, bílstjórinn var
í síðustu ferð sinni og geispaði ógurlega. Þegar vagninn
nam staðar í Lækjargötunni stukku kóngur og drottning
út. Síðan hlupu þau af stað að leita nýrra ævintýra.
Fiwnhald í nœsta hlaði.
Skrýtiur
Maður kom inn í fangelsið: Get ég fengið að tala við þjóf-
inn sem braust inn til mín síðustu nótt?
Fangelsisvörðurinn: Hvers vegna viltu fá að tala við hann?
Maðurinn: Eg vil fá að vita hvernig hann komst inn án
þess að vekja konuna mína því að mér tekst það aldrei!
Sigga litla: Kalli, skilur þú af hverju mamma var svona hrædd
við að fara á baðvigtina? Það er alls ekki sárt.
Kata: Mikið ert þú í fallegri kápu.
Jóna: Maðurinn minn gaf mér hana þegar ég varð fertug.
Kata: Sú hefur aldeilis dugað lengi.
- Halló, halló, ert þetta þú, elskan?
- Já, elskan, hver ert þú?
Svo var það Hafnfirðingurinn sem kom í búð og sagði: Ég
ætla að skila þessu bindi, endarnir eru mislangir.
Gömul kona var á ferð með asna í taumi þegar hún mætti
nokkrum ærslafullum strákum.
- Góðan daginn, asnamamma, kölluðu þeir.
- Góðan daginn, börnin mín, svaraði sú gamla.
- Læknir, læknir, ég kom vegna þess að það hlustar aldrei
neinn á mig.
- Næsti.
Kópavogsbúinn spurði Hafnfirðinginn: Hvað eru 4 + 6 mik-
ið? Hafnfirðingurinn hugsaði sig Iengi um en gafst loks upp.
- Það eru auðvitað 10 sagði Kópavogsbúinn.
- Ertu vitlaus, maður, sagði Hafnfirðingurinn, það eru 5 + 5
sem eru 10.
37. TBL VIKAN 45
0.