Vikan


Vikan - 10.09.1987, Síða 46

Vikan - 10.09.1987, Síða 46
Vikan — bílar Breiðþota af gerðinni Boeing 747 er, í lend- ingu, ógnvekjandi dæmi um hreyfiorku sem þarf að hemja. Talsverður hluti af átökun- um, sem því fylgja, kemur í hlut hjólbarð- anna. Þotan er nálægt 250 tonnum að þyngd i lendingu og hraði hennar um það bil 150 mílur á klukkustund (240 km/klst.). Þessi gríðarstóra eimreið háloftanna er svo stöðv- uð á flugbrautinni með því að venda kný hreyflanna og eyða lyftikrafti vængjanna (með ,,spoilerum“) þannig að þyngd þotunn- ar leggist á hjólin. Þá er hægt að beita hjólabremsunum. Álagið á þær er mikið og hitinn í lok lendingar getur orðið 300-400 gráður á C. Allan þennan hita þarf að losna við og hluta hans verða hjólbarðar þotunnar að þola. Að vísu eru 18 hjólbarðar undir Boeing 747 svo nokkrir eru um hituna. Það er þó ekki í lendingu heldur í flugtaki sem mest álag er á hjólbörðum stórra far- þegaflugvéla. Það getur einnig átt við um hemlana ef hætta þarf skyndilega við flug- tak. í flugtaki eru vélarnar fullhlaðnar (B 747 er þá um það bil 360 tonn) og flugtakið fer oft fram eftir talsvert langan akstur að flugtaksstöðu á brautarenda. Álagið á hjólin minnkar ekkert í flugtaki fyrr en þotan hefur náð flugtakshraða því vængirnir eru venju- lega þannig lagaðir að lyftikraftur þeirra er lítill fyrr en þá. Miðflóttakrafturinn, sem hjólbarðarnir verða fyrir á flugtakshraða, getur orðið allt að 2000 g (það er tvö þúsund- faldur þyngdarkraftur jarðar) og þá er, til að bæta gráu ofan á svart, þotan reist að framan þannig að allur þungi hennar hvílir andartak á aðalhjólunum einum. Svo taka vængirnir til við að fljúga og þá lýkur erf- iðri vinnustund hjólbarðanna. Hjólbarðar undir Boeing 747 og fleiri stór- um farþegaflugvélum (DC-8 til dæmis) geta við erfiðar aðstæður hitnað upp í 120 gráður á C og þá er lítið eftir af þoli hjólbarðans því búast má við að venjulegir flugvélahjól- barðar rifni við 140 gráður á C. Augljóst er að eftirlit með ástandi hjólbarða undir flug- vélum þarf að vera gott og engu má muna með loftþrýsting. Springi einn hjólbarði eykst álagið á hina og þar með líkurnar til þess að þeir bregðist líka. Hjólbarðar á venjulegum farþegaþotum hafa gjarna „end- ingartíma“ sem er 100-150 lendingar og flugtök, en undir sumum herþotum lifa þeir tæplega af fleiri en 10-15 lendingar og flug- tök. Hjólbarðar undir bílum þurfa ef til vill ekki að þola átök á borð við þau sem á undan er lýst en þó er nokkuð á þá lagt. Það verður því ekki of brýnt fyrir bifreiða- eigendum að líta vel eftir hjólbörðum undir bílum sínum. Gæta þarf þess að loftþrýsting- ur sé réttur, slitflöturinn með nægilega djúpu mynstri og að hjólbarðinn sé óskaddaður og ekki á honum kúlur eða sprungur. Rétt er að hlífa hjólbörðunum eftir mætti, til dæmis gæta þess að aka ekki yfir stóra steina að óþörfu og ekki yfir gangstéttarbrúnir nema með ýtrustu aðgát. Hjólbarðarnir eru eitthvert mikilvægasta öryggistæki bifreiðar- innar og bregðist þeir, þegar mikið liggur við, er voðinn vís. Ástand hjólbarða undir bílum landsmanna virðist hafa batnað. Auðvitað er skýringin að hluta til sú að bílaflotinn hefur yngst verulega á síðustu átján mánuðum og nýjum bílum fylgja, sem betur fer, nýir hjólbarðar. Ég minnist þess að fyrir nokkrum árum var þriðji hver bíll á hjólbörðum sem minntu frekar á sautjánda júní blöðrur en almenni- lega hjólbarða. Þá voru hjólbarðar hlutfalls- lega dýrir og því vonlegt að bifreiðaeigendur drægju í lengstu lög að endurnýja þá. Það verður að teljast hæpið að skattleggja mikil- væg öryggistæki eins og hjólbarða þannig að fjölskyldur, sem þurfa að endurnýja þau, svelti viícum saman af þeim sökum (eða komist ekki til Mallorca). Eitthvað hefur dregið úr skattlagningunni og verðlagið er því skaplegra á hjólbörðum en það var um tíma. Hjólbarðakaup eru, að verðlaginu slepptu, ekkert einfalt mál. Auðvitað má einfaldlega kaupa sömu tegund, gerð og stærð hjólbarða og voru upphaflega undir bílnum. Rétt er þó að athuga handbókina í bílnum því þar er ávallt að finna upplýsingar um gerð og stærð hjólbarða, sem henta að mati framleið- andans, og réttan loftþrýsting í slíkum hjólbörðum. Ýmsar tegundir og stærðir hjólbarða, aðr- ar en þær sem mælt er með í handbókunum, geta verið nothæfar í mörgum tilvikum. Rétt er þó að hafa í huga að ef setja á stærri eða breiðari hjólbarða en þá upprunalegu undir bíl þarf ef til vill að gefa gaum að felgu- stærðinni svo hjólbarðinn „sitji“ rétt. Stærri felgur og hjólbarðar geta ennfremur valdið óæskilegu álagi á hjóla- og stýrisbúnað svo rétt er að fara að slíku með nokkurri gát. Hjólbarðar eru nú aðallega tvenns konar: 1) Skálaga (Cross-Ply eða Diagonal). 2) Þverlaga (Radial). Hér er verið að greina á milli mismunandi fyrirkomulags strigalag- anna í barðanum en það veldur einnig talsverðum mun á eiginleikum hjólbarðanna. Strigalögin, sem reyndar eru úr ýmsum efn- um, svo sem stálþræði, nælonblöndu eða rayon, eru til að styrkja barðann og halda formi hans betur en ef hann væri einungis úr gúmmíblöndu. í skálaga hjólbörðum liggja strigalögin á ská i hliðum og yfir slitflötinn. Þverlaga barðar hafa strigalög sem liggja þvert í hliðum og þvert yfir slitflötinn en auk þess eru þverlaga barðar með sérstök striga- lög (gjarna úr stálþræði) undir slitfletinum. Reyndar voru skálaga hjólbarðar með sér- stöku belti undir slitfletinum algengir í Ameríku og sjást enn á mörgum stærri fólks- bílum (Belted Diagonal). Skálaga hjólbarðar eru eldri að uppruna og einu sinni voru allir bílar á slíkum börð- um. Fáir framleiðendur afhenda þó bíla sína nú á skálaga hjólbörðum. Þessir barðar hafa þó alltaf átt talsverðu fylgi að fagna á ís- lenskum malarvegum því þeir þykja mjúkir og ef til vill hljóðlátari en þverlaga barðar. Veltiviðnám þeirra er þó mun meira en þver- laga hjólbarða og þar með meiri eldsneytis- eyðsla og minni ending. Skálaga barða er hægt að hafa mjög sterka með því að fjölga strigalögunum en þá verða þeir jafnframt harðari. Skálaga barðar með belti eru með öllu stífari slitflöt sem verpist minna í akstri en á venjulegum skálaga hjólbörðum. Þessi gerð hjólbarða náði ekki útbreiðslu nema á bandarískum bílum. Radial (þverlaga) hjólbarðar hafa mun minna veltiviðnám en hinar gerðirnar og slit- flöt sem aflagast minna í akstri og hefur betra veggrip við flestar aðstæður en hinar 46 VIKAN 37. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.