Vikan - 26.11.1987, Side 2
Hönnun: O Frjálst Framtak - 0M\ hf.
ELANCYL" VIRK MEÐFERÐ FYRIR LÍKAMANN
ELANCYL MEÐFERÐIN
□ KASSI MEÐ NUDDBURSTA OG
„MASSAGE CREAM"
□ KASSI MEÐ NUDDBURSTA OG
„TONING GEL"
Hvaða kona kannast ekki við það vandamál að
húð hennar líkist appelsínuberki? Þetta ástand
kallast öðru nafni „CELLULITE" og er upp-
söfnun vökva, úrgangs- og eiturefna í bandvef
húðarinnar.
ELANCYL meðferðin vinnur á móti og kemur (
veg fyrir „CELLULITE" myndun í líkamanum.
Aðferðin byggir á daglegu nuddi í baðinu eða
sturtunni með sérhönnuðum nuddbursta sem í
er sápa. Síðan er ELANCYL „Massage
cream", „Bi-active cream" eða „Toning gel“
borið á húðina á eftir. Þetta tekur aðeins fimm
mínútur. Árangurs er að vænta eftir 3-5 vikur.
„CELLULITE" hefur þá minnkað eða horfið
alveg og ummál meðhöndluðu svæðanna
minnkað til muna, jafnvel um marga senti-
metra. ELANCYL meðferðin hentar vel kröfum
nútímans þar sem tíminn er af skornum
skammti. Þessa einföldu og fljótvirku meðferð
hafa franskar konur notað svo árum skiptir til
að vinna markvisst á móti „CELLULITE" á
áhrifaríkan hátt.
Leiðbeiningar á íslensku um alla Elancyl lín-
una fylgja hverjum nuddbursta.
□ SÁPA
ELANCYL sápan er í nuddburstanum en hana
er einnig hægt að fá staka til að setja í burst-
ann þegar sú sem fyrir var er búin. Einnig er
mjög gott að nota sápuna sem venjulega
baðsápu fyrir alla fjölskylduna. Sápan hefur
ferskan Elancyl ilm. Hún inniheldur Stjörnu-
blað og Bergfléttu, einnig möndluolíu og önnur
mýkjandi efni. Þessi milda sápa hentar jafnvel
mjög viðkvæmri húð.
□ „MASSAGE CREAM"
Elancyl „Massage cream" inniheldur Stjömu-
blað og Bergflóttu. Þetta er fitulítið krem og
hverfur fljótt inn í húðina. Það er borið á með-
höndluðu svæðin strax eftir að nuddað hefur
verið með burstanum og húðin þerruð.
□ „BI-ACTIVE CREAM"
Auk þess að innihalds Stjörnublað og Berg-
flóttu inniheldur kremið sórstakan „purine
base" sem gerir það áhrifameira en „Massage
Cream". Það er einnig fiturfkara og hentar því
mjög vel þurri húð. Notað eftir nuddburstann.
Kreminu er nuddað vel inn í húðina þar til það
hverfur. Vinnur á móti og kemur í veg fyrri
„Cellulite" myndun.
□ TONING GEL"
Þetta gel gefur mjög skjótan árangur I barátt-
unni við Cellulite og til grenningar og hentar
því einkar vel nútíma, athafnasömum konum
og ungum stúlkum. Inniheldur Stjörnublað,
Bergflóttu og Indíánaþyrni. Það er fitulaust og
inniheldur einnig vatnsefnisalkóhól og gengur
því sórlega fljótt inn í húðina. Gelið er borið á
húðina eftir að nuddburstinn hefur verið notað-
ur. Það má einnig bera það á þótt ekkert nudd
hafi farið fram áður og hefur þó grennandi
áhrif. Við ráðleggjum þó að nota nuddburstann
alltaf áður en gelið er borið á, því þá er húðin
heit og opin og hin virku efni nýtast betur. Auk
þess verður árangurinn enn fljótari að koma í
Ijós.
□ FREYÐIBAÐ
Elancyl freyðibaðið gerir baðið ánægjulegt.
Það mýkir húðina og hjálpar þór að slaka á.
Freyðibaðið hefur ferskan furunálailm. Látið
einn til tvo tappa út í baðið meðan rennur í
karið. Hentar allri fjölskyldunni.
□ BAÐOLÍA
Það er upplagt fyhr alla með þurra og við-
kvæma húð að nota Elancyl baðoliuna allan
ársins hring. Fyrir þá sem eru með eðlilega
eða feita húð er gott að nota olíuna á veturna
þegar kalt er úti. Látið tvo tappa af olíunni undir
rennandi vatn. Vatnið samlagast olíunni og
verður mjólkurhvítt og mjúkt. Það á ekki að þvo
olíuna af húðinni. Hún myndar örþunnt varnar-
lag á húðina. Baðolíuna mó einnig bera á
húðina eftir baðið á þurrustu svæðin eins og
fætur, handleggi, olnboga, hnó og hæla. Ef
notandinn kýs frekar að fara í sturtu má setja
olíuna í úðara og úða henni á húðina meðan
hún er enn rök.
□ „BODY LOTION"
„Body Lotion" sem mýkir húðina og gefur
henni nauðsynlegan raka og næringu með því
að mynda varnarlag á yfirborð húðarinnar.
Inniheldur náttúrulegan rakagjafa og prótein
og auk þess hinn milda Elancyl ilm. Ilmurinn
yfirgnæfir aldrei það ilmvatn sem viðkomandi
notar. Nuddið elancyl „Body Lotion" inn í húð-
ina eftir bað eða sturtu. Það hverfur fljótt inn í
húðina. Berið ríkulega á fætur, hné og olnboga
þar sem húðin er oft gróf og þurr.
□ LlKAMSSJAMPÓ"
Elancyl líkamssjampóið hefur sórstaklega ver-
ið hannað til að leysa venjulega sápu af hólmi,
en hún getur oft haft þurrkandi áhrif á húðina.
Mýkjandi og rakagefandi efni líkamssjampós-
ins henta vel PH-stigi (sýrustigi) húðarinnar.
Sjampóið hreinsar án þess að erta eða þurrka
húðina og viðheldur réttu rakastigi. Auk þess
ilmar húðin af mildum og ferskum Elancyl ilm-
inum. Notað í bað eða sturtu. Bleytið húðina
fyrst, kreistið u. þ. b. 2-3 cm af sjampói í
rakan þvottaklút, svamp eða i lófann. Húðin er
síðan þvegin og skoluð eins og venjulega.
□ „KREM FYRIR SLIT"
Lang algengasta orsök slits er meðganga. Slit
getur einnig komið fram eftir hraða grenningu
eða eftir að mörgum kílóum hefur verið bætt á
sig á stuttum tíma. Algengast er að sjá þessar
bleiku rákir á maga, en einnig eru þær al-
gengar á mjöðmum, efst á lærum og á brjóst-
um. Slit getur komið fram hvar sem er á líkam-
anum þar sem mikið mæðir á. Inniheldur
meðal annars amínó-sýrur, A-vítamín, E-víta-
mín, F-vítamín og prótein. Þetta eru virk efni
sem örva endurnýjun frumanna og gera um-
merki slits samlitari húðinni, jafnframt því sem
það fyrirbyggir myndun þeirra. Kremið er borið
á umrædd svæði tvisvar á dag með hringlaga
hreyfingum þar til það hverfur inn í húðina.
Þetta á við hvort sem um er að ræða fyrir-
byggjandi ráðstafanir t. d. á meðgöngutíman-
um, eða þegar slit er þegar til staðar.
□ KREM FYRIR ÞREYTTAR FÆTUR
Orsök þyngslatilfinningar í fótum er fyrst og
fremst sú að blóðrásin er slæm. Helstu ástæð-
ur eru: Kyrrstöður, mikill hiti, meðganga og
þröngur klæðnaður. Elancyl nuddkremið fyrir
þreytta fætur inniheldur Stjörnublað sem er
náttúrulegt jurtaefni. Það virkar losandi og
kemur í veg fyrir óeðlilegar stíflur í húðvefjum
og smáæðum. Það örvar blóðrásina og styrkir
háræðaveggina um leið og það veitir hvíldar-
og þægindatilfinningu. Kremið má nota hve-
nær sem þörf er á. Til dæmis á daginn og/eða
áður en farið er út á kvöldin. Bestur árangur
næst ef kremið er borið á fæturna á kvöldin
fyrir svefninn. Nuddið kreminu á fætuma frá
ökkla og upp að hné.
□ BRJÓSTAMEÐFERÐ
Margar ástæður liggja fyrir aflögun brjóstanna
svo sem bamsburður, of hröð grenning og það
að húðin missir þenslu með aldrinum. Elancyl
brjóstameðferðin inniheldur mikilvæg efni úr
fylgju, aminó-sýru, prótein og vitamín er styrkja
húðina, gera hana stinnari með því að næra
húðfrumurnar og örva endurnýjun þeirra.
Elancyl brjóstameðferðin samanstendur af 10
ampúlluglösum og kremi. Nota skal eina am-
púllu og kremið til skiptis sitt hvort kvöldið og
halda áfram þrjár vikur samfellt. Árangurinn
verður stinnari og styrkari brjóst, húðin mýkri
og heildaráhrifin verða fallegri brjóst og
ánægðari kona. Elancyl ráðleggur konum að
nota Elancyl brjóstameðferðina þrisvar á ári til
að viðhalda góðum árangri.
ATHUGIÐ að Elancyl brjóstameðferðin er ekki
ætluð barnshafandi konum eða konum með
barn á brjósti.
□ BRJÓSTAKREM
Einnig er hægt að kaupa brjóstakremiö eitt
sér. Þegar þriggja vikna brjóstameðferðinni lík-
ur er ráðlagt að halda áfram notkun á brjósta-
kreminu tvisvar í viku, þar til næsti kúr er
tekinn. Það viðheldur árangrinum lengur.
PÓSTKRÖFUR
NAFN: HEIMILISFANG:
Fæst í snyrtivöruverslunum og apótekum um land allt.
heildverslun. Sími 681710