Vikan - 26.11.1987, Blaðsíða 4
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON
I BYRJUN VIKUNNAR
Þessi fjölskylda setti óneitanlega svip á opna Reykjavíkurmeistaramótið í kraftlyffingum. í miðj-
unni er Skúli Óskarsson, eða „stálmúsin" eins og hann er kallaður.ásamt systkinum sínum, þeim
Nínu og Má. Samtals settu þau 12 íslandsmet á mótinu og geri aðrir betur en Skúli hirti nokkur met
af Kára „Ketti“ Eliassyni fyrir norðan, m.a. setti hann nýtt íslandsmet í réttstöðulyftu í sínum
þyncdarflokki lyfti 270.5 kg
Bubbi
fær gull
og platínu
Fyrir síðustu helgi var gefin
út platan Dögun með Bubba
Morthens. Það hlýtur að teljast
stórviðburður þegar Bubbj
sendir frá sér plötu þó að
blessunarlega stutt sé á milli
platna frá honum, þökk sé frjó-
um huga tónskáldsins.
Dögun er mjög róleg og fáguö
plata meö vönduðum textum og
Bubbi tileinkar hana samtökunum
Amnesty International. Upptökum
stjórnaði Tómas Tómasson en
hann sá einnig um bassaleik og
hljómborðsleik á plötunni. Aðrir
hljóðfæraleikarar með Bubba eru
Ásgeir Óskarsson, Þorsteinn
Magnússon, Ásgeir Jónsson og'
Kristján Edelstein. Upptakan fór
fram í Stúdíó Sýrlandi.
Við kynninguna á plötunni fékk
Bubbi afhenta gullplötu fyrirfram
vegna þess að í fyrstu umferð var
plötunni dreift í sex þúsund ein-
tökum. I leiðinni fékk hann af-
henta platínuplötu vegna þess
að Frelsi til sölu hefur selst í tæp-
Fjöldi Islendinga verður í
Mexíkó um jól og áramót
- en hvað kostar ferðin?
(Sjá nánari umfjöllun um Mexíkó annars staðar í blaðinu)
Arctic einnig
Blaðamanni urðu á þau mis-
tök í fréttinni af Birni Borg að
þegar sagt var að hann hefði
verið hér á iandi á vegum versl-
ananna sem seija föt sem fram-
leidd eru undir hans nafni láðist
að geta þess að hann var ekki
síður að kynna snyrtivörur
sínar. Þær eru fluttar inn af
heildversluninni Arctic, sem
hefúr selt meira af þeim en
nokkur annar umboðsaðili í
heiminum — miðað við höfða-
tölu...
Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Meðfylgjandi mynd var tekin
af Birni Borg og unnust hans,
Jannike, á vörukynningunni á
dögunum.
Það verður æ algengara að
íslendingar bæti sér upp
skammdegið og láti jóla-
stressið fram hjá sér fara
með því að fara í frí til suð-
lægra landa á þessum árs-
tíma. Sem dæmi má nefna að
nokkuð stór hópur fer til
Mexíkó þessi jól, enda hita-
stigið mjög ákjósanlegt á
þessum árstíma. Ætli það
kosti svo mikið meira að fara
í þannig frí heldur en allt
umstangið í kringum jólin?
Við hringdum á söluskrif-
stofu Flugleiða og könnuð-
um hvað það kostar að fara
til Mexíkó, í álíka ferð og
fjallað er um í blaðinu.
Hjá Flugleiðum fengum við
þær upplýsingar að erfitt er að
gefa nákvæmar upplýsingar því
verðlag er margbreytilegt og
ýmsir utanaðkomandi þættir
haft þar áhrif, en alla vega er
hægt að gefa lesendum nokkra
hugmynd um þetta mikilvæga
atriði. Apex flug frá íslandi til
New York, ffam og tii baka,
kostar um kr. 25.040 með flug-
vallarsköttum. Flug þaðan til
Mexíkóborgar með Aero Mex-
íkó og til baka kostar um
12.007. Flug þaðan til Acapulco,
og til baka, kostar kr. 3-160, en
skemmtilegra er að keyra þang-
að og er einnig ódýrara. Alls
gerir þetta um 40.207 á mann,
eða kr. 80.414 fyrir tvo í ferða-
kostnað.
Þá er eftir að athuga hvað
gistingin kostar, sem auðvitað
er afar breytilegt eftir því á
hvaða hóteli er gist, en hér eru
nokkur dæmi: Á Holiday Inn í
Mexíkóborg kostar nóttin um
2.590 í tveggja manna herbergi
og við gerum ráð fyrir að gist sé
tvær nætur. Ein nótt í Taxco á
Hotel de la Borda kostar um
1.665, en í Acapulco á Hyatt
Regency hóteli kostar nóttin
um 3-330 og þar gerum við ráð
fyrir að gist sé í 10 nætur. Gist-
ingin reiknast þannig kr. 40.145
fyrir tvo, þannig að ferðir og
gisting eru kr. 120.559. Morg-
unverður er innifalinn í gist-
iverðinu en ofan á þessa tölu
kemur síðan allur annar matar-
kostnaður. Síðan er bara að
reikna út hvað jólin kosta með
öllu... - B.K.
4 VIKAN