Vikan - 26.11.1987, Page 10
Reagan hlýtur að vera orð-
inn einmana í Washington.
Gömlu vinimir, sem komu
með honum frá Kaliforníu,
eru flestir famir. Sá síðasti
sem kvaddi var Caspar Wein-
burger. Brottför hans er op-
inberlega sögð vera vegna
veikinda konu hans. Aðrir
segja að ástæðan sé óánægja
með afvopnunartilhneiging-
ar forsetans.
En það eru fleiri ástæður fyrir
því að menn yfirgefa Reagan.
Ríkisstjórn hans er að ljúka ferli
sínum á næsta ári. Reynslan sýn-
ir að stjórnir eru ekki líklegar til
stórverka við þær aðstæður og
íalla í skuggann af tosningabar-
áttu þeirra sem vilja taka við. Þá
fer ónotakennd um embættis-
og stjórnmálamenn sem hafa
lífsafkomu sína af því að vinna í
stjórnarráðmu. Margir segja upp
og fá sér áðra vinnu síðustu
misseri gömlu stjórnarinnar til
að vera tilbúnir eins og ný-
hreinsaðir hundar til að taka við
störfúm hjá nýrri stjórn. Sumir
þeirra ætla sér líka í kosninga-
baráttu sjálfir til þing- eða- fylk-
iskosninga og vilja ekki láta nafn
sitt tengjast hálflamaðri og af-
kastalítilli ríkisstjórn.
Það er mikil kúnst að halda
sér fysilegum og girnilegum á
vinnumarkaði stjórnkerfisins í
Washington. Borgin er yfirfúll af
rannsóknarstofnunum þar sem
menn skrifa pólitískar greinar-
gerðir eða leiðbeiningarit til að
auka verðgildi sitt til hægri eða
vinstri. Margir vinna líka hjá há-
skólum eða stórfyrirtækjum og
reyna að vekja áhuga þeirra,
sem ráða menn í vinnu fyrir
nýja ríkisstjórn.
En það þarf góða pólitíska
veðurvita til að haga seglum eft-
ir vindi í þessari siglingakeppni.
Eins og málin standa núna er al-
veg á huldu hvor flokkurinn
myndar næstu stjóm. Jafnvel
þótt menn þættust hafa góðar
vísbendingar um það, er ekki
einu sinni hægt að veðja með
góðu móti á ákveðna frambjóð-
endur. Þeir gætu hafa bruggað í
Menntó og þar með dæmt sig úr
leik.
Þegar svona stendur á er ekki
nema tvennt til. Menn geta farið
i felur eins og áður sagði og
mætt svo hreinir sveinar í
vinnumiðlun nýrrar stjórnar.
Það er líka hægt að bera kápuna
á báðum öxlum og biðla til
beggja aðila. Blaðamenn, sem
hafa verið hliðhollir Reagan eru
sumir taldir vera farnir að skrifa
sig frá honum.
Dálkahöfúndurinn George
Will hefúr verið einkavinur for-
setahjónanna og sést borða oft
úti með Nancy Reagan. Hann
skrifaði á síðasta ári hástemmd-
ar greinar um forsetatíð bónda
hennar og sló því föstu að for-
setinn hefði tryggt sér háan sess
í sögunni og breytingar hans á
bandarísku þjóðlífi yrði bæði
varanlegar og stórkostlegar.
Nú skrifar sami George Will í
nýútkominni bók að afrekaskrá
Reagans sé hvorki jafn djarfleg
né kraftmikil og ýmissa fyrir-
rennara hans eins og Roosevelts
og Johnsons, sem báðir voru
demókratar.
Menn spyrja sig hvort George
Will sé að búa sig undir að
borða úti með frú Dukakis eða
frú Cuomo.
„ Afrekaskrá Reagans er hvorki
djarfleg né kraftmikil," skrifaði
George Will í nýútkominni bók.
I fyrra skrifaði sami maður að
Reagan hefði tryggt sér háan sess
í sögunni. En nú er veislan búin.
Ein ástæðan fyrir óþægilegum
timburmönnum að veislunni
afstaðinni er sú, hvernig Reagan
hefur þvælt sig í Iransmálinu . . .
10 VIKAN