Vikan - 26.11.1987, Síða 27
Krydd í jóla
skreytinguna
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
Krydd má nota á ýmsan hátt
annan hcldur en í mat. Margir
hafa gert sér til gamans fyrir
jólin að stinga negulnöglum í
appelsínur og láta svo appelsín-
urnar hanga í snúru einhvers
staðar í íbúðinn. Frá bæði app-
elsínunum og negulnöglunum
leggur þægilegan ilm, sem
smátt og smátta fer að tengjast
jólunum í hugum þeirra sem
hafa haft þetta að sið í langan
tíma.En það má nota fleiri
kryddtegundir en negulnagla.
Hér sjáið þið jólaskreytingu úr
kanelstöngum.
Kanelstangirnar eru þræddar
á snúru og bundnar saman eins
og myndin sýnir. Fyrst eru átta
stengur þræddar á snúruna, og
endarnir bundnir saman svo
þær renni ekki út af og ntynd-
aður úr þeim ferningur. Síðan
eru fjórar stengur teknar og
þræddar á snúru og myndaður
ferningur. Hann er lagður inn í
hinn ferninginn og hornum
innri ferningsins tyllt við ytri
ferninginn þar sem tvær stangir
mætast. Lítil blóm eru notuð til
þess að hylja samskeytin, en
svo má líka hylja þau með
glansmyndum, eins og hér hef-
ur verið gert á myndinni. Ef
einhverjum finnst fremur við
hæfi að hafa englamyndir eða
jólasveinamyndir í staðinn fyrir
blómamyndirnar, er ekkert
sem mælir á móti því. Með því
að velja réttar myndir má
tengja skreytinguna við aðra
árstíð en jólin. Það mætti t.d.
nota mynd af páskaliljum um
páskana.
Allarhanda má þræða upp á
band og hengja einhvers staðar
í íbúðinni, en af því leggur
sterka, þægilega lykt.
Sumir eiga þurrkaðar rósir,
sem ilma enn, og þær mætti
nota í svipaðar skreytingar.
Fáið ykkur vattkúlur í mismun-
andi stærðum. Berið lím utan á
þær og límið rósablöð utan á
kúlurnar. Hægt er að nota
ýmiss þurrkuð blóm eða ilm-
jurtir á sama hátt.
Hér hafa sex kardemommur verið bundnar saman og hengdar neðan
undir Ijós. Ylmurinn af þeim verður mun sterkari, þegar kveikt er á
Ijósinu og hitann leggur frá perunni.
Það er líka hægt að þræða karde-
mommur upp á snúru.
VIKAN 27