Vikan


Vikan - 26.11.1987, Qupperneq 33

Vikan - 26.11.1987, Qupperneq 33
„Michael hjálpar mér að velja á mig föt. Sagt er að Michael Jackson vilji breyta mömmu sinni í Diönu Ross, en: Katherine Jackson: „Það er ekki satt að bömin mín tali ekki við hvert annað, eins og sagt er.“ Hún mætir í viðtalið í hvít- um síðbuxum og hvítri peysu skreyttri glitrandi semaliusteinum, með stóra kringlótta eymalokka í eyr- um og með silfurarmband. Smaragðshringurinn sem hún ber er gjöf frá Michael. — Hvernig er að búa með jafn irægri persónu og Michel? Stundum er það mjög erfitt. Við eigum ekkert einkalíf og við þurfum stöðugt að hafa lífverði hjá okkur. Það eru alltaf ein- hverjir áhangendur Michaels í innkeyrslunni. — Hvaða áhrif hafa Jackson milljónirnar haft á lífsstíl ykkar? Við börðumst í bökkunum í mörg ár hér áður fyrr. Maðurinn minn missti vinnuna rétt áður en Rebe fæddist og hún var orð- in sex ára þegar hann fékk vinnu aftur. Fyrst eftir að peningar barnanna komu til sögunnar fannst mér alltaf eins og þetta væri ævintýri. Það fyrsta sem við keyptum eftir að við eignuð- umst peningana var litasjón- varp. Uppáhaldsgjöfin sem ég hef fengið frá Michael er vín- rauður Rolls Royce. — Michael og La Toya búa bæði heima ennþá, hvað finnst þér um það? Mér finnst það yndislegt. Ég skil ekki hvers vegna foreldrum finnst að bömin eigi að flytja að heiman um leið og þau verða 18 ára. Ég reyni að vera þeim stoð og stytta og mér finnst ég enn hafa töluverð áhrif á þau. Michael spyr mig enn ráða og hann hjálpar mér að velja á mig föt. Hann minnir mig á að mála á mér varirnar þegar von er á gestum og hann er að hvetja mig til að grenna mig. Hann segir: „Elizabeth (Taylor) er búin að missa öll þessi kíló. Ef hún getur það þá getur þú það líka. Og ef þér líkar það ekki þá geturðu alltaf farið í fegrunar- skurðaðgerð." En það mundi ég ekki gera. - Hefur Michael farið í marg- ar fegrunarskurðaðgerðir? Ég vil að sannleikurinn komi fram í þeim efhum. Hann lét laga á sér nefið og lét setja skarð í hökuna á sér. Hvers vegna veit ég ekki. — Hver var raunveruleg á- stæða þess að Michael yfirgaf Votta Jehóva söfhuðinn? Hann hætti af ástæðum sem hann einn þekkir. Hann kemur kannski aftur. En það er ekki satt að ég megi ekki tala við hann af því hann hætti í söfnuðinum. Við tölum oft saman og föðmum hvort annað. Það er alls ekki satt að bömin mín tali ekki við hvert annað, eins og sagt hefur verið. Ef eitthvað bjátar á hjá einhverju þeirra þá höldum við fjöl- skyldufund þar sem við reynum í sameiningu að leysa málin. — Hvernig verður þér við að HvaÍ scdir Michael Jacksons? heyra sögusagnir um að Michael sé eitthvað skrítinn? Ég les ekki lengur allt þetta slæma sem skrifað er. Ég tók þetta mjög nærri mér fyrst. — Ertu grænmetisæta eins og Michael? Já, en ég hef ekki alltaf verið það. Þegar við vorum fátæk þá þurftum við að gefa níu bömum að borða. Maðurinn minn keypti vanalega hálfan nauta- skrokk sem við geymdum í frystinum og úr kjötinu mat- reiddi ég einfaldar máltíðir. Núna höfum við kokk. - Það virðist sem þú eigir allt. Fjölskylda þín frægð og frama, er eitthvað sem þig langar í? Mig langar að ferðast til Sviss, Italíu og Egyptalanðs og mig langar að sjá Baryshnikov dansa. Nei. Þegar ég var lítil þá dreymdi mig alltaf um að kom- ast til Hollywood, en raunvem- leikinn er ekki eins og draum- urinn. Bestu ár ævi minnar vom þegar Michael var þriggja ára og ég söng þjóðlög fyrir bömin mín. Mig íangaði alltaf til að syngja sveitasöngva, en í þá daga vom sveitalagasöngkonur ekki svartar. Ég söng með börn- unum og einn daginn sagði ég við manninn minn að hann skyldi koma og hlusta á strákana því þeir væm í rauninni mjög góðir. Það kom honum reglu- lega á óvart hversu góðir þeir vom orðnir. Ég mundi með glöðu geði skipta á þeim tímum sem ég lifi í dag fyrir þessi ár. US, 2.11.87/BK VIKAN 33
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.