Vikan


Vikan - 26.11.1987, Qupperneq 47

Vikan - 26.11.1987, Qupperneq 47
Ströndin í Acapulso er hrein og hvít og sjórinn grænn og hlýr. Þarna er hægt að fara á sverð fiskveiðar, eða í fallhlíf sem dregin er af bát, sem er ógleymanlegt ævintýri. Þessi gamli maður hafði komið sér vel fyrir í skugganum og seldi alls konar útskoma muni úr tré — og verst þótti okkur hvað það má hafa lítinn farangur með sér í flugvélinni heim! silfurnámubær, sem liggur utan í fjallshlíð í um 2000 m hæð. Nú er einungis unnið silfúr úr nám- unum í fjallinu en þegar kirkjan í bænum er skoðuð sést að þar hefúr ekki skort gullið, því nærri hver einasti hlutur þar inni er gylltur. Eins gott er að halda vel um budduna því þó bærinn sé lítill eru þarna yfir 100 skart- gripaverslanir þar sem seldir eru forkunnar fagrir handunnir silfurgripir. Því miður herjaði “hefnd Montezuma" á okkur fullorðna fólkið þegar við gist- um þennan bæ, þannig að við neyddumst til að halda okkur nærri hótelinu og skoðuðum því bæinn ekki sem skyldi, en hægt er að fá að skoða silfur- námurnar sem án efa er mjög fróðlegt og skemmtilegt. Frá Taxco er um fjögurra tíma keyrsla til Acapulco og er ferðin niður fjalllendið nokkuð hrikaleg, en við íslendingar kippuni okkur ekki upp við slíkt, sérstaklega ekki á ntalbik- uðum vegum. Á leiðinni sáum við oft krakka standa við veginn með stórar eðlur, sem í útliti líktust mikið þeim fornaldar- skrímslum sem menn hafa séð á myndum. Okkur var sagt að þau væru að bjóða eðlurnar til kaups því þetta þætti mesti herra- mannsmatur. Acapulcoflóinn er alveg eins og ströndin sem maður hafði séð fyrir sér í draumnum: hvít bogalöguð strönd, pálmatré blaktandi í hlýrri golunni og grænblátt haflð svo langt sem augað eygði. Acapulco er staður til að slappa af, þar er siestan tekin hátíðlega og ekki nokkur maður á ferli á götum úti; menn eru annað hvort dormandi und- ir pálmasólhlíf á ströndinni og bíða þess að þjónninn færi þeim ískaldan bjór eða suðrænan drykk í holuðum ananasávexti, eða þá að menn eru að synda í sundlauginni við hótelið sitt. Kvöldlífið er fjölbreytt, ara- grúi af góðum veitingastöðum og fjöldinn allur af diskótekum. Margir veitingastaðanna eru al- veg niður við strönd, sérstak- lega flskistaðirnir, og engar rúð- ur í gluggum enda veðrið á kvöldin alveg himneskt. Fyrir utan gluggana eru sölumenn á ferli og reyna að selja gestunum skartgripi, handofm teppi og annað þvíumlíkt — við komum heim með tvö teppi og fjöldan allan af alls konar leirhlutum. Eftir matinn fer fólk gjarnan í kvöldgöngu, annað hvort eftir ströndinni eða um götur bæjar- ins þar sem mannlífið er fjöl- skrúðugt í meira lagi. Eitt er víst, að þeir sem dvelja í Mexíkó yfir stórhátíðina, koma til með að eiga þar ógleyman- legar stundir og verða án efa mun afslappaðri og hressari í dimmasta skammdeginu en við sem heima sátum... en við höld- um bara áfram að láta okkur dreyma. VIKAN 47
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.