Vikan - 26.11.1987, Blaðsíða 51
....önnur á 3ja ára
Efni: Bingo garn 5 hnotur.
Prjónar nr. 3 og 31/2.
Stærð: 3 ára.
Prjónafesía: 24 I. x 32 umferðir
= 10x10 cm. á prjóna nr. 3 1/2.
Bolur: Fitjið upp 120 I. á prjóna
nr. 3 og prjónið 1 I. sl., 1 I. br. 14
umf. Skiptið yfir á prjóna nr. 31/2
og aukið út í 160 I. Prjónið
mynstur. Prjónið þar til bolur
mælist 24 sm að handvegi, prjón-
ið þá fram og aftur.
Bakstykki: Prjónið bakstykkið
þar til það mælist 16 sm frá hand-
vegi. Geymið 20 miðlykkjur.
Prjónið axlirnar fram og aftur 4
umferðir. Takið 2 I. saman í 2.
hverri umferð tvisvar sinnum (28)
I. eftir á hvorri öxl.)
Framstykki: Prjónið þar til fram-
stykkið mælist 11 sm frá hand-
vegi, geymið 12 miðlykkjur. Takið
út fyrir hálsmáli í 2. hverri umferð
tvisvar sinnum 21., tvisvar sinnum
1 I. Prjónið síðan þar til fram-
stykkið er jafnhátt og bakstykkið.
Ermar: Fitjið upp 361. á prjóna nr.
3 og prjónið 1 I. sl., 1 I. br. 14 umf.
Skiptið yfir á prjóna nr. 31/2 og
aukið jafnt út um 28 I. (64 I. á
prjóninum). Prjónið mynstur. Auk-
ið út í 8. hverri umferð um 2 I. 8
sinnum (801. á prjóninum). Prjón-
ið þar til ermin mælist 28 sm.
Prjónið hina ermina eins.
Hálsmál: Takið upp 80 I. í háls-
máli á prjóna nr. 3 og prjónið 1 I.
sl„ 1 I. br. 20 umf. Fellið laust af.
Brjótið kragann inn og saumið
lauslega niður.
Frágangur: Lykkið ermar við
handveg (má líka fella af og
sauma saman). Gangið síðan frá
öllum endum.
xoooooooxoooooooxooooooo
xoooooooxoooooooxooooooo
xxoooooxxxoooooxxxooooox
, xxoooooxxxoooooxxxooooox
Mynstur: XXXOOOXXXXXOOOXXXXXOOOXX
, ,. .... xxxoooxxxxxoooxxxxxoooxx
x = brugðin lykkja XXXXOXXXXXXXOXXXXXXXOXXX
o = slétt lykkja XXXXOXXXXXXXOXXXXXXXOXXX
Það er erfitt að vera 3ja ára ljósmyndafyrirsæta, en gott að fá nýja
peysu....
Stjörnuspá fyrir vikuna 26. nóvember - 2. desember
Hrúturinn
21. mars - 20. apríl.
Það er erfitt núna að halda
vinnunni og einkalífinu aðskildu.
Taktu vinnuna ekki með heim. Fjöl-
skyldan er að verða dálítið ó-
ánægð með þig heima fyrir.
Nautið
21. apríl - 21. maí.
Nú er góður tími fyrir þig
og þann sem þér þykir vænt um til
að skipuleggja framtíðina. Þú hef-
ur marga góða hæfileika og veldu
þér endilega einhvern sem styður
þig í að sinna áhugamálunum.
Tvíburarnir
22. maí - 21. júní.
Þú ert dálítið annars hugar
þessa dagana, en nærð góðu
sambandi við makann. Málefni
varðandi fjármál taka töluvert af
tíma þínum en gættu þess að af-
greiða ekkert í fljótfærni.
Krabbinn
22. júní - 22. júlí.
Samkomulagið milli þín og
fjölskyldunnar er ekki upp á marga
fiska. Reyndu að sýna meiri tillits-
semi. Þér gengur aftur á móti vel í
vinnunni og framtíðin er björt.
Ljónið
23. júlí - 23. ágúst.
Það er mikilvægt fyrir þig
nú að umgangast fólkið sem virki-
lega skiptir þig máli. Þú ættir einn-
ig að leggja áherslu á að bæta
mataræðið og stunda einhverja
líkamsrækt.
Meyjan
24. ágúst - 23. sept.
Þú vilt gjarnan halda þig í
margmenni þessa vikuna og maki
þinn mun styðja þig í því. Þurfirðu
að fara í viðtal í banka, þá eru lík-
ur til þess að allt fari eins og þú
óskar.
Vogin
24. sept. - 23. okt.
Fólkið í kringum þig á,
aldrei þessu vant, erfitt með að ná
sambandi við þig. Eflaust ertu að
vinna að einhverju skemmtilegu en
gleymdu samt ekki þínum nán-
ustu.
Sporðdrekinn
24. okt. - 22. nóv.
Öllum erindum sem þú
þarft að sinna bréflega eða mæta
á staðinn, ættirðu að drífa í. Þú átt
gott með að eignast vini og kynnist
líklega nýjum vini á næstunni sem
á eftir að reynast þér vel.
Bogamaðurinn
23.nóv. - 21. des.
Þú getur líka notfært þér
persónutöfrana eins og aðrir, þeg-
ar erfiðleikar steðja að. Þig skortir
heildaryfirsýn til að geta lokið við
þau verkefni sem þér eru ætluð,
reyndu að bæta þar úr.
Steingeitin
22.des. - 20. janúar.
( þessari viku er þér óhætt
að bera upp óskir þínar við þann
sem þér þykir vænt um. Þú vilt
helst sinna léttu verkunum og
sleppa þeim erfiðu, ekki er þetta
leti eða hvað?
Vatnsberinn
21. janúar - 18. febrúar.
Þér fellur ekki að þurfa að
treysta á aðra, en nú finnst þér þú
þurfa á einhverjum að halda. Pen-
ingar eru af skornum skammti og
gættu þess að lána ekki þetta litla
sem til er og fáðu umfram allt ekki
lánað.
Fiskar
19. febrúar - 20. mars.
Vertu sérlega góð(ur) við
sjálfa(n) þig þessa dagana, þú átt
það skilið. ( vinnunni er persóna
sem dálítið erfitt er að vinna með,
en þú mátt ekki gefa eftir.
VIKAN 51
STJÖRNUSPÁ