Vikan - 26.11.1987, Page 55
Úr poppinu í Poppkornið
Eins og sjónvarpsáhorfendur
af yngri kynslóðinni hafa sjálf-
sagt orðið varir við, hefur Jón
Ólafsson tekið við stjórninni á
Poppkorni. Jón er vel þekktur
sem fjölmiðlamaður og var um
langan tíma sá hressasti á út-
varpsbylgjunum þegar hann
fór á kostum í þáttum sínum á
Rás 2. Jón lét af störfum á Rás-
inni er hann fór til Hollands að
nema píanóleik og var hans
sárt saknað.
En nú er Jón aftur tekinn við
þætti á Rásinni og er hann á
dagskránni á laugardagseftirmið-
dögum. Ef hlustendur leggja eyr-
un við er líklegt að þeir fái að
njóta vel valinnar tónlistar f bland
við hæfilegt kjaftæði og rugl.
Kannski spilar hann meira að
segja lagið „Jón bulli“.
En Jón er sem sagt farinn að
starfa við Sjónvarpið og stýrir þar
Poppkorni af einstakri snilld. [
þáttum sínum leggur hann
áherslu á íslenska tónlist og
kynnir hana með miklum létt-
leika. Þá fær hann flytjendur til að
mæta til sín í útsendingu og rekur
úr þeim garnirnar.
Jón er vel kunnugur í tónlistar-
bransanum þar sem hann var
sjálfur einn meðlima Bítlavina-
félagsins ásamt því sem hann var
annar helmingur Possibillies dú-
ettsins. Ekki er að efa að léttleik-
inn og fjörið verði einkennandi
fyrir þættina. - AE
Maðurinn sem fór úr poppinu
í Poppkornið, Jón Ólafsson.
Kvikmyndafríkið císli Snær
Gísli Snær Erlingsson er mað-
urinn sem ásamt Ævari Erni
Jósepssyni hneykslaði ís-
lenska sjónvarpsáhorfendur á
efri árum þegar þeir félagar
tóku við Poppkornsþáttunum.
Spreilið og flippið voru í há-
vegum höfð og sjaldan eða
aldrei hefur annað eins flipp
sést á sjónvarpsskerminum.
[ dag starfar Gísli sem upp-
tökustjóri hjá Sjónvarpinu og
stjórnar þar meðal annars upp-
tökum á þáttunum Annir og app-
elsínur og Nýjasta tækni og vís-
Kvikmyndun virðist eiga hug
hans allan og í tilefni af því að
Gísli er með vikulega kvikmynda-
umfjöllun í hádegisþætti Rósu
Guðbjartsdóttur á Stjörnunni á
föstudögum ákvað blaðamaður
Vikunnar að spyrja Gísla hvort
hann hefði eitthvað lært í sam-
bandi við kvikmyndun.
„Nei, eina skólamenntunin mín
er stúdentspróf frá FB, en stefnan
er tekin á nám á erlendri grundu.
Ég hef samt unnið við kvikmyndir.
Ég var framkvæmdastjóri við
vinnslu myndarinnar Skytturnar
og vann við ýmislegt í sambandi
við ( skugga hrafnsins og svo
vinn ég núna hjá Sjónvarpinu."
- Ertu kvikmyndafrík?
„Það má kannski segja það. Ég
hef allavega ofboðslega gaman
af þessu og ætla að vinna við það
á meðan svo er. Ef ég fæ ein-
hverntfma leið á þessu fer ég
bara út í eitthvað annað. Kannski
lögfræði," bætir hann svo við og
glottir.
- Hvað með þessa kvikmynda-
gagnrýni þfna?
„Ekki kalla þetta gagnrýni.
Þetta er frekar umfjöllun á lóttum
nótum. Ég nenni ekki að vera að
kaffæra fólk í fagorðum og þung-
um bollaleggingum í hádeginu.
Þetta verður svona létt úttekt á
kvikmyndunum sem eru í boði þá
stundina."
- Ætlið þið Ævar að sprella
eitthvað saman á næstunni?
„Við erum með leynibrall í
gangi. Ég segi ekkert um hvað
það er, en ætli þetta verði ekki
einhvers konar „comeback" - A
STJÖRNUFRÉTTIR
Fréttir Stjörnunnar vekja athygli.
Stjörnufréttir eru alvörufréttir, fluttará
ferskan hátt. Fréttir fyrir fólk.
Stjörnufréttir allan sólarhringinn: Kl.
8, 10, 12, 14, 16, 18 og 23 alla virka
daga, kl. 10, 12 og 18 un\ helgar, kl. 2
og 4 um nætur.
Skínandi fréttir
á FM 102 og 104