Vikan - 26.11.1987, Síða 62
Bamba
er mei
en ba
sorgle
mynd
Þessa dagana sýnir Stjörnu-
bíó kvikmyndina La Bamba
sem fjallar um hina sorglega
stuttu ævi Ritchie Valens, en
hann lést aðeins sautján ára að
aldri í flugslysi ásamt Buddy
Holly eftir að hafa verið rokk-
stjarna f átta mánuði. Myndin
er átakanlega sorgleg svo að
venjulegum áhorfendum þykir
nóg um. Hvernig skyldi þá
þeim sem myndin snertir per-
sónulega líða?
i kvikmyndahúsi f Sacramento
í Kaliforníu situr hálffimmtug
kona og hágrætur. Hún er þybbin,
Ijóshærð og glaðleg dags dag-
lega. En ekki þegar hún horfir á
myndina La Bamba. Hún heitir
nefnilega Donna Fo-Coots, en
hét áður Donna Ludwig og var
kærasta Ritchie Valens. í dag er
hún gift tveggja barna móðir, en
hún getur aldrei gleymt Ritchie.
Þeir leika bræðurna í kvikmyndinni La Bamba, Lou Diamond og Esai Morales.
„Ég held að mér sé óhætt að
segja að myndin sé raunsönn,"
segir Donna. „Að vísu er Danielle
von Zerneck sem leikur mig sæt-
ari en ég var, en sambandið á
milli okkar Ritchie er sýnt eins og
það var. Pabbi gerði allt sem
hann gat til að stía okkur í sundur
og leyfði mér ekki að tala við
hann í síma.“
„Það er alveg satt sem sýnt er í
myndinni hvernig Ritchie flutti
lagið Donna fyrir mig í fyrsta sinn.
Hann söng það fyrir mig í gegn-
um síma og enn þann dag f dag
fæ ég sting f hjartað þegar ég
heyri það leikið í útvarpinu, þetta
er jú lagið mitt.“
Þeir eru fleiri sem myndin
snertir meira en óbreytta áhorf-
endur. Bróðir Ritchie Valens,
Bob, sem er leikinn af Esai Mora-
les í myndinni, er rúmlega fimm-
tugur í dag.
Um bróður sinn segir Bob: „Ég
var afbrýðisamur út í hann.
Vegna þess að hann sló f gegn
hann gat keypt nýtt hús handa
mömmu og gert hluti sem ég
hefði viljað gera, en gat ekki.
Samt þótti mér mjög vænt um
hann og mér er sérstaklega minn-
isstætt síðasta samtalið okkar, en
hann hringdi f mig fáum klukku-
stundum fyrir slysið og bað mig
að koma og vera með sér á
hljómleikaferðalaginu."
„Slysið fékk að sjálfsögðu mjög
á mig og ég byrjaði að drekka á
ný, en ég var búinn að hanga þurr
í þrjá mánuði. Svo tóku eiturlyfin
við, en nú er ég búinn að hreinsa
mig af öllu slíku og starfa við að
aðstoða unglinga sem eiga í
vanda með fíkniefni.“
„Ég held að myndin sem er
dregin upp af mér í kvikmyndinni
sé ekki fjarri lagi. Drykkjan og of-
beldið eru ekkert ýkt. Aftur á móti
finnst mér líka koma vel fram að
mér þótti vænt um fjölskylduna og
ég er ánægður með það. Myndin
er verðugur minnisvarði um bróð-
ur minn.“
STILLTU Á STJÖRNUNA
Stiarnan er stillt á
Þíg
FM 102,2 og 104
Auglýsingasími 689910