Vikan - 03.12.1987, Page 6
Lögregluþjónar og bæjarstarfsmenn hjálpast að við að fjarlægja „gullna hliðið“ eins og gárung-
arnir kölluðu það.
það kvöld sýndu rúntarar samstöðu um að þakka fyrir sig með
þeim hætti að ekki heyrðist eitt einasta flaut allt kvöldið.
AKUREYRI:
Rúntarar unnu orrustu
—en tapa þeir stríðinu?
MYNDIR OG TEXTI:
ADOLF ERLINGSSON
Miðbæjarlífíð er mikið í
deiglunni á Akureyri þessa
dagana. Vegna kvartana íbúa
við Ráðhústorg um hávaða á
nætumar var ákveðið að
loka torginu fyrir bíla-
umferð firá klukkan tíu á
kvöldin til klukkan átta á
morgnana. í því skyni var í
síðustu viku sett upp forláta
hlið sem rúntinum var lokað
með. Viðbrögð rúntara létu
ekki á sér standa og fjögur
kvöld fengu Akureyringar
að kenna á reiði þeirra er
þeir keyrðu um allan bæ og
þeyttu bílflautur.
Allt að 100 bílar voru í hala-
rófúnni sem fór um bæinn þeyt-
andi hornin linnulaust fram á
nótt og varð íbúum ekki svefn-
samt vegna hávaða. Eftir fjögur
óróasöm kvöld var bæjarstjóra
nóg boðið á föstudag og í sam-
ráði við bæjarfógeta var ákveðið
að hliðið skyldi fjarlægt um
stundarsakir. Líklegt er að sú á-
kvörðun hafi verið tekin vegna
gruns um að mótmælin myndu
ná hámarki um helgina.
Fé „til höfuðs"
hliðinu
Sá grunur var á rökum reistur
því undirritaður heyrði af ýms-
um aðgerðum sem voru í bígerð
fyrir helgina. Á miðvikudaginn
hafði bílflak verið hlekkjað við
hliðið umdeilda og þuríti log-
suðutæki til að losa það svo
hægt væri að loka hliðinu. Á
föstudag var svo búið að stofna
sjóð sem rúntarar lögð frjáls
framlög í, en sú hetja sem kæmi
hliðinu fyrir kattarnef átti að fá
alla peningana sem safnast
hefðu.
Einnig var ákveðið að kveikja
í bílhræjum hér og þar um bæ-
inn til að leggja áherslu á kröf-
urnar um opnun rúntins. Að síð-
ustu hótuðu rúntarar því að
þeyta horn bíla sinna fyrir utan
bæði sjúkrahúsið og elliheimilið
frarn eftir nóttu. Talið er að hið
síðastnefnda hafi ekki skipt hvað
minnstu máli þegar ákvörðunin
var tekin um að fjarlægja hliðið.
Eins og fyrr sagði voru það
bæjarstjóri og fógeti sem tóku
þá ákvörðun, en þeir hafa í raun
ekki heimild til þess nema þá í
einhvern afmarkaðan tíma þar
eð uppsetning hliðsins var á-
kvörðun bæjarstjórnar og var
byggð á tillögum frá skipulags-
nefnd bæjarins. í>ví er talið lík-
legt að hliðinu verði komið fyrir
á nýjan leik, en erfitt er að
ímynda sér annað en að mót-
mæli hefjist á ný ef það verður
gert.
Þó að rúntarar fari með sigur
af hólmi í rimmunni um hliðið
verður það skammgóður
vermir, því samkvæmt miðbæj-
arskipulagi sem samþykkt var
1981 á Ráðhústorg að verða
göngusvæði og í síðustu viku
rann út skilafrestur tillagna í
samkeppni um skipulag og mót-
un Ráðhústorgs og Skátagils
sem liggur upp frá því. í útboðs-
lýsingu var gengið út frá því að
torgið ætti að verða göngu-
svæði, svo að engu skiptir hvaða
tillaga verður fyrir valinu, rúnt-
urinn hverfúr.
Þrír forhertir rúntarar: Hjörleifúr, Bjöm Þór og Víkingur.
Blaðamaður Vikunnar brá sér
í bæinn og tók nokkra forherta
rúntara tali. Þetta höfðu þeir
Hjörleifúr, Björn Þór og Víking-
ur um málið að segja: „Við erum
alls ekki sáttir við það að bæjar-
yfirvöld ætli að loka rúntinum
fyrir okkur. Torgið er eini rök-
rétti staðurinn til að rúnta á, það
er mitt á milli skemmtistaðanna,
hefúr alltaf verið miðpunktur-
inn í bæjarlífinu og þar býr til-
tölulega fátt fólk.“
„Ef rúntinum verður lokað
eykst akstur í íbúðargötum í
kring og ekki getur það verið
skárra. Að auki höldum við að
megnið af hávaðanum komi ffá
fólkinu sem safnast fyrir á torg-
inu, en ekki frá bílunum. Við
ætlum að berjast ótrauðir gegn
lokun rúntsins, en ef honum
verður breytt í göngusvæði
verðum við að finna nýjan
rúnt.“
Ingimar Skjóldal lögregluvarðstjóri:
Höfum reynt að
komast hjá vandræðum
Lögreglan á Akureyri hefúr
verið harðlega gagnrýnd fyrir að
taka of vægt á látum í miðbæn-
um og sumir hafa viljað ganga
svo langt að halda því fram að
þeir standi sig ekki í því að
halda uppi Iögum og reglu í
miðbænum. Steininn tók svo úr
í síðustu viku þegar rúntarar
héldu vöku fyrir bæjarbúum
með flautukonsert sínum. Um
þetta sagði Ingimar Skjóldal lög-
regluvarðstjóri: „Við eigum ekki
hægt um vik með að vakta mið-
bæinn stöðugt á kvöldin. Við
erum fáliðaðir og um helgar
þegar lætin eru sem mest þurf-
um við að sinna fjöldanum af
öðrum útköllum. Við höfum
hreinlega ekki nægan
mannskap. f sambandi við að-
gerðir okkar gegn rúnturum má
segja að við fylgdumst vel með
þeim í aðgerðum þeirra og höf-
um kært fjölda þeirra fyrir um-
ferðarlagabrot. Eg held að ef við
hefðum gengið á röðina og sekt-
að alla fyrir að flauta hefði allt
orðið vitlaust. Við tókum á mál-
unum eins og okkur fannst
skynsamlegast og reyndum að
halda uppi lögum og reglu án
þess að til illinda kæmi.“
Finnur Birgisson
skipulagsstjóri:
Bæjaryfirvöld
standa
í löggæslu
Um lokunina sagði Finnur
Birgisson skipulagsstjóri Akur-
eyrarbæjar að hún hefði verið til
komin vegna kvartana íbúa við
Ráðhústorg vegna hávaða á
kvöldin og á næturnar. „Lögregl-
an stendur sig ekki í því að
koma í veg fyrir glannaskap og
fíflalæti á bílum á rúntinum. Því
má segja að bæjaryfirvöld séu að
reyna að firamfylgja lögreglu-
samþykkt um að íbúar hverfis-
ins hafi rétt til að fá svefhfrið.
Lögreglan hefúr einfaldlega ekki
staðið sig í þessum málum svo
að til einhverra neyðarúrræða
varð að grípa. Hliðið verður
ekki fjarlægt til langs tíma nema
bæjarstjórn taki ákvörðun þar
um. Ég held að það hafi verið
tekið núna vegna þess að lög-
reglan hefúr ekki treyst sér til
að koma í veg fyrir skrílslæti um
helgina."
Um ffamtíð torgsins hafði
Finnur þetta að segja: „Sam-
kvæmt miðbæjarskipulagi verð-
ur þetta göngusvæði og ekki
býst ég við því að bílaumferð
verði leyfð þar á kvöldin, alla
vega var ekki gengið út frá því í
útboðinu þegar óskað var eftir
tillögum um skipulagningu
svæðisins."
6 VIKAN
VIKAN 7