Vikan


Vikan - 03.12.1987, Blaðsíða 15

Vikan - 03.12.1987, Blaðsíða 15
Ámi Sveinbjöm Mathiesen stendur hér á Strandgötunni í Hafharfirði með Bókaverslun Olivers Steins í baksýn. Þar var áður áfengis- útsala. Það var fyrir stríð og bannár. í febrúar í fyrra var hmndið af stað undirskriftasöfnun í Firðinum þar sem skorað var á bæjar- yfirvöld að efna til atkvæðagreiðslu í Hafnarfirði um það, hvort opna ætti áfengisútsölu að nýju í bænum. Bæjaryfirvöld urðu við áskoruninni og í skoðanakönnun bæjarins í mars tóku þátt hátt í jafti margir bæjarbúar og tekið höfðu þátt í bæjarstjómarkosning- unum næst á undan. Úrslit vom ótvíræð: 82 prósent þeirra sem atkvæði greiddu vildu fá áfengisútsölu. Fleiri bæjarfélög fylgdu í kjöl- farið og efndu til atkvæðagreiðslu af sama toga. Úrslitin urðu alls staðar hin sömu, yfirgnæfandi meirihluti vildi íá áfengisútsölu í eigið bæjarfélag. Hér á ámm áður var meirihlutinn hins vegar langoftast andsnúinn því en breytt viðhorf til áfengismála ráða nú ferðinni. borist það bréf sem mér skilst að sé á leiðinni til okkar varð- andi þetta. En varðandi verslun- ina á Ólafsvík þá Ieituðum við eftir samstarfl við verslun á staðnum. Aftur á móti á alveg eftir að marka stefhu varðandi hvers konar verslanir koma helst til greina sem samstarfsað- ilar og þá sérstaklega hvort þetta eigi að vera matvöruversl- anir eða aðrar verslanir." Þykja matvöru- verslanir ekki ákjósanlegar? „Heilbrigðisráðuneytið vill helst hafa áfengisverslanir alveg einangraðar ffá öðrum verslun- arrekstri. Síðan er sú skoðun í gangi að áfengi eigi ekki að vera til sölu í verslunum sem menn koma í daglega og undir þær flokkast matvöruverslanir." — í mörgum öðrum löndum þykir sjálfsagt að hafa vín til sölu á sama stað og menn versla í matinn, er okkur íslendingum sem sagt ekki treystandi fyrir þannig verslunarmáta? „Ég vil nú ekki tjá mig um á- fengisstefhuna sem hér ríkir, en eins og þú veist er okkur ekki treyst til að kaupa bjór. Byggt er á afar gömlum lögum sem ef- laust eiga eftir að breytast tölu- vert í framtíðinni." — Hvað með útibú fyrir ná- grannabæjarfélögin, eru þau á næsta leyti? „Það þarf að gera áætlun um það hvernig áfengisútsölur eigi að dreifast á Stór-Reykjavíkur- svæðinu og verið er að vinna í þessu. Komið hefur til tals að hafa tvær stórar útsölur þar sem seldar verða allar þær tegundir sem ÁTVR hefúr á boðstólnum og síðan væru nokkarar minni sem seldu allar algengustu gerðir. Á meðan þessi áætlun liggur ekki fyrir verða ákvarðan- ir um opnun nýrra útibúa ekki teknar. Síðan er það Alþingi sem ákveður fjárlögin og þegar verið er að skera allt niður er erfitt að réttlæta miklar fjárveitingar til opnunar áfengisútibúa. Jafnvel þó ódýr og hagkvæmur kostur bjóðist í húsnæðismálum þá geta komið upp sjónarmið þar sem peningasjónarmiðin eru ekki ráðandi og þá komum við aftur inn á það hvort auðvelt eigi að vera að nálgast áfengi eða ekki; heilbrigðismálaráðu- neytið vill fá að hafa skoðun á málinu. Ódýrasti kosturinn er aftur á móti að gera þetta frjálst." Umboðsmönnum veitt leyfi fyrir útsölu- stöðum áfengis Þessu síðasta er Árni Sv. - Mathiesen í Hafnarfirði sam- mála, en á tímum fyrri ríkis- stjórnar ritaði hann Þorsteini Pálssyni bréf þar sem hann bauð upp á umræðu um breytingar á afgreiðslu á áfengi. Þar gerði hann ráð fyrir að ríkið afsalaði sér einkaleyfinu á sölu á áfengi og gæfi hana frjálsa. Þá yrði veitt leyfi fyrir útsölustaði og menn seldu áfengið í umboðssölu, líkt og tóbak er selt nú, og þægju umboðslaun fyrir. Ríkið væri eftir sem áður innflytjandinn, en sparaði sér með þessu allan út- lagðan kostnað við sölu á áfeng- inu, s.s. laun starfsmanna og húsnæðiskostnað. Árni hafði áhuga á að gerast þannig um- boðsmaður og að opna áfeng- isverslun á einhverjum hentug- um stað í Hafnarfirði. Þorsteinn svaraði í bréfinu og sagði að ekki væri hægt að selja áfengi á þann hátt sem Árni legði til þar sem það væri ó- heimilt samkvæmt lögum. Árni sagði að aðal ástæðan fyrir bréf- inu hefði verið sú að hann hafi viljað opna þessa umræðu til þess að reyna að stuðla að því að lögunum um þessi mál yrði breytt. Hann sagðist vera ánægður með að heyra að ein- hverjar breytingar væru farnar af stað, en sagði að sú lausn sem hann hafi talað um væri tví- mælalaust hagkvæmust fyrir ríkið, en alla vega væri gott ef nú væri eitthvað að gerast sem gæti orðið til þess að Hafnfirð- ingar fengju áfengisútsölu í bæinn. Ljóst er að margir hafa skoðanir á þessu máli og einnig að margir eru á móti því að fólki verði gert hægara um vik með að versla áfengi, en þegar hafa örlitlar breytingar átt sér stað og nú er bara að sjá hvort aðrar og stærri fylgja ekki þar á eftir...var einhver að nefha bjórinn? —B.K VIKAN 15 UÖSM.: M. HJÖRLEIF!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.