Vikan - 03.12.1987, Blaðsíða 39
Pappírs hús
Þetta hús er gaman aö búa til og
skreyta og svo má nota þaö sem
nafnspjöld í afmælisboði. Best er að
nota þunnt hvítt karton, eða annan
stífan pappír. Pappírinn erfyrst brot-
inn í helming og síðan aftur í
helming, þannig að hann er brotinn í
fjóra jafna hluta. Síðan er hann tek-
inn í sundur aftur og brotinn á þann
hátt sem sýnt er á teikningunni.
1. Hægri og vinstri helmingar brotnir að
miðju og síðan opnaðir aftur.
2. Hægra og vinstra horn brotið niður
þannig að þau myndi þríhyrninga.
Slétt úr þeim aftur.
3. Hægri og vinsti hlið settar að miðju
aftur. Hliðarnar opnaðar og þríhyrn-
ingarnir pressaðir létt niður.
4. Teiknið dyr og glugga á húsið og
skreytið að vild.
Handbrúftur
Einfalt og ódýrt er að búa til hand-
brúður úr pappír. ( þær eru notaðar
þunnur kartonpappír í mismunandi
litum. Byrjað er á því að brjóta örk í
þrennt á lengdina, síðan í fjóra hluta
þannig að efsti og neðsti hlutinn
mætist í miðju. Brjótið enn einu sinni
um miðju þannig að opin snúi út.
Þumalputti er settur í neðra hólfið og
hinir puttarnir í það efra og þeir
hreyfðir til að láta brúðuna tala. Á
hana eru límdir alls konar hlutir til
skrauts. s.s. tennur, tunga, augu ,
nef og stór skrautleg eyru og þá er
hún tilbúin.
1. Pappírörkin
brotin í brennt
á lengdina.
og opnu endarnir brotnir
að miðju.
3. Brotin í helming og
opnu endarnir látnir snúa út.
4. Skraut límt á
og puttarnirsettir
í hólfin og brúðan
látin tala.
VIKAN 39