Vikan


Vikan - 03.12.1987, Blaðsíða 23

Vikan - 03.12.1987, Blaðsíða 23
Ólafur Eliasson, þekktur safnari og fræðimaður og Frank C Moony sem sérhæf- ir sig í söfnun tölustimpla, spá í markaðinn. Fyrir aftan þá stendur Sigtryggur Eyþórsson, gjaldkeri Lands- sambands íslenskra frímerkjasafnara. beim berst, leysa þau upp, þurrka og setja inn í möppu. Fyrir þá er söfnunin tómstunda- gaman sem veitir þeim afslöpp- un og jafnvel visst stolt. Hinn hópurinn er svo alvarlegri safn- arar sem vinna markvisst að því að safha einhverjum afmörkuð- um merkjum og leggja svo allt up úr því að fúllkomna safnið. Safnar frímerkjum og minnispeningum Einn úr síðari hópnum er Sig- urður R. Pétursson sem hefur um árabil verið í fremstu röð safnara hérlendis. Hann hefúr gegnt formennsku í Landssamb- andi íslenskra ffímerkjasafnara, Skandinavíuklúbbnum og Félagi ffímerkjasafnara í Reykjavík. Auk þess hefur hann gegnt ýms- um öðrum embættum innan þessara félaga. Sérsvið Sigurðar eru þrjú, hann safnar íslenskum og norskum ffímerkjum og auk þess minningarpeningum. í til- efni af skiptimarkaðinum gekk Vikan á hans fúnd til að fræðast meira um safúarana og Sigurður var fyrst spurður hvað það væri að vera safnari. „Safnarar eru allir sem safna einhverjum ákveðnum hlutum og halda þeim til haga á skipu- legan hátt. Það þarf ekki að vera í miklum mæli til að menn telj- ist vera safnarar. Allir sem leika sér eitthvað að þessu eru safúar- ar. Ef allir eru taldir, eru þús- undir safúara á íslandi, en þeir eru ótrúlega margir sem safna í alvöru. Til dæmis komu vel yflr hundrað manns á skiptimarkað- inn sem sýnir áhugann sem er fyrir þessu. Þessi markaður var þó minna auglýstur en venju- lega og oft hefur verið meira fjör á mörkuðunum." Of mikið gert úr peningahliðinni Nú er það svo að flestar fréttir sem almenningur fáer af söfnur- um heyrast þegar einhverjir sjaldgæfir munir eru seldir fyrir stórfé. Um þetta segir Sigurður: „Mér finnst of mikið gert úr þessu atriði. Vissulega ganga gripir kaupum og sölum. Ef ein- hvern safnara vantar til dæmis frímerki sem einhver annar vill láta, en á ekki neitt til að láta í staðinn, er alltaf til í dæminu að hann kaupi merkið. Hjá okkur er verði þó yfirleitt stillt í hóf og miðað er við verð sem gefið er upp í verðskrám eða miðað er við síðustu sölur á sambærilegu merki.“ „Mér fannst það skjóta skökku við að í sambandi við sýninguna í Stokkhólmi fyrr á þessu ári vakti það meiri athygli að skild- ingamerki hefði selst fýrir stórfé en það að safnarar héðan hefðu náð góðum árangri og hlotið viðurkenningar fyrir söfn sín. Fyrir okkur er söfnunarlegt gildi mikilsverðara en peningalegt. Menn þurfa alls ekki að Ieggja mikinn pening í söfú sín til að hafa ánægju af þessu.“ Ekki henda gömlum hlutum Þegar blaðamaður spyr Sig- urð hvort það sé algengt að fólk liggi á fjársjóðum án þess að vita af því brosir hann og segir: „Það er náttúrlega sjaldgæft, en þó ætti fólk aJls ekki að henda gömlum hlutum sem því á- skotnast umhugsunarlaust. Það er það mikið af söfúurum hér á landi að fólki ætti ekki að verða skotaskuld úr því að fá einhvern til að meta hluti fyrir sig. Ég vil hvetja fólk til að láta athuga þessa hluti vegna þess að þó að peningarnir séu ekki miklir er óþarfi að henda munum sem hafa söfiiunargildi fyrir aðra.“ Söfúurum sem hafa verið að dunda í einrúmi hingað til er bent á fyrrnefnd safnarafélög ef þá langar til að komast í sam- band við aðra til að deila áhuga- máli sínu með. Annar vettvang- ur til þess að ná tengslum er skiptimarkaðurinn, en tvisvar á ári eru haldnir stórir markaðir auk nokkurra minni. —AE. VIKAN 23
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.