Vikan - 18.02.1988, Blaðsíða 11
inni svo við lögðum í ’ann þegar
stutt var í birtingu. Við vorum
svo heppnir að það lygndi tals-
vert með morgninum og stytti
u^>p.
Við vorum komnir upp í
Skarð að gamla leitarmannakof-
anum ‘þegar við fyrst sáum til
mannaferða. Strákarnir höfðu
leitað skjöls í kofanum því að
einn jteirrá .hafði farið fram af
hengju á eirílim snjósleðanum,
fótbrotið sig • og eyðilagt
sleðann. Þegar svo fór að hvessa
þá ákváðu þeir að láta fyrirber-
ast í kofanum. Þeir virtust hafa
búið vel um þann fótbrotna en
auðvitað var tafsamt að bera
hann í þungri færðinni því þeir
höfðu engan aftanísleða til að
flytja hann.
Þvílíkt og annað eins. Við
skiptumst á að bera sjúklinginn
en gátum til skiptis hvílt okkur
með því að sitja aftan á sleðun-
um sem voru í lagi. Ég var orð-
inn aðffamkominn þegar við
komum loksins niður að bílun-
um aftur því ég hafði ekki geng-
ið svona langt í mörg ár.
Það var komið langt ffam á
kvöldið þegar við vorum búnir
að koma þeim fótbrotna til hér-
aðslæknisins og öllum hinum til
síns heima.
Gaui var bara hinn hortugasti
og sagði að það vantaði miklu
betri græjur. Sveitina vantaði
betri kompása og svo vantaði
líka farsíma svo þeir gætu látið
vita af sér þegar þeir færu í fjöll
því ekki væri hægt að taka tal-
stöðina úr bílnum. Mér stóð nú
ekki á sama. Og svo talaði Gaui
um það að þeir yrðu auðvitað
að fá nýjan snjósleða í staðinn
fyrir þann sem eyðilagðist.
Ég er nú ákveðinn í því að láta
líða úr mér harðsperrurnar áður
en ég fer að ákveða frekari fjár-
útlát. Það er umhugsunarvert að
þetta er annað slysið í sveitinni
á einu ári. Hitt slysið varð líka á
æflngu hjá björgunarsveitinni
en þá datt einn strákurinn niður
um ís og var næstum búinn að
kála sér en hann slapp með
lungnabólgu.
Mér stendur bara ekki á sama.
Hróbjartur Lúðvíksson
^afnkortið
getur gefió
þér f lugferð
hvert áland
, sem er
:IÐIR mm
Safnkort Innanlandsflugs Flugleiða
er fyrir þá sem þurfa oft
að fljúga innanlands.
Hver flugferð til eða frá
Reykjavík á fullu fargjaldi gefur
ákveðinn fjölda punkta. T.d. gefur
flug til Egilsstaðal3 punkta og til Akureyrar 8.
5
§ Ef þú nærð 100 punktum á 4 mánuðum færðu
fría ferð fram og til baka á hvaða innanlandsleið
Flugleiða sem er. Þannig verður t.d.fimmta hver ferð
frí, sem flogin er fram og til baka milli Reykjavíkur
og Egilsstaða, Neskaupstaðar eða Hafnar.
Þú færð Safnkort og leiðbeiningar um
lotkun þess hiá næstu söluskrifstofu Flugleiða,
ferðaskrifstofu eða
umboðsmanni.