Vikan - 18.02.1988, Blaðsíða 14
Á . ' ' 9
i ji
t tfé&fwgk
M-,. ö
Bekkjarsystkinin, Runólfur og Berglind,
nenna ekki að liggja í leti. Þess í stað puða
þau í skíðabrekkunum flesta daga.
Ragnar, sem er tíu ára, komst á verð-
launapall á Andrésar Andar leikunum I
fyrra og vonast til að gera enn betur í ár.
Elías Bjarnason skíðaþjálfari sýnir hér
hvernig á að bera sig að við að fara í plóg.
„Það verður í mars hérna á
Framsvæðinu svo maður verður
á heimavelli."
— Hvernig er hópurinn sem
æfir hérna?
„Hópurinn er þrælgóður og
eldri krakkarnir eru ágætir þó
þeir séu stundum með stæla. En
ég leiði þá bara hjá mér og læt
ekki stríða mér.“
Ekki mátti Ragnar vera að því
að ræða meira við blaðamann
og renndi sér af stað í aðra ferð
til að bæta það sem þjálfarinn
fann að í þeirri síðustu.
Byrjendur eiga
að fá sér kennara
Svolítið frá brautinni var Elías
Bjarnason að þjálfa krakka utan
brautar og fannst undirrituðum
tilvalið að spyrja hann út í
undirstöðuatriði skíðalistar-
innar.
— Hvað myndir þú segja að
byrjendur ættu einna helst að
hafa í huga þegar þeir eru að
fara á skíði í fyrsta skipti?
„Ef um byrjendur er að ræða
get ég einna helst ráðlagt fólki
að finna sér skíðakennara. Ekki
bara einhvern sem kann á skíði
heldur einhvern sem hefur lært
að koma kunnáttunni frá sér.
Það er ekki síst mikilvægt fyrir
fólk að verða sér úti um kennslu
ef það er komið af barnsárun-
um. Það er allt í lagi fyrir börn
að Iæra af sjálfú sér en þegar
komið er fram á fullorðinsárin
er nauðsynlegt að fá tilsögn."
- En hvað eiga byrjendur að
hafa í huga þegar þeir fara í
plóg?
„Þeir eiga fyrir það fyrsta að
standa jafnt í báða fætur og halla
sér aðeins fram í skónum til að
geta beitt köntunum betur. Ef
þeir halla sér aítur renna aftur-
endar skíðanna saman. Svo er að
færa þungann yflr á annaðhvort
skíðið og maður beygir af sjálfu
sér. Það á alltaf að halda þungan-
um á ytra skíðinu í beygju og
reyna að snúa brjóstinu niður í
brekkuna."
Vantar fleiri stelpur
Eftir þessa skyndikennslu var
snúið aftur að keppnisliðinu og
þar var fyrir Margrét Ingibergs-
dóttir en hún er sextán ára og
langelst þeirra stúlkna sem æfa
hjá Fram.
— Hvernig gekk þér á mótuni
í fyrra?
„Ég get ekki kvartað því ég
varð Reykjavíkurmeistari í mín-
um aldursflokki og var þá á fyrra
ári í honum. Nú er ég á síðasta
ári í unglingaflokkum og verð
komin í fullorðinsflokk á næsta
ári.
— Ertu þá búin að æfa lengi
og stíft?
„Ég er búin að æfa í fimm ár
og vissulega hefúr þetta verið
nokkuð stíft en það veitir ekkert
af því. Maður verður að leggja
hart að sér ef maður ætlar að ná
árangri. Vissulega tekur þetta
tíma frá skólanum (Margrét er í
Iðnskólanum í Reykjavík og ætl-
ar að verða plötusmiður) en
það verður að hafa það. Ég er
auðvitað svolítið þreytt á kvöld-
in þegar ég kem heim og mikið
væri oft gott að fá að sofa út á
morgnana.
— Er ekki erfitt að halda
sambandi við vini og kunningja
sem eru ekki á skíðum?
„Það er alltaf verið að reyna
að draga mig á böll og í bíó og
þess háttar en ég læt það bara
bíða. Mér finnst ekki erfltt að
velja um það að fara á æfingu
eða í bíó. Þó getur komið í
mann leiði þegar veðrið er
leiðinlegt en þá er bara að bíta á
jaxlinn og hafa sig af stað.“
— Hefurðu nokkurn tíma fyr-
ir stráka?
„Ég læt þá bara bíða um sinn.
Ekkert liggur á, ég er ennþá það
ung. Annars eru ágætir strákar á
skíðunum, bæði hér innan fé-
lagsins og í öðrum félögum.
Kannski getur þetta bara farið
saman. Annars vil ég biðja þig
um að koma því á framfæri að
stelpurnar mættu vera duglegri
við að æfa á skíði. Það er stund-
um einmanalegt að vera svona
eina stelpan í hópnum."
Með þessum orðum var hún
þotin til að ná tveimur ferðum í
viðbót áður en æfingunni lyki.
Byrja á hrósi
Fyrir neðan brautina stóð enn
einn þjálfarinn, Þórður
Björnsson, og tók á móti
krökkunum með tilheyrandi at-
hugasemdum. Benti á það sem
vel var gert og það sem mætti
fara betur.
— Hvað er það sem þjálfari
lítur á þegar hann fylgist svona
með krökkum í braut?
„Hann reynir að koma auga á
bæði það sem þau gera vel og
það sem þau gera illa. Hann
skoðar stílinn og veltir því fyrir
sér hvernig mætti fá meiri hraða
út úr hverri ferð. Hann byrjar
alltaf á því að benda krökkunum
á það hvað þau gera rétt og
reynir svo að benda á þau mis-
tök sem hann sér. Yfirleitt eru
þau að krakkarnir eru of sein-
ir í beygjum.
— Notið þið myndbands-
tæknina í þjálfún?
, Já, við gerum mikið af því og
það breyttist mikið þegar sú
tækni kom til því nú geta krakk-
arnir séð sjálfa sig í brautinni og
skilja mun betur hvað átt er við
Þorsteinn Hjaltason fólkvangsvörður:
„Hefur gengii ótrúlega vel í vetur"
Einn af þeim mönnum sem
best fylgjast með skíðaiðkun al-
mennings er vafalaust Þorsteinn
Hjaltason fólkvangsvörður, yfir-
umsjónarmaður Bláfjallasvæðis-
ins. Þess vegna var tilvalið að
spjalla aðeins við hann um
skíðaiðkun og svæðið sjálft.
— Er það rétt sem manni
virðist að skíðaiðkun sé alltaf á
uppleið?
,Já, ég er ekki frá því. Að vísu
er svolítið erfitt að gera sér
grein fyrir þessu núna þar sem
allir koma til okkar í Bláfjöllin
vegna snjóleysis annars staðar.
Þó finnst mér eins og maður sé
alltaf að sjá ný andlit hérna. Ég
held nú að verðlækkunin sem
varð á skíðabúnaði hafi haft sitt
að segja."
— Hvernig finnast þér yfir-
völd hafa stutt við skíðaiðkun al-
mennings?
„Mér finnst yfirvöld hafa gert
mikið og sýnt okkur mikinn
skilning, sérstaklega hérna í
Bláfjöllum. Svæðið er í stöðugri
uppbyggingu og ekkert lát er á
framkvæmdum þó að okkur hafi
verið úthlutað minna fé til fram-
kvæmda á þessu ári en við höfð-
um vonast eftir. Ég trúi því að
við fáum bara þeim mun meira á
næsta ári. Ég vona bara að sá
skilningur sem verið hefur á
þessum málum verði áffarn til
staðar vegna þess að allt fé sem
er lagt í þessi mál skilar sér í
betri aðstöðu sem aftur skilar
sér í meiri iðkun almennings."
„Stærsti draumur okkar þessa
dagana er að setja upp nýja
stólalyftu í Kóngsgili til að flýta
fyrir fólki að komast upp í
brekkurnar og hinar lyfturnar á
svæðinu. Það er nefhilega dálít-
ið sláandi að mestu raðirnar eru
þar sem fólkið kemur að fyrst,
næst skálanum, en svo eru engar
raðir við lyfturnar uppi í brekk-
unum. Ef við fengjum aðra stóla-
lyftu til að létta á þeirri sem fyr-
ir er myndi það breyta miklu í
sambandi við raðirnar."
- Hvernig hefúr reksturinn
gengið það sem af er betri?
„Alveg stórkostlega, það er
ekki hægt að segja annað. Staðan
er margfalt betri en á sama tíma
í fyrra og ef framhald verður á
munum við fara langt fram úr
áætlun í vetur.
Undanfarið hafa aðstæður
14 VIKAN