Vikan - 18.02.1988, Blaðsíða 38
Jóhann teflir
næstvið Karpov
Hratt flýgur stund. Hver
hefði látið sér detta í hug
fyrir svo sem fimm árum að
Jóhann Hjartarson ætti eftir
að bera sigurorð af Viktor
Kortsnoj í einvígi og tefla
síðan við sjálfan Anatoly
Karpov? Þá var Jóhann bara
„strákur á stuttbuxum" eins
og einn virðulegur íslensk-
ur skákkappi komst gjarnan
að orði um yngri kynslóð-
ina.
Sigur Jóhanns á Kortsnoj hef-
ur vakið athygli víða um lönd
enda næst óvæntustu úrslit ein-
vígjanna í Kanada. Enn meir
kom á óvart sigur heimamanns-
ins Spraggetts á Sovétmannin-
um Sokolov, þriðja stigahæsta
skákmanni heims. Sigur Eng-
lendingsins Speelman á Banda-
ríkjamanninum Seirawan vakti
einnig eftirtekt en enginn kippti
sér upp við það þótt Hollend-
ingurinn Timman hefði unnið
Sovétmanninn Salov, Ungverj-
inn Portisch lagt Armenann
Vaganjan og Englendingurinn
Short knésett Ungverjann Sax.
Kortsnoj var sá áskorendanna
sem mesta reynslu hafði og vita-
skuld þótti hann sigurstrang-
legri íýrirfram þótt innst inni
hefðu margir haft trú á Jóhanni.
Er á hólminn var komið tefldi
Jóhann einfaldlega betur en
andstæðingurinn. Þetta var hat-
rammt einvígi, Jóhann vann
tvær fyrstu skákirnar, þá varð
jafiitefli og aftur vann Jóhann
fjórðu skákina. Þá greip Korts-
noj til örþrifaráða. Framkoma
hans við skákborðið í fimmtu og
sjöttu skák truflaði Jóhann.
Friðrik Ólafsson, talsmaður hans
í Kanada, greip þá í taumana og
bréfaskipti við yfirdómarann
Gligoric urðu til þess að Korts-
noj fékk gula spjaldið. Jóhann
náði sér á strik í sjöundu skák-
inni sem lauk með jafntefli og
glæsilegur sigur í áttundu skák-
inni tryggði honum sigur í ein-
víginu, 4‘/2 — 3‘/2. Hann á margt
eftir ólært,“ sagði Kortsnoj um
Jóhann eftir einvígið og kenndi
Friðrik um tapið.
Jóhann er þar með kominn í
átta manna úrslit í heimsmeist-
arakeppninni í skák. Framundan
er erfið ganga — upp þverhnípt-
an hamarinn, segja sumir. And-
stæðingur hans í næstu lotu
verður sjálfúr Anatoly Karpov,
heimsmeistari í tíu ár frá 1975
til 1985. Fyrst Kortsnoj og svo
Karpov. Endar þetta ekki með
Kasparov?
Eina skák hafa Jóhann og
Karpov teflt áður og hún gefúr
ekki tilefni til sérstakrar svart-
sýni fyrir hönd okkar manns.
Hún var tefld á ólympíumótinu í
Dubai síðla árs 1986. Karpov
hreifst svo af taflmennsku Jó-
hanns í skákinni að hann lýsti
því yfir í viðtali að hann teldi
Jóhann björtustu von Vestur-
landa á skáksviðinu. Eftir mikla
baráttu kom þessi staða upp.
Karpov, sem hafði svart, hug-
leiddi 70. leik sinn:
Karpov hefur náð yfirhöndinni
og nú hefði hann getað leitt
skákina til lykta með laglegri til-
ferslu: 70. - Hd2+ 71. Kh3 (ef
71. Kfl, þá 71. - c3 72. b6
Hdl+ og síðan 73- — Da2+ og
mátar) Dg7! 72. b6 Kh7 með
máthótun á h6 — ef 73- Dc7 Hd7
74. Dxd7 Dxd7 75. b7 Db5
vinnur svartur létt. í stað þessa
lék Karpov 70. — De8? og eftir
71. Dfó! c3 72. Bxg6! Hd2+
73. Kg3 Dxg6 bauð Karpov
jafntefli. Jóhann þráskákar með
74. Dh8+ Dh7 75. Df6+ o.s.frv.
Bridgehótíð í vændum
f augum margra er stærsti at-
burður ársins í bridgeheiminum
hér á landi þegar bridgehátíðin
er haldin á Loftleiðum. Þegar
þetta er skrifað er vitað um
þrjár sveitir sem koma hingað
til lands á bridgehátíð. Ein
þeirra er sænsk sveit en Svíar eru
núverandi Evrópumeistar. Þeir
ísak Örn
Sigurðsson
BRIDGE
heita Per Olov Sundelin-Anders
Morath og Tomrny Gullberg-
Hans Göthe. Frá Bandaríkjunum
koma Alan Sontag-Mike Molson
og er Sontag orðinn fastagestur
hér á landi. Með þeim eru hjón-
in Matt og Pam Granowetter.
Spilasnillingurinn Zia Mahmood
kemur með sveit. Spilafélagi
hans er George Mittelman og
hitt parið er Ron Smith og
Billy Cohen. Það er mikill feng-
ur að þessum spilurum því þeir
eru með ferari spilurum heims í
dag. Hugsanlegt er að fleiri er-
lendir spilarar bætist í hópinn.
Opnunin sem kölluð er Multi
getur oft verið skæð en hún lýs-
ir oftast veikri opnun með 6 spil
í hjarta eða spaða. Eftirfarandi
spil er gott dæmi um hversu
beitt vopn sögnin er.
V/A-V A87 D ADT873 KDG
9 KG43
AGT842 K965
G654 9
65 DT652 73 K2 T873 A942
Spilið kom fyrir í keppni hjá
Bridgefélagi Reykjavíkur og
voru austur-vestur á hættunni
og vestur gaf. Vestur hóf sagnir
á multi tveimur tíglum. Norður
með sterk spil leyfði sér að
dobla með sterku spilin sín, og
austur stökk að sjálfsögðu í fjög-
ur hjörtu sem vestur hefði leið-
rétt í fjóra spaða ef litúrinn var
spaði. Norður suður voru svo
heppnir að finna ekki dobl enda
er engin leið að hnekkja samn-
ingnum eins og lesendur geta
sannreynt, þrátt fyrir að norður-
suður eigi meirihluta punkt-
anna.
38 VIKAN