Vikan - 18.02.1988, Side 54
LAUGARDAGUR 27. FEB.
málarans Auguste Renoir,
sem leikstýrir þessu
listaverki frá 1963. Myndin
er byggð á samnefndri
sögu eftir rússneska
skáldið Maxim Gorki og er
hún mikil ádeila á líf
borgarastéttarinnar og
gefur innsýn í líf þeirra
sem minna mega sín í
þjóðfélaginu.
Stöð 2 kt. 21.00 Fyrir vináttu-
sakir. Buddy System. Aðalhlut-
verk: Richard Dreyfuss, Nancy
Allen og Susan Sarandon. Ungur
drengur sem býr með einhleypri
móður sinni reynir allt sem hann
getur til að koma henni í fast
samband við karlmann. Spurn-
ingin er bara hvort hann ber hag
móður sinnar fyrir brjósti eða
hvort hann er að hugsa um sjálf-
an sig.
Ríkissjónvarpið kl. 22.30. The Legend of the Lone
Ranger. Þessi bandaríski vestrifrá 1981 erbyggður
á hinum vinsælu sjónvarpsþáttum með sama nafni.
Ungur maður verður fyrir tilræði og leitar hefnda
jafnframt því sem hann berst við illvirkja hverskonar.
Með aðalhlutverk fara Klinton Spielsbury, Michael
Horse og Christopher Lloyd. Leikstjóri: William A.
Frazer.
RÚV. SJÓNVARP
14.55 Enska knattspyrn-
an. Bein útsending. Um-
sjónarmaður er Bjarni
Felixson.
16.45 Á döfinni.
16.50 Vetrarólympíu-
leikarnir f Calgary. Bein
útsending frá 50 km
göngu karla og svigi karla
í umsjón Samúels Arnar
Erlingssonar. Meðal kepp-
enda í þessum greinum
eru Einar Ólafsson og
Daníel Hilmarsson.
18.30 Smellir.
19.00 Vetrarólympíu-
leikarnir í Calgary. Fram-
hald útsendingar frá svig-
keppni karla.
19.30 Annir og appelsín-
ur. Endursýndur þáttur
frá Menntaskólanum í
Reykjavík.-
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó
20.35 íslenskir sögustað-
ir. Umsjón Sigrún Stefáns-
dóttir.
20.45 Fyrirmyndarfaðir.
Dr. Huxtable heldur áfram
að glíma við hvern þann
vanda sem upp kemur á
heimilinu eins og honum
er einum lagið.
21.10 Maður vikunnar.
21.20 Vetrarólympíu-
leikarnir í Calgary. Arnar
Björnsson sér um beina
útsendingu frá svigi, ís-
knattleik og stökki.
22.30 eða þar um bil. The
Legend of the Lone
Ranger. Bandarískur
vestri frá 1981. Myndin er
byggð á sjónvarpsþáttum
um the Lone Ranger sem
voru aðallega vinsælir hjá
börnum. Ungur maður er
næstum drepinn í fyrirsát
en eftir að hafa verið
bjargað af indíana setur
hann upp grímu og berst
gegn glæpamönnum.
00.10 eða þar um bil. Út-
varpsfréttir i dagskrárlok.
STÖÐ2
09.00 Með afa. Þáttur með
blönduðu efni fyrir yngstu
börnin. Afi skemmtir og
sýnir börnunum stuttar
myndir: Skeljavík, Kátur
og hjólakrílin og fleiri
leikbrúðumyndir. Emma
litla, Litli folinn minn,
Yakari, Júlli og töfraIjósið,
Selurinn Snorri og fleiri
teiknimyndir. Allar myndir
54 VIKAN
sem börnin sjá með afa,
eru með íslensku tali.
Leikraddir: Guðmundur
Ólafsson, Guðný Ragnars-
dóttir, Guðrún Þórðar-
dóttir, Júlíus Brjánsson,
Randver Þorláksson og
Saga Jónsdóttir.
10.30 Perla. Teiknimynd.
10.50 Zorro Teiknimynd.
11.15 Besti eiginleikinn.
No Greater Gift. Saga
tveggja drengja sem
liggja saman á sjúkrahúsi
og eru báðir haldnir ban-
vænum sjúkdómi. Með
þeim tekst góð vinátta og
vináttan getur gert
kraftaverk.
12.05 Hlé.
14.15 Fjalakötturinn. [
Fjalakettinum að þessu
sinni er boðið upp á eitt
af verkum franska leik-
stjórans Jean Renoir.
Renoir er sonur málarans
Auguste Renoir og má
segja að hann hafi haldið
áfram starfi föður síns á
hvíta tjaldinu í stað
strigans. Eftirlætisvið-
fangsefni Renoirs eru
skuggahliðar þjóðfélags-
ins og má glöggt greina
andúð hans á yfirstéttinni.
Þessi mynd Renoirs frá
1939 er gerð eftir leikriti
Maxim Gorkis og er hún
einkennandi fyrir ofan-
greind viðfangsefni leik-
stjórans. Aðalhlutverk:
Jean Gabin, Robert Le
Vigan og Suzy Prim.
15.40 Ættarveldið. Ó-
kunnur maður situr um líf
Alexis og Carrington fjöl-
skyldan fær vofveiflegar
fréttir.
16.25 Nærmyndir Nær-
mynd af Jóni Gunnari Árn-
asyni. Umsjónarmaður:
Jón Óttar Ragnarsson.
17.00 NBA körfuboltinn.
Umsjón Heimir Karlsson.
18.30 fslenski listinn.
Bylgjan og Stöð 2 kynna
40 vinsælustu popplög
landins. Vinsælir hljómlist-
armenn koma fram hverju
sinni. Umsjónarmenn:
Helga Möller og Pétur
Steinn Guðmundsson.
19.19 19.19.
20.10 Fríða og dýrið. Bea-
ty and the Beast. Fram-
haldsmyndaflokkur um
samskipti fallegrar stúlku
við afskræmdan mann
sem hefst við í undirheim-
um New York borgar.
21.00 Fyrir vináttusakir.
Buddy System. Myndir
segir frá ungum dreng
sem býr með einhleypri
móður sinni og tilraunum
hans til að koma henni í
„örugga höfn". I raun er
hann ekki að hugsa fyrst
og fremst um hag móður
sinnar því sjálfur er hann
einmanna og vill fá full-
orðinn vin sinn á heimilið
og finnur sér þar með leið
til þess. En sú leið er ekki
auðfarin vegna ýmissa
árekstra er upp koma.
Aðalhlutverk: Richard
Dreyfuss, Nancy Allen,
Susan Sarandon, Jean
Stapleton. Leikstjórn:
Glenn Jordan.
22.50 Tracey Ullman.
Skemmtiþáttur með
söngvum, dansi og stutt-
um leikþáttum.
23.15 Spenser. á leið sinni
í helgarfrí kemur Spenser
við í Smithfield skólanum
til þess að sækja unnustu
sína, Susan. Hann fær þær
fréttir að einn nemenda
skólans hafi látist af of-
neyslu eiturlyfja og þar
með eru áætlanir Spens-
ers um frí farnar út um
þúfur.
00.00 Geimveran. Alien.
Háspennumyndin „Alien"
er óhuganleg blanda vís-
indaskáldskapar og hroll-
vekju. John Hurt, Sigourn-
ey Weaver og Tom Skerr-
itt eru í hlutverkum varn-
arlausra áhafnarmeðlima
geimskips á ferð milli sól-
kerfa. Á þessu óvenjulega
ferðalagi bætist í þeirra
hóp óvelkominn farþegi.
Sá er haldinn djöfullegri
orku og sækir hann í
mannslíkama til þess að
viðhalda stofni sínum.
Þeir sem sækjast eftir örari
hjartslætti verða ekki
sviknir af þessari mynd.
Myndin hlaut óskarsverð-
laun fyrir tæknibrellur.
01.55 Leitarmaðurinn.
Rivkin, the Bounty
Hunter. Stan Rivkin hefur
þá atvinnu að elta uppi
glæpamenn í New York,
sem fengið hafa skilorðs-
bundinn dóm en síðan
látið sig hverfa..
03.30 Dagskrárlok.
Stöð 2 kl. 00.00 Geimveran. Alien. Einhver al-
magnaöasta spennumynd sem gerð hefur veriö.
Geimskip á ferö milli sólkerfa kemst í samband við
dularfulla geimveru sem reynist skaöræöisgripur
hinn mesti. Myndin er óhemju spennandi og viö-
kvæmu fólki er bent á aö láta hana eiga sig. Hinir
geta notið þess aö láta sér bregða meö reglulegu
millibili.