Vikan - 15.09.1988, Qupperneq 33
TEXTI: BRYNDlS KRISTJÁNSDÓTTIR
MYNDIR: MAGNÚS HJÖRLEIFSSON
Aðeins einn veitingastaður á íslandi sér-
hæfir sig í mexíkanskri matargerðarlist, en
það er veitingastaðurinn Mexíkó í Kringl-
unni.
í Bandaríkjunum aítur á móti — og þá
sérstaklega í ríkjum sem liggja nærri landa-
mærum Mexíkó — eru óteljandi mexí-
kanskir matsölustaðir og þá jafh mismun-
andi og þeir eru margir, meira að segja eru
til margar mexíkanskar skyndibitaveit-
ingahúsakeðjur, en best er þó að borða á
stað þar sem eldað er upp á gamla mátann,
þ.e. þar sem ábyrg manneskja stendur yfir
pottunum og smakkar á og lagar og bætir
þar til allt er eins og það á að vera.
Greg, tengdasonur Bjargar, útbýr hér
taco, en það eru djúpsteiktar maísflat-
kökur fýlltar með kjöti, grænmeti og osti
- og efitir smekk þá er hægt að fá mis-
munandi sterka sósu yflr.
Einu sinni í viku ...
Hvers vegna ætli staðirnir séu svona
margir þar vestra? Jú, það er vegna þess að
mexíkanskur matur er bara svo góður! Um
Enchilada er sígildur mexíkanskur réttur. Hér er krydduðu kjöti og jafnvel
pintobaunastöppu vafið inn í heita hveitiflatköku og yfir hana sett bragðmikil
og mexikókrydduð tómatsósa, þar ofan á mikið af osti. Með þessu er borið
hrásalat og mikið af spönskum hrísgrjónum.
Það er auðveit að
veiða sólginn í
mexíkanskan mot
Vikan á veitingastaðnum Mexíkó í Kringlunni
Tacosalat heitir þessi réttur. Hveiti-„tor-
tilla“ er djúpsteikt og mótuð þannig að
hún myndar skál sem fýllt er með ice-
bergsalatblöðum, tacokrydduðu kjöti,
maribou osti, púrru, tómötum, ólífum,
avocadomauki (guacomole) og sýrðum
rjóma. Með réttinum er hægt að fá sér
appelsínudrykk sem búinn er til á staðn-
um þannig að kreistar eru appelsínur
þar til glasið er fullt - hollt og fullt af
vítamínum!
það getur blaðamaður borið vitni, því eftir
að hafa búið í Los Angeles í nokkur ár, þar
sem mexíkanskur staður er nærri á hverju
horni, þá getur blaðamaður borið um það
vitni hversu auðvelt er að verða sólginn í
mexíkanska matinn, því fjölskyldan komst
svo hressilega upp á bragðið að hreinlega
var farið að bera á einhvers konar frá-
hvarfseinkennum — eins og líkamann vant-
aði eitthvað — ef ekki var borðaður mexí-
kanskur matur að minnsta kosti einu sinni
í viku!
Það þarf því ekki að lýsa gleði blaða-
manns — og fjölskyldunnar allrar — þegar
þessi líka góði mexíkanski staður var opn-
aður í Kringlunni daginn fyrir sumardag-
inn fýrsta, enda án efa ein af fyrstu gestun-
um. Þarna er um að ræða eins konar
blöndu af skyndibitastað og „gamaldags"
stað þar sem vandlega er fylgst með mat-
reiðslunni og ábyrg manneskja vakir yfir
pottunum. Á staðnum í Kringlunni er það
Björg Friðriksdóttir sem ábyrgðina ber.
Björg flutti heim frá Bandaríkjunum
skömmu Jyrir síðustu áramót ásamt fjöl-
skyldu sinni, en þar höfðu þau búið síðast-
liðin sjö ár. Þar hafði hún kynnst mexíkan-
skri matargerðarlist og þessa kunnáttu
nýtti hún sér þegar maturinn var valinn
sem þarna er boðið upp á.
Alls ekki sterkur matur
Eins og fyrr segir þá er Mexikó sam-
bland af skyndibitastað og venjulegu veit-
ingahúsi að því leyti að þarna tekur ekki
VIKAN 33