Vikan - 07.09.1989, Blaðsíða 53
/f \ m \ \ .,1
KÍNA-
KÚLUR
heilsunnar
vegna
Kínverskar æfingakúlur, eins og
þessar á myndinni, geta stuðlað að
bættri líkamlegri heilsu sem og jafnvægi
hugans; því trúðu þeir að minnsta kosti
mandarínarnir sem uppi voru í Kína fyrir
um 800 árum og því trúa margir enn.
Slíkar kúlur þykja góð gjöf og þegar
Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseti, og
Nancy kona hans voru á ferð í Kína voru
þeim færðar slíkar kúlur að gjöf.
Kínverjar segja að þegar kúlunum sé
snúið í Iófanum þjálfi það fingurna og
orkupunktarnir örvist. Um leið batnar
hringrás orkunnar um allan líkamann.
íþróttamenn, tónlistarmenn, þeir sem
vinna við tölvur og menn um allan heim,
sem annt er um heilsu sína, telja
kúlurnar mjög góðar sem þjálfunartæki
fyrir vöðvana. Gigtveikir finna
greinilegan mun þegar þeir nota þessi
mjúku en um leið ögrandi þjálfunartæki.
Barn
á leiðinni?
Predictor Stick er einfalt og öruggt þungunar-
próf sem þú notar sjálf heima. Nákvæmar
leiðbeiningar á íslensku fylgja Predictor Stick
pakkanum.
Ef prufan sýnir bleikan lit þá er barn á leiðinni.
Sáraeinfalt og enginn þarf að vita neitt nema þú
ein. En því fyrr sem þú veist það, þess betra
fyrir barnið.
Predictor Stick fæst
' apótekum.
Í JIlyfhf.
18. TBL. 1989 VIKAN 51