Vikan


Vikan - 07.09.1989, Blaðsíða 12

Vikan - 07.09.1989, Blaðsíða 12
— Kemurðu til með að starfa erlendis að námi loknu? „Það er vel hugsanlegt. Reyndar voru það kunningjar mínir í loftferðaeftirlitinu sem ýttu mér út í þetta svo að vel kemur til greina að nýta þessa menntun í starfi þar. Hins vegar nýtur fagið vaxandi vin- sælda í Bandaríkjunum og eru aðilar á borð við flugfélög, herinn og geimferða- stofnunina NASA farnir að leita eftir starfs- fólki með þessa menntun í síauknum mæli.“ — Meira um flug: Ég frétti að þú værir flugffeyja núna. ,Já, ég hef verið flugfreyja hjá Arnarflugi í sumar og raunar gripið í það starf af og til síðustu árin. Það eru engin sérstök inn- tökuskilyrði við ráðningu flugfreyja nema hvað almenn tungumálakunnátta er æski- leg og sérstök áhersla á ensku. Hins vegar eru haldin námskeið fyrir byrjendur í starflnu og auk þess eru flugfreyjur af og til á upprifjunarnámskeiðum." — Áfram með áhugamálin. „Það hefúr gerst hvað eftir annað að ég prófa eitthvað einu sinni og fæ ólæknandi dellu upp frá því. í flugnáminu kynntist ég krökkum sem voru í vélhjólaakstri og það varð ekki aftur snúið eftir að ég hafði feng- ið að prófa einu sinni. Ég skellti mér í vél- hjólapróf og pantaði mér síðan hjól frá Bandaríkjunum, Kawasaki 454 ltd.“ „Gleðikonumar“, vlnkonur Helgu, sendu henni óvenju innihladsrika af- mælistertu síðast þegar hún átti afrnæli... — Þú ert kannski í vélhjólaklúbbi? „Nei, ég er ekki í skráðu félagi. Maður fer í túra með vinum og kunningjum sem eru líka í þessu sporti. Mér flnnst það veita frábæra útrás að þeysa út úr bænum á mót- orhjóli. Hins vegar fer ég aldrei út fýrir malbikið því malarvegir fara illa með hjólin. Vélhjólaeigendur leggja mikið upp LC/$> * 2H úr útliti fákanna og eru stöðugt að þrífa þá og pússa svo þeir glansi. Það er hluti af stílnum. En reyndar seldi ég hjólið mitt með söknuði í vor sem leið til að fjár- magna skólagönguna í vetur. En ég fæ að grípa af og til í stýri hjá vinum og kunn- ingjum í sportinu. Þá er ég með jeppadellu. Ég átti torfæru- jeppa sem ég seldi líka í sama tilgangi og hjólið. Ég hef farið í alls konar fjallaferðir á honum. Þetta er yfirbyggður pallbíll (þ.e. byggt yflr pallinn sem áður var) af gerð- inni Toyota Hilux. Hann var upphækkaður með risastór 39 tommu dekk svo að mað- ur þurfti að kliffa upp í hann. Ég hef nokkrum sinnum farið í köfún og Iíkað vel óg skíðaíþróttina stunda ég reglu- lega. Ég hef einu sinni flogið sem farþegi í svifflugi. Einu sinni stökk ég í fallhlíf og það var ógleymanleg stund. Þetta var á Kjóavöll- um rétt fyrir ofan Breiðholt. Ég stökk sem „farþegi", þ.e.a.s. hékk framan á aðal- stökkvaranum, reyndum manni í faginu, í 12000 feta hæð og heiðskíru lofti. Þetta var stórkostleg tilfinning. Fyrir utan allar þessar sportdellur skemmti ég mér vel með vinkonum mín- um en það vill svo til að við eigum það all- ar sameiginlegt að vera fæddar 1965 og erum allar á lausu! Við höfum stofnað með okkur félag sem heitir Gleðikonurnar en það nafn má alls ekki misskilja því að á ensku heitum við The happy Girls, við erum glaðar stúlkur sem skemmtum okkur. Meginmarkmiðið með klúbbnum er að koma hver annarri á óvart. Þegar ein- hver úr hópnum á afrnæli taka hinar stelp- urnar sig saman og undirbúa einhverja uppákomu sem kemur afmælisbarninu í opna skjöldu. Ég er vön að lifa fyrir líðandi stund og skipulegg sjaldan framtíðina. Nú hefur þó sú undantekning orðið á að ég er ákveðin í að klára þetta nám sem ég fer í með haustinu en ffamtíðin eftir það er óráðin." — Ein lítil spurning að lokum: Hefúrðu aldrei orðið loff- eða flughrædd? „Nei, ég hef fúndið fyrir hvorugu, hins vegar er ég drauðhrædd við tannlækna." Nekkrir punktar um flugnám og vélhjólapróf ■ í viðtalinu við Helgu Þórarinsdóttur komu fram gagnlegar upplýsingar um flug- nám og réttindi til að stjórna vélhjóli (ekki skellinöðru, sem er 50 cylindra hjól, en þó er um sama aðila að ræða sem annast kennslu, þ.e. lögregluna). Flugnám tilheyrir nú flugliðabraut Fjöl- brautaskóla Suðurnesja en kennslan fer engu að síður ffam í Reykjavík. Flugnám er í raun á háskólastigi þó að greinin sé ekki kennd innan Háskóla fslands. Inntökuskil- yrði eru enda stúdentspróf af náttúru- fræði- eða eðlisfræðibraut. Að auki þarf að skila inn 1. flokks læknisvottorðum áður en námið hefst og skulu þau taka til sjónar og augnheilsu, viðbragðsflýtis, ástands hjarta og auk þess að staðfesta almennt heilbrigði í hvívetna. Námið er annars vegar bóklegt en hins vegar verklegt. Bóklegi hlutinn er fullur skóli í einn vetur. Kennd er siglingafræði (sömu lögmál gilda að mörgu leyti í sigl- ingum og loftferðum), veðurffæði, flug- eðlisffæði, flugreglur, vélffæði og afkasta- geta flugvéla kynnt. Þá þurfa nemendur að læra allt sem viðkemur rafkerfi vélarinnar, mælitækjum og siglingatækjum. Verklegi hlutinn er 200 flugtímar áður en próf er þreytt. ■ Sá sem vill öðlast réttindi til að aka stóru vélhjóli þarf að vera orðinn 17 ára. Þá getur hann snúið sér til lögregluyfir- valda í sínu umdæmi þar sem honum er ýmist veitt skriflegt æflngaleyfi eða boðið upp á ökutíma undir eftirliti. Nemanda er jafnffamt útvegað lesefni um umferðar- reglur. Að lokum þreytir hann bæði verk- legt og skriflegt próf en skriflega prófið er krossapróf. 12 VIKAN 18. TBL. 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.