Vikan - 07.09.1989, Side 33
Nú er Tarzan
orðinn sætur
JoeLaravaráðurljósmyndafyrirsæta en er nú hinn nýi
Tarzan, unglegur og síðhærður.
Ovenju snoppufríður
| er nýjasti Tarzan
f apabróðirinn sem
settur hefur verið á
markaðinn í sjónvarpskerfi
Bandaríkjamanna. Sautján leik-
arar hafa áður túlkað Tarzan í
fjölmörgum kvikmyndum og
þáttum allt frá því árið 1918, en
Joe Lara er örugglega sá sætasti.
Hann er þekkt fyrirsæta í New
York og fékk starflð þó 300 aðr-
ir stæðilegri karlmenn sæktust
eftir því.
Joe Lara er aðeins 26 ára gam-
all og er næstyngsti Tarzan-
leikarinn sem komið hefur fram
á sjónarsviðið. Einn sá þekktasti,
sem lék Tarzan, er án vafa sund-
meistarinn Johnny Weismuller.
Hinn nýi Tarzan mun ekki berj-
ast við górillur í frumskógum
heldur misindismenn á strætum
Manhattan í New York.
Lara æfði sex daga vikunnar
til að komast í betra líkamlegt
ástand áður en tökur á þáttun-
um um Tarzan hófúst. Hann býr
einsamall en hefur verið með
nokkrum stúlkum um ævina.
„Kvenfólk hefur nú ekkert verið
að falla í yfirlið fyrir framan mig
gegnum tíðina en eftir að ég
byrjaði að vinna sem kvik-
myndaleikari ætla þær allar vit-
lausar að verða. Ég kann vel við
kvenfólk sem lætur eins og
kvenfólk, ekki tilgerðarlegar
smápíur. Ytri fegurð er ekki allt
heldur skipta gáfur mig meira
máli,“ segir Lara.
En þó Lara búi einsamall sem
stendur er hann ekki alltaf einn
í rúminu. Priggja metra slanga,
sem hann á og heitir Noah, á
það til að skríða upp í til hans
þegar hann sefur. Sjálfsagt gefur
það honum sanna Tarzan-til-
flnningu að vakna við hliðina á
eitraðri slöngu. Ef hún bítur
hann getur hann alltént æft
Tarzan-öskrið.
Tarzan mun ekki berjast í
frumskógum heldur á götum
Manhattan, þar sem frumskóg-
arlögmálið gildir oft á tíðum...
Slangan Noah er einn besti vin-
ur Lara.
18. TBL. 1989 VIKAN 31