Vikan - 07.09.1989, Blaðsíða 9
„Nei, nei, ekki beint. Það er þá helst að
maður hafl vakið athygli í sjónvarpsauglýs-
ingu eða barnaleikriti að blessuð börnin
þyrpast í kringum mann, en þau eru yfir-
leitt ósköp góð greyin. Þetta er ekki nema
eðlilegt. Þetta er það eina sem ég get
nefht. Annars er það bara ágætt og heíur
oft komið sér vel að hafa þekkt andlit til
dæmis þegar maður þarf að fara til banka-
stjóra og svoleiðis."
Hestamaður í frístundum
— Til að kynnast betur manninum á bak
við leikarann Bessa sem við þekkjum á
sviðinu, hvað um áhugamálin? Ég veit að
þú ert hestamaður.
,Já, já, ég er búinn að vera í hesta-
mennsku í 25 eða 30 ár. Það eru fjórir
hestar á mínum vegum um þessar mundir.
Sonur minn á einn af þeim en ég geymi
þann hest á meðan hann er í námi. Ég er
með hestana austur í Graíningi á sumrin
en þar á ég sumarbústað. Þarna fer ég oft í
útreiðartúr. Það er mjög gott að komast
frá skarkalanum. Það er ekkert betra en að
geta verið á hestbaki þegar maður er að
stilla sig inn á leiksýningu, kannski sama
kvöldið. Þetta er góð hvíid og afslöppun.
Af því að þú spyrð um áhugamálin get
ég nefnt að við hjónin fengum þriggja
mánaða ffí í fyrra sem byrjaði í september
og við fórum til Bandaríkjanna. Við byrj-
uðum á að kaupa bíl í Boston og ókum um
9 þúsund mílur um Bandaríkin þver og
endilöng. Við heimsóttum marga þekkta
og ógleymanlega staði. Þetta var óska-
ferðalag, gamall draumur. Við ókum þvert
yfir Bandaríkin til vesturstrandarinnar og
suður Klettafjöllin, komum auðvitað við í
Miklagljúfri, og síðan austur um og enduð-
um á Flórída. Þar dvöldum við í sól í þrjár
vikur. Við ókum svo bílnum tif Norfolk og
létum flytja hann heim með skipi. Sjálf fór-
um við til New York og stunduðum
leikhús í tíu daga áður en við flugum heim.
Þetta er alveg ógleymanleg ferð, mjög
spennandi."
Tilbúinn í sama lífshlaup
— Ef þú værir ungur maður á ný, værir
þú þá reiðubúinn að feta sama ferilinn aft-
ur eða myndirðu velja þér annan
vettvang?
„Ég held ég myndi ekki velja annan
vettvang. Mitt lífshlaup er búið að vera al-
veg dýrlegur tími og ég held ég myndi
hiklaust velja mér sama ferilinn aftur. Bæði
hefur mér gengið vel og ég hef haft nóg að
gera og mér finnst að allt hafi gengið upp.
Leiklistin hefur veitt mér vissa uppfyll-
ingu.“
— Finnst þér þú vera orðinn gamall?
„Nei, nei, síður en svo, og ég vona að ég
fái tækifæri til að leika sem mest af
skemmtilegum hlutverkum næstu iO árin
að minnsta kosti. Að vísu ætla ég aðeins að
hægja á ferðinni og gefa mér tíma til að
leika mér svolítið sjálfur. Annars er ég
mjög sáttur við þennan feril.“ □
PflNTIÐ SK0LAF0TIN NUNfl!
1000 BLAÐSÍÐUR AF ÓTRÚLECU VÖRUÚRVALI
NAUÐSYN Á HVERJU HEIMILI
SPARIÐ
FÉ, TÍMA OC FYRIRHÖFN
Meirihóttar
vetrartíska
PÖNTUNAR
LISTINN
Verd kr. 190,-
án bgj.
RU B. MAGNUSSON
HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 - P.H. 410 - HAFNARFIRÐI
Sími 52866
18. TBL. 1989 VIKAN 9