Vikan - 23.08.1990, Page 13
könnunarinnar og höfuðtúlkandi niðurstaðna
væri um það bil að fara að eiga barn en þannig
var þaö þegar könnunin var framkvæmd, í maí
síðastliðnum eins og áður sagði.
Þannig var nú staðan hjá Önnu Maríu. „En
þá var líka gott að eiga góða að,“ sagði hún.
„Sjálf var ég komin á fæðingardeildina en
mamma, tengdamamma, systir mín og tvær
mágkonur framkvæmdu könnunina. Sjálf sat
ég uppi á fæðingardeild og stjórnaði. Þetta
tókst allt ágætlega og auk þess fengum við vel
þeginn viðbótartima því sonurinn fæddist fjórt-
án dögum síðar en búist var við, eins og áður
sagði. Svo má ekki gleyma því að eiginmaður-
inn aðstoðaði mig við „tölvugraf íkina" og pabbi
las prófarkir af sjálfri kandidatsritgerðinni."
Ungt fólk í dag. Hvert stefnir það? Hvað vill
það? Hefur Anna Maria Urbancic, 25 ára við-
skiptafræðingur, húsmóðir og nýorðin móðir,
einhverja skoðun á þessu?
UNGT FÓLK NÚNA ER AÐ BREYTA
UM STEFNU - UPPASTÍLUNN
AÐ HVERFA
„Já - ég hef það á tilfinningunni að ungt fólk
hér á landi sé að breyta um stefnu," segir
Anna María. „Auðvitað er alltaf erfitt að alhæfa
en „uppa“andinn er held ég að minnka og hjá
ungu fólki eru áhugamálin og viðhorfin til lífs-
ins að verða meira „húmanisk", mannlegri
en verið hefur í það minnsta um nokkurt skeið.
Við erum til dæmis að hverfa frá aðdáuninni á
merkjavörunum fínu og frægu en í staðinn er
lögö áhersla á atriði eins og að tala rétt og gott
íslenskt mál svo dæmi sé tekið. Varðandi nám
held ég að greinar eins og sagnfræði og ís-
lenskar bókmenntir eigi vaxandi gengi að
fagna en ásókn og áhugi á greinum eins og
viðskiptafræði, lögfræði, verkfræði og læknis-
fræði sé að dala. Þessar síðastnefndu greinar
hafa einmitt þótt áhugaverðar meðal annars
vegna þess að afkomumöguleikar fólks með
slíka menntun hafa þótt góðir.
Kannski má segja þetta á þann hátt, að nú
sé ungt fólk farið að hugsa meira um tilfinning-
ar en áður.“
ÍSLENSKIR UNGLINGAR SJÁLF-
STÆÐARI EN ÞEIR AUSTURRÍSKU
Við spyrjum Önnu Maríu að lokum hvort henni
• Helstu áhugamál lesenda eru íþróttir og útivera • Langflestir
lesa þœr auglýsingar sem birtast í Vikunni • Fjölskyldan skipar stóran
sess og mestur hluti frítímans er í faðmi hennar • Lesendur Vikunnar eru
vel inni í tískuheiminum og mjög meðvitaðir um hollt fœði.
menn töldu að ekki gæti nema gott eitt komið
út úr könnun þessari og gagn yrði af henni
bæði fyrir tímaritið, auglýsendur og lesendur
þess.
Anna María Urbancic sagði í viðtali við VIK-
UNA að mest hefði komið á óvart hve fólk hefði
verið jákvætt og fúst að svara alls konar spurn-
ingum.
í ritgerðinni, sem er mikið plagg, upp á einar
90 blaðsíður, dregur Anna María niðurstöður
af könnun sinni saman og gefur okkur þar upp
nokkra mynd af áskrifendum VIKUNNAR.
FLESTIR ÁSKRIFENDUR VIKUNNAR
ERU KONUR
„Af áskrifendum VIKUNNAR eru um átta af
hverjum tíu konur, rúmur helmingur er giftur
eða í sambúð, um helmingur hefur lokið
grunnskólaprófi og á sex af hverjum tíu heimila
eru heildartekjur lægri en 150 þúsund krónurá
mánuði. Aldur áskrifenda VIKUNNAR dreifist
nokkuð en tæplega 60% þeirra eru yngri en 35
ára.
FJÖLSKYLDAN SKIPAR STÓRAR SESS
Sex af hverjum tíu lesendum vinna hálfa vinnu
utan heimilis eða meira. Helstu áhugamál
þessa hóps eru íþróttir, útivera og rúmlega
helmingur áskrifenda VIKUNNAR stundar lík-
amsrækt reglulega. Fjölskyldan og heimilið
skipa stóran sess og mestum hluta frítímans
er varið í faðmi fjölskyldunnar. Áskrifandinn
tekur lítinn þátt í því sem er að gerast í listalífi
borgarinnar og hann er yfirleitt ekki meðlimur í
opinberum félagsskap. Hann ferðast mun
meira innanlands en til útlanda. Áskrifandinn
er mjög meðvitaður um verð því að við matar-
innkaup leggur hann langmesta áherslu á
hafi fundist mikill munur á ungu fólki í Austur-
rfki og hér á landi en hún dvaldi þar eftir stúd-
entspróf, eins og áður sagði.
Austurrískir unglingar og ungt fólk þar býr
við mun minna frjálsræði en íslenskir jafnaldr-
ar þeirra,“ segir Anna María. „Vinna með
skóla eða í leyfum frá námi þekkist þar ekki og
meðal annars þess vegna er ungt fólk í Aust-
urríki háðara foreldrum sínum en hér. Ég held
að af þessu leiði að ungt fólk á íslandi sé
þroskaðra en jafnaldrar þess úti, það er líka
sjálfstæðara, ferðast meira á eigin vegum og
kann frekar aö hugsa um sig sjálft.
Hins vegar held ég að ungt fólk á Islandi hafi
í það minnsta hugsað mun meira um veraldleg
gæði en jafnaldrar þess í Austurríki og þá auð-
vitað vegna meira sjálfstæöis í fjármálum. í
Austurríki fannst mér ungt fólk frekar vera á
huglægu og rólegu línunni, það las meira en
íslenskir jafnaldrar þess, fór meira á söfn og
svo framvegis. Það var eiginlega meira í
þá áttina sem ég nefndi áðan að íslenskt ungt
fólk væri að stefna," sagði Anna María Ur-
bancic að lokum.
verð. Áskrifandinn les mestallt lesefni
blaðsins.
Rúmlega sjö af hverjum tíu áskrifendum
VIKUNNAR eyða langmestum hluta frítíma
síns með fjölskyldu sinni en erfitt er að sjá hve
miklum tíma eytt var í áhugamál vikulega.
Áskrifandinn er nokkuð fastheldinn á útlit
heimilis síns og um helmingur breytir aldrei til
á heimilinu.
NOKKUR HLUTI ER NÝJUNGAGJARN
Hluti áskrifenda er tiltölulega nýjungagjarn eða
um þriðjungur, sem prófar nýjungar í matar-
gerð og þykir gaman að prófa nýjar vöruteg-
undir. Langflestir lesa þær auglýsingar sem
birtast í tímaritinu. Áskrifandinn virðist einnig
fylgjast vel með því sem er að gerast í um-
hverfinu, svo sem í bæjar- og borgarmálum,
þó hefur hann lítinn áhuga á listum og menn-
ingu, þar sem lítill hluti lesenda sækir sýningar
og tónleika.
VEL MEÐ Á TfSKUNÓTUNUM
Tískan á þónokkuð upp á pallborðið hjá áskrif-
andanum og fylgist hann vel með því sem er
að gerast í tískuheiminum. Að lokum má segja
að áskrifandinn sé mjög meðvitaður um holl-
ustufæðu.
Áskrifendur VIKUNNAR hafa mismunandi
skoðanir á umfjöllun um málefni líðandi stund-
ar en þeim líkar yfirleitt vel að lesa um þá sem
standa sig vel á einhvern hátt. Áskrifandanum
finnst yfirleitt vera nóg fjallað um menningar-
viðburði en hann hefur gaman af að lesa um-
fjöllun um nýjar vörur sem eru að koma á
markaðinn. Hann telur að menntun skipti tölu-
verðu máli til þess að komast áfram í lífinu.
Hvað varðar VIKUNA finnst áskrifandanum
nóg af auglýsingum en vill auka við lesefni um
íþróttir, sögur og viðtöl. Misjafnar skoðanir eru
á hvort auka eigi við eða minnka umfjöllun um
dulræn efni. í heildina er áskrifandinn yfirleitt
mjög ánægður með blaðið.
17. TBL. 1990 VIKAN 13