Vikan


Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 33

Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 33
Ég bið um að leið mín til allsnægta í þess- ari jarðvist verði greiðari svo ég geti notað orkuna sem hefur farið í áhyggjur, á betri máta. Ég bið um að hjarta mitt haldist opið og að mér verði leiðbeint til að deila á vitur- legan máta allsnægtum mínum í kærleik. Ég bið um, þegar rétti tíminn kemur, að hitta og þekkja mína innri leiðbeinendur. Ég bið um lífsförunaut, félaga á þessari jörð sem ég get deilt með fyllingu ástarinnar. Amma og afi allra anda, ég legg hæfileika mína og tíma minn í ykkar vörslu. Vinsamlegast leiðbeinið mér og hjálpið mér að lyfta dulunni frá augum mínum, svo ég komi auga á leið ykkar. Veitið mér styrk, kraft og vilja til að halda fram á við á leið ykkar, ykkargóðu kæru „medicine" leið. Ég er ykkar. Ah hey. Eftir lestur bænarinnar sagöi David nokkr- ar dæmisögur og sýndi síðan litskyggnur með dýramyndum og útskýrði orku dýranna og hvað hún getur kennt okkur. „Medicine" spilin eru öll með dýramyndum og nokkurs konar tarotspil indíána, byggð á heimspeki þeirra, en þeir telja að dýrin séu systur okkar og bræður og að við getum margt af þeim lært. Á meðan á fyrirlestri Davids stóð var sýnt andlegt fræðsluefni á myndbandi í minni salnum. í hádegishléinu gafst móts- gestum tækifæri til að skrá sig á námskeið sem David hélt eftir hádegi. FYRIRLESTRAR ALLAN DAGINN Á sama tíma og námskeiðið stóð yfir í litla salnum var heilmikið að gerast í stærri salnum. Þar var Örn Jónsson, nuddari, nála- stungumaður og náttúruráðgjafi, fyrstur með fyrirlestur um samræmingu lífsorkunnar. Næstur á eftir honum kom Hilmar Örn Hilm- arsson, tónlistarmaður og dulspekingur, með fyrirlestur um samhljóm himintungl- anna eða öllu heldur tónfræði alheimsins. Hann kynnti einnig hljómplötu með hljóðum kristalla. Rafn Geirdal sá um síðasta fyrir- lestur eftirmiðdagsins þar sem hann kynnti Kripalo-jóga, aðferðir Gurudevs til hug- leiðslu í gegnum hreyfingu, en Gurudev heimsótti einmitt ísland í júní. Allir fyrirlestr- arnir voru haldnir fyrir fullum sal en hann tek- ur nálægt hundrað og fimmtíu manns. Eftir kvöldmatarhlé átti að flytja innandyra hugleiðslu sem tengdist Snæfellsjökli en þar sem sólin skein glatt og veður var yndislegt var hugleiðslan flutt út. Eftir smábrölt með hátalara, hljóðnema og stóla var hægt að byrja. Guðrún Bergmann las upp hugleiðslu sem Erla Stefánsdóttir upplifði í júní á síð- astliðnu ári en þá fór hún í hugrænt ferðalag milli orkustöðva heimsins með Bárði Snæ- fellsás. Mótsgestir tóku þátt í hugleiðslunni og „ferðuðust" í huganum með Erlu og Bárði um heiminn. „ÍSLAND ER LAND Þin“ Sólin settist um svipað leyti og hugleiðslunni lauk svo kvöldvakan var flutt inn í stærri salinn. Þar spilaði Magnús Þór nokkur hug- Ijúf lög fyrir fullum sal. Þegar hann spilaði lagið island er land þitt söng dóttir hans með og í síðasta erindinu risu allir í salnum úr sætum til að votta landi sínu virðingu meðan þeir tóku undir sönginn fullum hálsi. Söngurinn hélt svo áfram úti við varðeld. OG SÓLIN BRAUST ÚT ÚR SKÝJUNUM... Sunnudagurinn tók á móti fólki með smá- úðarigningu. Flestir létu það lítið á sig fá. Eftir upphitun og samstillingu með Rafni hófst dagskráin með fyrirlestri Guðmundar Einarssonar, verkfræðings og fyrrverandi formanns Sálarrannsóknafélagsins. Guð- mundur hélt erindi um upphaf spíritismans og hvernig hann tengdist upphafi Nýaldar. Hann gerði í fyrirlestri sínum samantekt á mörgum þeim skilaboðum sem komið hafa í gegnum miðla frá því um miðja síðustu öld, hversu lík þau væru og hvernig þau ber öll að sama brunni. Var fyrirlestur hans sérlega fróðlegur og fékk hann margar fyrirspurnir utan úr sal. Klukkan ellefu var helgistund við Lífslind- ina og um það leyti braust sólin út úr skýja- þykkninu og hellti geislum sínum yfir við- stadda þar sem þeir komu sér fyrir á mjúkum „grasbekkjum" við lindina. Sóra Rögnvaldur Finnbogason, sóknarprestur á Staðarstað, kom og hélt stórbrotna ræðu. Hann lagði út af sköpunarsögunni, þörfinni á því að mann- fólkið verndaði Móður Jörð og því ofdrambi sem það hefur sýnt henni hingað til. í ræðu sinni vitnaði séra Rögnvaldur meðal annars í ræðu Seattle indíánahöfðingja (birt í heild í 18. tbl. Vikunnar 1989) sem hann hélt á síð- ustu öld, þar sem hann benti á nauðsyn um- hverfisverndar og það að maðurinn þyrfti að halda jafnvægi í umgengni sinni við um- hverfið. Var það mál manna að sjaldan eða aldrei hefðu þeir heyrt eins hugljúfa ræðu. Frh. á næstu opnu NO NAME COSMETICS — FÖRÐUNARNÁMSKEIÐIN HAUSTNÁMSKEIÐIN ERU AÐ HEFIAST! Öll undirstöðuatriði dag- og kvöldförðunar eru kennd á eins kvölds námskeiðum. Aðeins 10 í hóp og fær hver þátttakandi persónulega tilsögn. INNRITUN OG NÁNARI UPPLÝSINGAR UM HAUSTNÁMSKEIÐIN í SÍMA 26525 MILLI KL. 10-17 ALLA VIRKADAGA LÆRIÐ RÉTTA FÖRÐUN! 17.TBL. 1990 VIKAN 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.