Vikan


Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 30

Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 30
KROSSGÁTUGERÐ: GUÐJÓN BALDVINSSON RÓMANTÍKIN Frh. af bls. 29 áriö 1979 sem þau keyptu ris- íbúð f blokk við Eskihlíð f Reykjavík. „Þar með hófum við form- lega búskap," segir Árni. „Þetta var mjög skemmtilegur tími. Við vorum bæði komin í Kennaraháskólann og Bryndís gekk með fyrsta barnið, telpu sem sfðar var skírð Aldís Kristín og fæddist 1980. Við giftum okkur skömmu eftir að hún fæddist en mér er það meðal annars minnisstætt frá þessum tíma að það var slátur í hvert mál og hafragrautur á milli. Það þurfti nefnilega að byggja upp járnforða hinnar verðandi móður." Hver skyldi nú sjá um upp- eldið á heimilinu? „Það gerum við bæði,“ segja þau Bryndís og Árni samtímis. „Hins vegar er það svo að ég hef umönnunarhlutverkið á hendi,“ heldur Bryndís áfram. „Ákveðna hluta uppeldisins legg ég aftur á móti í hendur Árna og tel að hann eigi að sjá um þá. Eldri systurnar tvær arta föður sinn að sumu leyti öðruvísi en mig og það er oft sem ég fel honum ákveðin verkefni í uppeldinu þegar hann kemur heim, til dæmis að staðfesta ákveðnar siða- reglur eða gildismat sem við viljum að börn okkar tileinki sér.“ „Hjá okkur er alls ekki stíf verkaskipting," bætir Árni við. „Ég er ekki húsbóndinn hér á heimilinu að því leytinu til að ég tek frekar við upplýsingum um hvað þurfi að gera þegar ég kem heim og reyni sfðan aö sinna þeim verkefnum." „Ég tel mjög æskilegt aö annað foreldranna geti verið heima hjá bömunum," segir Bryndís. „Sjálf er ég svo hepp- in að geta nokkuð ráðiö mín- ■ Þegar þau hófu búskap voru þau bæði komin í Kennara- háskól- ann og Bryndís gekk með fyrsta barnið. um vinnutíma og auk þess höfum við verið mjög heppin með að fá góða gæslu fyrir börnin hérna heima. En núna, þegar fjórða barnið bætist við, reikna ég með að taka mér eitthvert hlé frá störfum utan heimilis." Bryndís er talmeinafræðing- ur eins og áður hefur komið fram. Hún hefur starfað á sjúkrahúsum auk þess sem hún rekur eigin stofu. ÞRJÚ BÖRN OG ÞAÐ FJÓRÐA LÍKLEGA KOMIÐ í HEIMINN Bryndfs og Árni eiga þrjú börn. Þau eru Aldís Kristín, fædd 1980, Védís Heiðvör, fædd 1982, og enn sem komið er telst Guðmundur Egill yngstur, fæddur 1988. Reyndar getur vel verið að fjórða barn þeirra hjóna verði komið f heiminn þegar þetta tölublað kemur út. Á þvf voru allar líkur þegar VIKAN ræddi við þau, eins og áður sagði. Á heimili eins og þeirra Bryndfsar og Árna, þar sem báðir foreldrar vinna úti og heimilisfaðirinn starfar auk þess mjög mikið í félagsmál- um á kvöldin og um helgar, gefst oft lítill tími fyrir fjölskyld- una að vera saman. Á þvf fundu Bryndfs og Árni góða lausn. FJÖLSKYLDUKVÖLDIÐ GENGUR FYRIR ÖLLU „Eitt sinn þegar ég hafði sem mest að gera,“ sagði Árni, „þá ákváðum við að taka eitt kvöld í viku frá fyrir okkur fjölskyld- una. Þessu höfum við haldið. Við köllum þessi kvöld okkar fjölskyldukvöld og þau eru á þriðjudögum. Allir okkar vinir og kunningjar vita af þessu og við erum ekki trufluð. Þá er gjarnan betri matur hér á borðum, við gerum ýmislegt saman, spilum og syngjum, förum jafnvel á bfó saman svo eitthvað sé nefnt. Þetta eru okkur dýrmætar stundir," segja þau Bryndís og Árni að lokum. □ 30 VIKAN 17. TBL, 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.