Vikan


Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 34

Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 34
Frá pallborðsumræðunni: F.v. Guðrún G. Bergmann, Guðmundur S. Jónasson, Hilmar Örn Hilmarsson, Helga Agústsdóttir, Guðmundur Einarsson, Guðjón Baldvinsson, Rafn Geirdal og Brynjólfur Snorrason. höföu fyrir tíu árum. Helga Ágústdóttir var með kynningu á Michael-fræðunum en margir hafa sýnt þeim áhuga hér á landi. Fyrr um eftirmiðdaginn hafði dr. Paula Hor- an flutt fyrirlestur sem hún nefndi Efling mannshugans. Dr. Horan er mannúðarsál- fræðingur og hefur áður heimsótt Snæfells- ásmótið. GHOST SHIRT DANCE Strax upp úr fjögur um eftirmiðdaginn hófst undirbúningur fyrir Ghost Shirt dansinn sem David Carson ætlaði að leiða klukkan átta um kvöldið. David lagði til að þeir sem ætl- uðu að taka þátt í dansinum föstuðu á mat og drykk frá miðjum degi. Ghost Shirt Dance hefur ekki verið dansaður í um hundrað ár eða síðan honum lauk með því að hermenn Bandaríkjastjórnar stráfelldu yfir þrjú hundr- uð indíána, vopnlausa menn, konurog börn, við Wounded Knee í Bandaríkjunum. Þá hafði fylgt dansinum sú draumsýn að með því að dansa hann væri hægt að reka hvíta manninn í burtu og laða buffalóana aftur á GIFTING ÚTI f GUÐSGRÆNNI NÁTTÚRUNNI Úr hópi mótsgesta hafði í snatri verið settur saman kirkjukór sem leiddi sönginn þarna úti í náttúrunni. Organistinn í Ólafsvík, Elías Davíðsson, kom og spilaði fyrir okkur á helluspil. Þótt séra Rögnvaldur hefði lokið predikuninni var embættisverkunum ekki al- veg lokið því á mótinu var ungt par, Ingibjörg Þengilsdóttir og Jón Jóhann Jóhannsson, sem hafði beðið hann að gefa sig saman. Þau voru bæði klædd í íslenska búninga þarna innan um álfa og huldufólk í klettun- um. Ein kona úr hópi mótsgesta tíndi fffla, fífu og strá og batt brúðarvönd handa Ingi- björgu. Séra Rögnvaldur las upp úr Spá- manni Kahlils Gibran fyrir brúðhjónin áður en þau játuðust hvort öðru. Viðstaddir klöpp- uðu þeim síðan lof í lófa þegar þau kysstust að athöfn lokinni. Finnbogi Lárusson á Laugabrekku gróðursetti því næst tré við lindina og hafði séra Rögnvaldur á orði að þetta væri nokk- urs konar „hjónabandstré" og sagðist reikna með að það yrði orðið tuttugu metra hátt um næstu aldamót. SKÁLAÐ í VÍGÐU VATNI í flestum brúðkaupum er venjan að skála í kampavíni en þetta var ekkert venjulegt brúðkaup og því var skálað í vígðu vatni úr Lífslindinni. Höfðu margir viðstaddir á orði að ef þeir hefðu ekki þegar verið giftir hefðu þeir viljað gifta sig þarna á staðnum því þetta var svo falleg stund. Fólk gekk til baka á mótssvæðið fyllt uppnuminni kærleikstil- finningu augnabliksins, léttstígt með endur- nýjaða krafta eftir vatnið úr lindinni. PALLBORÐSUMRÆÐUR UM NÝÖLDINA Eftir hádegi fóru fram pallborðsumræður undir stjórn Guðmundar Einarssonar, verk- fræðings og fyrrverandi formanns Sálar- rannsóknafélags Islands. Eftirtaldir aðilar sátu fyrir svörum: Brynjólfur Snorrason, nuddari, kristallafræðingur og rannsóknar- maður geislamengunar í umhverfinu; Rafn Geirdal, nuddfræðingur og skólastjóri Nudd- skólans; Guðjón Baldvinsson, formaður Sál- arrannsóknarfélags íslands; Helga Ágústs- dóttir, framkvæmdastjóri Hugræktarhússins; Hilmar Örn Hilmarsson, hljómlistarmaður og dulspekingur; Guðrún G. Bergmann, fram- kvæmdastjóri verslunarinnar Betra líf og einn af eigendum bókaútgáfunnar Nýaldar- bækur, og Guðmundur S. Jónasson, dul- spekingur og rithöfundur. ( upphafi gerðu þessir aðilar grein fyrir því hvar þeir stæðu innan Nýaldarhreyfingarinnar og hvert álit þeirra væri á henni og í framhaldi af því voru veiðilendurnar en þeir voru næstum því út- dauðir. David sagði einmitt frá því í fyrir- lestrinum daginn áður að þegar hvíti maður- inn hafði gefist upp á að berjast við indíán- ana til að ná valdi á þeim var beitt þeirri að- ferð að drepa buffalóana svo indíánarnir hefðu ekki fæði. Gekk hvíti maðurinn svo hart fram í því að hægt var að ganga yfir dauða buffalóa á þrjú hundruð mílna svæði. Tilgangurinn með dansinum er að tengja saman tvo heima, þann sem við lifum í og andaheim forfeðra okkar og ef þátttakendur ná því að öðlast „sýn“ eigi þeir að leita eftir andlegum leiðbeiningum hjá forfeðrum sínum. Dansinum fylgja ýmsar hefðir og má til dæmis ekki taka myndir eftir að tónlistin hefst og konur, sem hafa blæðingar, mega ekki taka þátt í honum. Er talið að þær dragi þá til sín allan þann kraft sem upp magnast. Mótsgestir í hugleiðsluferðalagi með Erlu Stefáns. leyfðar fyrirspurnir. Sköpuðust líflegar um- ræður fram eftir degi með þátttöku móts- gesta. Umræðum lauk með þeirri samþykkt að þeir aðilar sem starfa innan Nýaldar- hreyfingarinnar myndu stefna að því að halda ráðstefnu á sólstöðum, þá fyrstu þann 21. september næstkomandi. Að loknum umræðum var Brynjólfur Snorrason með fyrirlestur um umhverfis- mengun. Sýndi hann meðal annars fram á það með dæmum að jafnvel kristallar jarðar- innar hafa mengast svo á síðustu árum að þeir hafa ekki lengur þann kraft sem þeir ORKUPUNKTUR UNDIR ALTARINU Undirbúningurinn fyrir dansinn fólst meðal annars í því að merkja þurfti stóran hring sem dansað var innan í. Merktar voru inn höfuðáttirnar og voru valdir einstaklingar fengnir til að verja þær. í gamla daga voru það strfðsmenn indíánanna sem vörðu átt- irnar og þá með Iffi sínu ef á þurfti að halda en hér voru valdir tveir karlmenn og tvær konur. I miðjum hringnum var merktur út staður fyrir eldstæði. í austur frá því var sett uþp altari. David valdi því stað með því að leggja jakkann sinn á jörðina. Þá tóku við- 34 VIKAN 17, TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.