Vikan


Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 52

Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 52
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON HVER ER ÞESSI JULIA ROBERTS? Hún er aðeins 22 ára gömul, hefur leikið í sjö kvikmyndum og er þegar orðin ein hæst launaða leikkona Bandaríkjanna. Hún tekur ekki minna en milljón dali fyrir að koma fram í kvikmynd og kaupkröfurnar fara hækk- andi. Hún er hvort tveggja í senn, kynbomba og indælis stúlka, líkami hennar er sexý og andlitið fjölbreytilegt. Hún er hávaxin og það er engu lík- ara en að hún búi yfir ýmsum persónuleikum sem bítast um að ná yfirhöndinni yfir útliti hennar og líkama. Stundum er hún „töff pía“ en skömmu síð- ar er hún orðin að einlægri og sakleysislegri stúlku. Hún læt- ur lítið uppi um sjálfa sig enda er haft fyrir satt að hún sé hrædd við blaðamenn. Margir þeirra hafa mistúlkað orð hennar eða gert sér mikinn mat úr litlu efni svo að hún er orðin tortryggin gagnvart þeim. Hún fæddist inn í leikarafjöl- skyldu í smábænum Smyrna ( Georgíufylki og fékk snemma áhuga á alvarlegum bók- menntum. Á fyrstu árum sín- um í menntaskóla fékk hún andúð á algebru svo aö hún hætti að mæta í algebrutíma en las f staðinn doðrantinn „Leaves of Grass" eftir Walt Witman. Síðan fór hún að lesa Ijóð og fannst hún hafa himin höndum tekið þegar hún komst yfir miðaldabókina Kantaraborgarsögur sem er að langmestu leyti í bundnu máli á fremur fornri ensku. Hún fór sautján ára gömul til New York til að leggja stund á leiklist. Þar reyndi hún að fela uppruna sinn með því að nota fínni mállýsku en tíðkast með- al almennings í Georgíu og enn þann dag í dag breiðir hún yfir suðurríkjaframburðinn þegar hún talar við blaða- menn. En það fór lítið fyrir leiklistarnáminu í New York. Henni fannst hún ekki læra neitt frumlegt þar og hafði ekki beint áhuga á að fást við það sama og allir hinir nemendurn- ir, svo að hún gaf námið hrein- lega upp á bátinn. Bróðir hennar, Eric Roberts, var orðinn töluvert þekktur leikari þegar hún fékk stóra tækifærið enda hefur hann hjálpað henni mikið. Auðvitað þykir henni vænt um bróður sinn en vill þó ekki gera mikið úr skyldleikanum. Hún segir að þau séu eins ólík í leikstíl og Van Gogh og Picasso. Það vill líka svo vel til að Picasso Julia Roberts er aðeins 22 ára en hefur leikið í sjö kvikmyndum. Hún kemur mörgum fyrir sjónir sem al- varleg stúlka sem stefnir hátt og þess vegna kemur ýmislegt í fari hennar á óvart þegar fólk fer að kynnast henni. er uppáhalds málarinn hans en hún er aftur á móti mjög hrifin af Van Gogh. Hún hefur bent á að Picasso sé meistari forms og tækni en Van Gogh aftur á móti meistari tilfinning- anna. „Þeir eru báðir málarar," hefur hún sagt. „Mjög ólíkir málarar-en við erum leikarar. Mjög ólíkir leikarar." Hér á landi er Julia Roberts líklega þekktust fyrir leik sinn í myndinni Stórkostleg stúlka (Pretty Woman) á móti Ric- hard Gere en í næstu mynd sinni, Flatliners, lék hún á móti Kiefer Sutherland. Þau kynnt- ust vel meðan á tökum mynd- arinnar stóð og hafa verið ó- slitið saman síðan. Hún hefur bent á að jafnvel þótt kvik- myndaleikur sé ekkert annað en vel skipulögð látalæti kom- ist hún ekki hjá því að komast í mismunandi tilfinningalegt samband við mótleikara sína, eftir eðli hlutverksins sem hún leikur hverju sinni, því að hún hefur tilhneigingu til að lifa sig inn í hlutverkið. Ekki þó þannig að hún breytist smám saman í þá persónu sem hún á að leika því að hún leggur mikla vinnu i að hugsa upp hvað hún eigi að setja í leikinn þegar hún er ekki í myndverinu. En þegar á hólminn er komið hefur hún mótað hugmyndir sínar og hellir sér svo út í leikinn með öll tilfinningaleg smáatriði á hreinu. í kvikmyndaverinu heldur hún sig allan tímann við þá persónu sem hún leikur, hvort sem hún er fyrir framan upptökuvélarnar eða bara að Julia kynntist Kiefer Sutherland meðan á töku myndarinnar Flatliners stóð og hafa þau verið óaðskiljanleg síðan. Kiefer er, eins og nafnið og útlitið ber með sér, sonur leikarans góð- kunna Donalds Suther- land. fá sér kaffi á milli atriða með hinu starfsfólkinu. Utan kvik- myndaversins verður hún hins vegar aftur hún sjálf. Hún kemur mörgum fyrir sjónir sem alvarleg stúlka sem stefnir hátt og þess vegna kemur ýmislegt í fari hennar á óvart þegar fólk fer að kynnast henni. Hún hefur lymskulega kímnigáfu og er sögö segja klúrar skrítlur af hreinustu snilld, í góðra vina hópi, án þess að fá sér að borða. Hún er ekki mikið gefin fyrir þessi frægu Hollywood-partí og seg- ist sjaldan fara út nema þá til þass að fá sér að borða. Hún hefur nýlega keypt sér glæsi- legt hús í Los Angeles og þótt hún stefni hátt á kvikmynda- brautinni segir hún að sig dreymi um að eignast börn og fjölskyldu og að það skipti hana í rauninni miklu meira máli en kvikmyndaleikurinn. Nýjasta myndin sem hún lék í heitir Sleeping with the Enemy og verður ekki sett á markað fyrr en á næsta ári. Ekki þykir ástæða til að setja nýja mynd með henni á mark- að strax á meðan síðustu 52 VIKAN 17. TBL. 1990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.