Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 53
myndir hennar, Pretty Woman
og Flatliners, ganga eins vel
og raun ber vitni. Sagt er að
hún sé eins og ný persóna í
hverri nýrri mynd svo að kvik-
myndajöfrunum í Hollywood
finnst allt í lagi að láta aðdá-
endur hennar bíða í eitt ár eða
svo. Hún er talin mjög leyndar-
dómsfull kona enda sagöi hún
einhvern tíma við leikstjóra
myndarinnar Sleeping with the
Enemy, þegar hann klóraði
sér í kollinum og sagðist ekki
alveg botna í henni: „Þú vilt þó
ekki að þú getir reiknað mig al-
veg út, er þaö?“
Annars finnst leikstjórum
gott að vinna með henni. (
einu atriði myndarinnar Stór-
kostleg stúlka á Richard Gere
aö öskra á hana. Atriðið var oft
tekið upp en hún virtist jafn-
særð í hvert skipti og hágrét í
lok hverrar töku.
Þegar Meryl Streep kom
fram á sjónarsviðið var talað
um að hún væri eins og James
Dean endurfæddur í kvenlík-
ama. Julia Roberts er kannski
ekki eins mikill James Dean
og Meryl Streep en hún er ekki
síður áhugaverð. Hún er
skærasta nýstirnið í Holly-
wood um þessar mundir,
sveipuð dularljóma og seið-
magnaðri útgeislun. Hún er
rétt að byrja í bransanum en á
sennilega eftir að sjást mikið á
hvíta tjaldinu í framtíðinni -
nema hún fari að taka upp á
því að giftast og eignast börn.
Julia Roberts er
skœrasta nýstirnið í
Hollywood um þessar
mundir, sveipuð
dularljóma og seið-
magnaðri útgeislun.
PRETTY WOMAN - STÓRKOSTLEG KONA - SUMARMYNDIN í ÁR
>
OSKUBUSKUiÆVINTYRIN
GERAST ENN
Aári hverju eru alltaf
nokkrar kvikmyndir
sem koma á óvart hvað
aðsókn snertir. Fokdýru stór-
myndirnar kiikka og litlu ódýru
myndirnar slá í gegn. Fjölmörg
dæmi höfum við um það. Kvik-
myndin Pretty Woman eða
Stórkostleg kona hefur undan-
farnar vikur og mánuði verið
sýnd í Bíóhöllinni við fádæma
góða aðsókn. Hún er einmitt
ein af þessum ódýru myndum
sem engan grunaði, allra síst
framleiðendur, að ætti eftir að
slá aðsóknarmet víða um
lönd.
í Þýskalandi sáu myndina
770 þúsund manns á ellefu
dögum og jafnvel heimsmeist-
arakeppnin í knattspyrnu kom
ekki f veg fyrir mjög góða
aðsókn. Þar í landi er hún
sögð vera bíómynd sumarsins
og ber það nafn meö rentu.
En hvað er svona merkilegt
við þesa mynd? Fátt eitt ef
nokkuð segja gagnrýnendur
en aðsóknin segir sitt og
áhorfendur eru á allt á öðru
máli. Góð vísa er aldrei of oft
kveðin stendur einhvers stað-
ar og það á við um efnisþráð-
inn í Pretty Woman. Þetta er
öskubuskuævintýrið í nútíma-
mynd eða breytt útgáfa af My
Fair Lady þar sem gleðikona
kemur í stað blómasölustúlk-
unnar. Ríki maðurinn, sem
leikinn er af hinum fertuga Ric-
hard Gere, ræður til sín að-
stoðarmann sem er auralítil
gleðikona og leikin af Juliu Ro-
berts (22 ára). Þau fella hugi
saman, hann lætur bernsku-
draum hennar rætast og nær í
hana á hvítum fáki, öllu heldur
hvítri glæsikerru og allt endar
vel. Sætt lítið ævintýri sem
endar vel.
„Fyrst komu unglingarnir og
svo hinir eldri, allt upp f
sjötugt," segja þýskir forráða-
menn kvikmyndahúsa og eru
fjarska hressir. „í myndinni er
ekki ofbeldi eða tæknibrellur í
Richard Gere og Julia Roberts fara með
aðalhlutverkin í kvikmyndinni Pretty Woman.
Síðan um miðjan maí hafa yfir fjörutíu þúsund
manns séð myndina hér á landi og það er eins og
það gerist best, að sögn sýningarstjóra
Bíóhallarinnar.
Alfreð Ámason í anddyri Bíóhallarínnar. Um þessar
dyr hafa margir farið tll að sjá sumarmyndina í ár,
Pretty Woman. Aðsóknin gífuriega góð eins og víða
annars staðar í heiminum. uosm oaniei
hasarstíl heldur einfalt samspil
karls og konu í ævintýrastíl.
Það eru til prinsessu- og
prinsadraumar í hverjum og
einum en konur eru þó í meiri-'
hluta sé litið yfir alla þá aldurs-
hópa sem séð hafa myndina."
Dorit Brake er 62 ára og segir
( þýska blaðinu Bild: „Richard
Gere er sannur herramaður,
kaldur og áræðinn en samt
hjartahlýr. Hann er karlmann-
legur, sterkur og mjúkur.
Þannig eiga karlmenn að vera
og ég fann mig í örmum hans.
Ég hef ekki lengi séð svona
skemmtilega mynd.“
Hér á landi má með sanni
segja að Pretty Woman sé
bíómynd sumarsins. „Síðan
um miðjan maí og fram á
þennan dag hafa yfir fjörutíu
þúsund manns komið og séð
myndina og það er eins og
það gerist best,“ segir Alfreö
Árnason, sýningarstjóri Bíó-
hallarinnar. „Til samanburðar
má nefna Leathal Weapon en
hana sáu um þrjátíu þúsund
manns og þó var hún bönnuð
innan sextán ára. Síðustu
James Bond-mynd sáu fjöru-
tíu og fimm þúsund til fimmtíu
þúsund manns en það er
mesta aðsókn sem ég man
eftir á eina mynd. Pretty Wo-
man er hins vegar enn í bull-
andi aðsókn og enginn veit
hvað hún gerir þegar upp
verður staðið. Unglingar voru
fyrstu gestir og myndin fékk
greinilega góða dóma inni á
heimilunum því aðsóknin
breyttist í fjölskyldufólk, eink-
um mæðgur og vinkonur, hef
ég tekið eftir. Myndin fékk
strax gott umtal meðal starfs-
fólks kvikmyndafyrirtækjanna,
jafnvel hjá keppinautum, svo
hún fékk fljúgandi dreifingu
þegar frá byrjun. Það má held-
ur ekki gleyma því að í mynd-
inni er mikið af góðri tónlist,
vinsælli tónlist frá ýmsum tím-
um sem gefur myndinni sterka
Frh. á næstu opnu
17. TBL. 1990 VIKAN 53
TEXTI: PORGEIR ÁSTVALDSSON