Vikan


Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 25

Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 25
TEXTI: BRYNDÍS HÓLM bjóða viðskiptavinunum góða alhliða þjónustu. Ég hef alltaf lagt ríka áherslu á að aðlaga mig að þörfum viðskiptavina minna og rekið blómabúðina í samræmi við það. Öðruvísi gæti þetta eflaust ekki gengið" AÐ FYLGJAST MEÐ KRÝNINGU Á UNGFRÚ HEIMI Við hverfum aðeins frá blómum yfir í aðra sálma. Stefán er mikil félagsvera. Hann á marga vini sem hann er i nánum tengslum við og ekkert finnst honum eins gam- an og að vera í góðra vina hópi. „Góðan vinskap met ég afar mikils. Það er mikilvægt að rækta þá hlið lífsins og gott að vita til þess að maður eigi góða að. Ég hef afskaplega gaman af því að skemmta mér með góðum vinum. Til dæmis hef ég farið í nokkur ár að fylgjast með keppninni um titil- inn ungfrú heimur þegar hún hefur farið fram í Lundúnum. Það er ákveðinn hópur af fólki sem ég hef alltaf farið með og þetta er alveg ótrúlega skemmtileg reynsla. íslenskar stúlkur hafa átt sérlega góðu gengi að fagna í fegurðarsam- keppnum undanfarin ár þann- ig að það hefur svo sannar- lega verið vel þess virði að fylgjast með framgangi þeirra á erlendri grundu. En stórkost- legast var þegar Linda Péturs- dóttir var kjörin ungfrú heimur 1988. Ég fór ekki á keppnina á síðastliðnu ári þar sem hún var haldin i Hong Kong, það var of langt að fara. En það hefur verið mjög skemmtilegt í öll þau skipti sem ég hef farið með hópnum til Lundúna. Ég hef ferðast mikið og haft mikla ánægja af. Það er gaman að koma til ólíkra landa og bera þau saman. Ég hef alltaf haft mikla þörf fyrir að ferðast, get aldrei verið kyrr, þarf alltaf að vera á ferðinni. Það er líka eitt af því skemmtilegasta sem ég geri, að slappa af í útlöndum og njóta lífsins." BÍLAR SKIPTA MIG MIKLU MÁLI Hvað um önnur áhugamál, gefst einhver tími fyrir þau? „Ég er mikill áhugamaður um bíla. Ég hef alltaf verið það. Fallegir bílar eru stórkostlegir. Ég hef til dæmis alltaf átt góða og rennilega bíla. Mín upp- áhaldstegund er Honda Prel- ude, alveg ótrúlega vel byggð bifreið og falleg í þokkabót." ALLUR ÞESSI FJÖLDI VINIR MÍNIR Það hvíslaði lítill fugl því að blaðamanni að Stefán hefði haldið veislu mikla á Broad- way 1986 fyrir vini sína og vandamenn, nánar tiltekið í til- efni af tíu ára afmæli Stef- ánsblóma. „Já, það var ein skemmtileg- asta stund sem ég hef upplif- að. Það kom mér svo á óvart hversu margir létu sjá sig. Ég hélt ekki einu sinni að húsið myndi hálffyllast. Húsið fylltist. Þetta kvöld var ótrúlegt. Ég get varla lýst þeirri tilfinningu sem ég upplifði þegar ég horfði yfir salinn og varð Ijóst að allt fólkið, sem var þarna, væru vinir mínir. Allur þessi fjöldi. Já, það er gott að hugsa til þess hvað maður er heppinn að eiga svona marga vini, eiga svona góða að.“ □ kllM' llTW- HRINGDU OG FÁÐU SENT EINTAK. BÆJARHRAUNI 14,220 HAFNARFJÖRÐUR PÖNTUNARLÍNA 91-653900 17.TBL.1990 VIKAN 25
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.